fimmtudagur, desember 29, 2005

Tjuhæ...

Ég var að klára jólabókina þetta árið: Flugdrekahlauparinn eftir Khaled Hosseini
Var búin að hlakka til að lesa hana og varð ekki fyrir vonbrigðum. Mjög sorgleg, áhugaverð og falleg saga. Ekki laust við að maður felldi tár. Erfitt að leggja hana frá sér. Mæli eindregið með henni...

TJ kemur aftur í kvöld (ef það nú er flogið frá Köben, það er víst snjóstormur=5 cm snjólag og smáskafrenningur).
Vonum bara það besta.

Áramótin eftir 2 daga...hvernig er stemmningin á fólki?
Er það spil í heimahúsi eða villt biðraðadjamm í miðbænum?

mánudagur, desember 26, 2005

komin og farin...

þá eru jólin komin og farin!
Og mér sem finnst þau rétt vera byrjuð.
Þetta er búið að vera yndislegt...frábærar gjafir, matur og jólaboð ásamt huggulegum stundum í faðmi fjölskyldunnar. Getur maður beðið um meira? Held nú ekki.

Það verður tekin Narnía á þetta í kvöld...

laugardagur, desember 24, 2005

Kæru landsmenn...

...fjölskylda, vinir og kunningjar nær og fjær,
ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og ástar og friðar á komandi ári!

Njótið nú þess að hafa það afar huggulegt yfir þessa yndislegu hátíð ljóss og friðar( ath.ekki spara konfektið!)

Jólakveðja
-frá mér
(og TJ sendir kveðju frá Dk.)

þriðjudagur, desember 20, 2005

..timinn er svo lengi að liða..

Ja sei sei...4 dagar til jóla og mér finnst það heil eilífð!

Er það af því að tilhlökkunin er að sprengja mig?...nei reyndar ekki...eiginlega finnst mér þessi tími bara vera svoldið useless. Akkurat núna snýst allt um jólin og þegar búið er að gera allt myndast bara einhverskonar biðtími.
Ég er ein í kotinu og stemmningin er bara ekki að gera sig hérna heima eftir jóla-huggulegheit mörg kvöld í röð.
..fer að vinna á fimmtudaginn. Það á vonandi eftir að drífa tímann áfram.

Grinch

mánudagur, desember 19, 2005

Jæja nú mega jólin alveg fara að koma!!

laugardagur, desember 17, 2005

Afmæliskveðja




Birna góðvinkona mín hefur í dag náð þeim merka aldri 25 ára. Þetta er hin glæsilegasta tala og getur hún verið stolt af henni. Einn daginn munum við hinar(waterlilies)bætast í hóp stoltra 25-eyringa:)
Eigðu góðan afmælisdag honey!!

föstudagur, desember 16, 2005

Jú jú mín ætlar víst að sjá Mugs, Hjálms og Trabs í kvöld á Nass....

tjúhæ;)

miðvikudagur, desember 14, 2005

Hinn sanni jolaandi?

...þessi árstími hefur ýmislegt ljúft með í för...jólin, ljósin, gleðina og hamingjuna.

En það er líka eitt sem bregst ekki að láti á sér bera um þetta leiti. Lánasjóður íslenskra námsmanna. Betur þekktur sem L.Í.N.
Ég ætla nú ekki að vera að kvarta...EN mikið ofslalega er maður þreyttur á þessari stofnun. Sem er nú fjandi leitt þar sem maður á eftir að hafa þetta lið á bakinu þanga til maður er orðin gömul og grá.
Léleg kjör og endalaus hnýsni um tekjur fólks(sbr. endanlega tekjuáætlun) svo ekki sé minnst vanhæfni í persónulegum samskiptum!
Ég hringdi í símanúmer þessarar gamalgrónu stofnunnar í dag til að nálgast ákveðnar upplýsingar, mjög kurteis og róleg . Ekki nóg með að enginn nenni að svara símanum hjá þeim fyrr en eftir langa mæðu, þá svarar loksins einhver kerlingarbeygla með eintóm leiðindi í röddinni sem gefa vel til kynna að maður sé að trufla friðhelgi kaffibollans og kleinunnar! Svo fær maður svörin við spurningum sínum í "ofsalega ertu e-ð vitlaus" tón. Halló! Hvar er þjónustulundin í fólki(í þjónustustörfum?!!?)?

Jebbs....its the season to be jolly*

þriðjudagur, desember 13, 2005

How about it?

Er einhver í stuði fyrir Mugison, trabant og hjálma á föstudaginn??
Tónleikar á Nasa byrja kl.24.

mánudagur, desember 12, 2005

12 dagar til jola!




Jæja stekkjastaur er mættur til byggða sem þýðir aðeins að niðurtalningin er hafin fyrir alvöru!

TJ til Köben áðan og það þýðir bara að ég hafi engann til að borða allar jólasmákökurnar sem ég hafði hugsað mér að baka.

miðvikudagur, desember 07, 2005

Jolaföndur!



Jæja, búin með prófin. Á morgun ætla ég að skila síðasta verkefninu mínu og vera þá komin í 100% jólafrí.
Ég er reyndar komin í ekta jólastemmningu. Fagnaði próflokum með hádegismat á Vegamótum og labbaði svo í fullt af nýjum og gömlum búðum á laugarveginum. Endaði svo á að skera og steikja laufabrauð með familíunni ásamt því að fylgjast með leik Manchester United og Benefica( ekki góð frammistaða hjá Man.United, úff! )

Jóla-gleðin heldur svo áfram með jólatónleikum annaðkvöld. Ætla kíkja á frændann á sviðinu á Nasa ásamt hinum lútunum. Verður án efa stuð.

Ho ho ho

mánudagur, desember 05, 2005

Profa-bloggun

Skemmtilegt hvernig p´rofa lestur kemur manni alltaf á óvart. Mér tekst alltaf að gleyma hversu erfiður þessi prófatími er á milli prófatarnanna. Þó svo að ég fari bara í tvö formleg próf í ár (og ég er búin með annað þeirra) þá finnst mér þetta ansi erfitt.
Hver fann eiginlega upp á því að skella prófum á tíma sem maður notar í jólagjafa-vangaveltur, jólafata-vangaveltur, jólabaksturs-vangaveltur og þessháttar mikilvægar pælingar. Þetta er alveg eitur þegar maður á að vera að einbeita sér að bókum(í þessu tilviki að aðferðafræði).

Maður spyr sig bara hvernig maður fór að því hérna í denn að taka kannski hátt í 10 próf á desembermánuði...úff!?!

Ekkert blogg fyrr en eftir hádegi á miðvikudag. Þá er ég sko komin í jólafríið mitt!!

föstudagur, desember 02, 2005

Big day

Í dag á hún Dröfn afmæli. Hún er að heiman á afmælisdaginn þessi gæska en ég mun taka á móti gjöfum, blómum og súkkulaði fyrir hennar hönd í dag milli kl.10 og 22. : )
!!!Til lukku með daginn gamla mín!!!


Skellti mér á Harry Potter í gær.
Ofsalega er þetta vel gerð mynd....mæli algerlega með henni.
Ég er mikill H.P. aðdáðandi...mögnuð saga sem þeir eyðilögðu alls ekki með myndinni!
Bíð spennt eftir að sjá hvað þeir geta gert í næstu mynd.

Kv. Madam Blown Away

fimmtudagur, desember 01, 2005

Sitt litið af hverju

Hvað er ég búin að gera upp á síðkastið:
-fara út að borða á Shalimar í fyrsta skiptið
-ganga helv. vel í öðru jólaprófinu mínu
-fá fína einkunn út úr öðru jólaprófinu mínu
-kaupa miða á tónleika þann 6.( eða 7.) janúar 2006 með Siggu töffara
-kaupa eina jólagjöf...segi ekki handa hverjum
-Skanna Epal
-kynna mér jólabækurnar í ár
-borða piparkökur lesa milljón jóla-tilboðasbæklinga
-skreyta heimilið
-fá einn pakka í pakkadagatalinu mínu!

Á döfinni:
-fá fleiri pakka í pakkadagatalinu mínu
-læra fyrir aðferðafræði próf
-kaupa fullt af jólagjöfum
-vinna í jóla-blómabúðinni
-vera duglega að mæta í Baðhúsið
-baka smákökur...jeij
-fullt af afmælum hjá vinum og ættingjum

já já....happy times ahead

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Hvers a maður að gjalda..

fór í einn leikfimi tíma í gær...þá meina ég leikfimi...ekkert body-neitt...tíminn hét bara leikfimi-þessi gamla góða.
Meðal aldurinn var ca. 40 sem er ekkert atriði....ég ákvað bara að byrja varlega á átökunum þar sem ég get ekki kallað mig nautliðuga eftir kyrrsetu-verkfall haustsins. Tíminn var barasta svo fínn...svoldið hooperí og einhver lóð og teygjur. Rosa nett bara....mín hæst ánægð þegar heim var komið.

Í dag er önnur hlið uppi á teningum. Harðsperrunar eru mættar....damn it...og mér sem fannst þessi æfing ekki vera neitt brjáluð. Ég hef s.s. komist að því að ef ekki nema fyrir kraftaverk mun ég verð Miss.Flexible fyrir jólin. Sem er frekar súrt þar sem kortið rennur út þann 31.desmeber.

Yfir og út

Ja sei sei...

maður er barasta komin með kort í baðhúsinu. Jebb...þessi dugnaður í mér ætti nú að gefa mér nokkur stig hjá jólasveininum.

Ég sé fram á dugnað og stranga þjálfun....tja að minnsta kosti hoppar maður og skoppar e-ð smá með kellunum sem eru þarna.
Einnig sé ég fram á mikla konfektveislu um hátíðaranar með félögum mínum Nóa og Mr. Machintos þar sem ég er svo fyrirhyggjusöm að gera pláss fyrir þá á meðan ég get með smá sprikli í gymminu.....

Aðeins 26 dagar til jóla to go...

sunnudagur, nóvember 27, 2005

Gleðilegan fyrsta i aðventu

Jæja fólk...nú er boltinn farinn að rúlla...jólin eru officially á næsta leiti.
Ég ætla nú ekki að láta þetta hljóma eins og einhverja stress-pressu...eyddi bara helginni í blómó þar sem allt er komið í gull og glimmer búning, jólalög í útvarpinu og kúnnar að versla fyrir aðventukransana sína.
Stemmning?..já það má segja það. Létt jóla-stemmning beint í æð.
Langaði bara til að "spread the joy"

Mér varð hugsað til þeirra heppnu sem nutu tónleika Sigur-rósar í kvöld...hefur ábyggilega verið alveg brilliant.
Ég hef ákveðið að skella mér á næstu tónleika þeirra sem ég kemt á...hvort sem það er hérlendis eða erlendis.

Kvða.
Miss Joyfull Joyfull

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Ljos i myrkrinu:)

Já ykkar einlæg brá sér í einhverju flippi í ljós á Sælunni. Ég er að reyna að forðast ljósabekkina en lét undan þegar spegillinn sagði við mig í morgun að kominn væri tími til að hressa aðeins upp á "ég hef ekki farið út úr húsi í 5 mánuði" lookið mitt.

So I did. Sem er ekki í frásögu færandi fyrir utan að ég rakst á nokkuð merkilegt fyrirbæri. Það var karlmaður.....að vinna við að hreinsa bekkina. Hingað til (hef farið stöku sinnum ljós frá kannski 17 ára aldri;) hef ég AÐEINS séð stelpur í þessum ljósastofuvinnum. Er heimurinn að breytast? Já ég held það nú...jafnrétti kynjanna...áfram með smjörið!

My speis?

Rétt upp hend sem er dottin í þessa "myspace.com" bylgju!
Ég var að skoða þetta í gær og komst að því að þetta er heill heimur sem hefur farið fram hjá mér. Kom mér á óvart hversu mikið af íslensku fólki er með síðu þarna inni. Og núna líka yours truly.
Þetta er voða sniðugt...amk. enn ein leiðin til að drepa tímann þegar maður ætti kannski að vera að læra.

Tjékk it át

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

veðurteppt?

Ömurlegt veður úti og bílinn hálfbilaður....algerlega glötuð samsetning!

sunnudagur, nóvember 20, 2005

Sma sunnudagshumor fra Afriku

THE GEOGRAPHY OF A WOMAN

Before the age of 16 a female is like North Korea. Only a few
weirdos want to go there and they end up in prison.

Between 18 and 20, a woman is like Africa. Half discovered,
half-wild,
naturally beautiful with fertile deltas.

Between 21 and 30, a woman is like America. Well developed and open
to trade, especially for someone with cash.

Between 31 and 35, she is like India. Very hot, relaxed and
convinced of her own beauty.

Between 36 and 40 a woman is like France. Gently aging but still a
warm and desirable place to visit.

Between 41 and 50, she is like Yugoslavia. haunted by past mistakes.
Massive reconstruction is now necessary.

Between 51 and 60, she is like Russia. Very wide and borders are
un-patrolled. The frigid climate keeps people away.

Between 61 and 70, a woman is like Mongolia. A glorious and all
conquering past but alas, no future.

After 70, they become like Afghanistan. Everyone knows where it is,
but no one wants to go there.


THE GEOGRAPHY OF A MAN

Between 15 and 90, a man is like Zimbabwe.
Ruled by a dick !

föstudagur, nóvember 18, 2005

Juhu!

FIMM vikna vettvangsnámi lauk í dag. Þar með hef ég lokið öllu mínu vettvangsnámi sem kennaranemi!
Búið að vera skemmtilegt og frekar lærdómsríkt en ég er samt frekar sátt við að þessu sé lokið í bili.
Nú taka við 2 próf og svo heilmikið jólerí með tilheyrandi stuði.

Kennaraneminn kveður að eilífu og háskólaneminn tekur við á ný...

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Visindalega sannað...

...að veikindi sökka.
Hvernig er hægt að vera svona kalt á fótunum? Mér líður eins og tærnar á mér séu í Alaska!
Og hvað er það að geta ekki komið sér þægilega fyrir á neinn mögulegan hátt í sófanum?!

Eina lausnin virðist vera rúmið...damn it...ég þoli ekki að gefast upp fyrir þessum pestum!

Hohoho...

Jæja nú er bloggið komið í smá jólabúning...því það er bara alls ekki svo langt í fyrsta sunnudag í aðventu.
Svo er ég líka komin í jólafíling og ákvað að láta bloggið fylgja með.
Ég var líka að endurskoða bloggara-linkana mína. Fullt af fólki er hætt að blogga og þá er ekkert gagn að því að hafa það á síðunni. Birna verður samt ekki fjarlægð því ég hef fulla trú á því að hún sjái að sér og taki sig saman á ný í blogguninni!!

Eigiði gott og dimmt miðvikudagskvöld(=ANTM)

.:Hildzy

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Gurls night out!

Í gærkveldi var stelpukvöld.
Ég, móðir mín og systir skelltum okkur á Vegó til að snæða. Fengum ferlega fínan mat..þeir klikka sjaldan þarna í eldhúsinu.
Svo var haldið í bíó á "In her shoes" með Cameron Diaz. Þar er á ferð nánast perfect stelpumynd. Er um systur sem eru svo ólíkar en geta ekki án hvor annarar verið. Mikið kemur fram af skemmtilegum skóm í myndinni og svo er Cameron alltaf sæt.
Mæli með henni fyrir allar pæjur.

-Gagnrýnandinn

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Verslunar-kreize...oder was!!?

Já já mín fór í Smáralindina í gær og Kringluna í dag.
Og vitiði hvað ég keypti....????........

Bara fullt fullt fullt af engu.

Ég keypti ekki neitt...og ofan á það sá ég ósköp fátt sem mig langaði í.
Hversu sorglegt er það?? (auðvitað fyrir utan það að ég á ennþá allann peninginn minn)

Held ég þurfi bráðlega að drífa mig í einhverskonar "verslunarþerapíu".

Í nótt eignaðist ég litla frænku. Virkilega gleðilegar fréttir fyrir fjölskylduna...en reyndar virðist vera sem að öll heimsbyggðin sé að gleðjast með okkur eins og sést hér: http://www.baggalutur.is/frettir.php?id=3237

Góðar stundir
The Non-shopoholic

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Snjør snjør snjør

Jeij....kominn jóla snjór úti.
Það er ekkert betra en að vera heima að dunda sér( *við verkefnavinnu*) þegar það er snjór og kuldi úti.

Alveg lovlí:)

laugardagur, nóvember 05, 2005

úff!!

Hversu mikill bömmer er það að vera búin að borða á sig gat á föstudegi...og öll helgin framundan;)
Spjall/át hittingur vatnaliljanna á fimmtudeginum. Góði félagsskapurinn og veglegar veitingar gerðu það að verkum að maður stóð á beit....átakanlega gott;)

Föstudagskvöldið var haldið matarboð með hinum ýmsu réttum. Bekkjarfélagar TJ mættu á staðinn með spilið "Cluedo" og eftir lúxus átið var spilað fram á nótt....góð skemmtun og mikið keppni í fólki þar sem útspekuleruð kerfi voru í fyrirrúmi;)

En nú hef ég heldur ekki pláss fyrir meiri mat restina af helginni....omgoddskí...þannig að ég verð bara að sætta mig við nammi!

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Skoðannakönnun

...fyrir þá sem fylgjast með þættinum.
Nú eru 5 keppendur eftir í Americas Next Top Model.

Hver haldið þið að vinni?!

þriðjudagur, nóvember 01, 2005

Sma mont

..já ég er núna officially komin í vetrarfrí.
Ég veit ekki alveg af hverju ég er að monta mig...því ég er á fullu í annari verkefnavinnu.
En það er greinilega bara svona gaman að segja þetta...

Var áðan á mynd nr.2 á októberbófestival....og ég reikna með að ná þeirri þriðju fljótlega... meira bíónördið þar á ferð;)

Sé ykkur Vatnó´s á fimmtudaginn kl.20 sharp

Góða ferð til Köben Guðrún Anna...bið að heilsa Sálinni:)

laugardagur, október 29, 2005

Mmm...

Snjór..búðarráp...jólaskraut...nýja Blómaval/Húsasmiðjan....kakó og vaffla...
Þetta allt gerir vinnuhelgina mína mun meira kózý.
Akkurat núna er planið að sitja undir teppi á þessu laugardagskvöldi, janfvel horfa á Nordic music awards. Ég er nokkuð viss um að ég stígi ekki fæti út fyrir dyrna í kvöld....brrr! Fékk reyndar gott boð um partýfjör í kvöld...en vegna þreytu, frosts og pínu leti verðum við bara að fá að mæta í næsta partý sem þú heldur Júlía;)

Ég skellti mér í vikunni á mynd sem er hluti af "Októberbíófest". Dönsk mynd sem heitir "Morðið". Fín mynd...mjög fín mynd.
Mæli með henni...svo er fullt af myndum þarna sem ég þyrfti að skella mér á.

Næsta vika hljóðar upp á:
-Æfingakennsla mánud. og þriðjud.
- og svo....VETRARFRÍ í 3 daga+ helgi!
Sweet!...þá ég get ég farið farið að snúa mér að hinum verkefnunum mínum. Spörning með sumóferð um helgina.

Svo er planaður stjórnarfundur Vatnaliljanna næsta fimmtudag kl.20:00. Dagskrá: spjall, hlátur, át og meira át.

Æ jólin eru að koma....mó...

miðvikudagur, október 26, 2005

Komin i stud...

...fyrir jólahugleiðingar. Snemmt?
Maybe...en það er komið jólaskraut í Ikea og hvað get ég sagt...ég er sökker fyrir jólastemmningu.
Leist samt ekki alveg nógu vel á sumar litasamsetningarnar sem voru í boði af jólaskrauti. Það á greinilega að reyna að gera skær gult,grænt,bleikt,blátt,appelsínugult og rautt að jólalitunum í ár.Og þá er ég að meina ég á einu og sama trénu. Call me old fashioned en rautt og grænt eru mínir jólalitir...smá gull og glimmer er líka í góðu lagi....

Ég er strax farin að spá í jólakort, gjafir og skreytingar....besti tími ársins(fyrir utan sól og sumar) nálgast!

Dashing through the snow....lalalaa....

mánudagur, október 24, 2005

Kvennafridagur




Alveg svakalega góð mæting.
Ánægð með þetta:)

sunnudagur, október 23, 2005

Airwaves buið


Jæja....þá er maður búin að prófa það
Ferlega skemmtileg stemmning í bænum í gegnum þessa tónlistarátíð...langt síðan ég hef upplifað annað eins í good old Reykjavík.
Ég sá fullt af áhugaverðum böndum en þó (af þeim sem ég náði að sjá) var sveitin "architecture in Helsinki" það sem stóð upp úr. Frábært band og skemmtilegt á sviði.
Missti reyndar af tveimur hljómsveitum sem mig langaði að sjá vegna biðraðar fyrir utan Nasa...röðin náði frá innganginum á Nasa að alþingishúsinu...og þá er ég að meina að hún lá framhjá gamla landsímahúsinu og beygði svo þannig að að fólk stóð fyrir utan innganginn að alþingishúsinu. Þeir hefðu alls ekki átt að selja svona marga miða...ja eða hafa tónleikastaðina stærri!!

Ég verð samt að viðurkenna að ég er fegin að þetta eru ekki fleiri dagar. Ég hefði ekki meikað að þurfa að sitja inni á reykmettuðum og stappfullum stað eitt kvöld í viðbót...þó svo að tónlistin hefði verið góð;)

föstudagur, október 21, 2005

Mennigaleg með meiru

Já yours truly er alveg að springa úr menningu þessa dagana...Fjárfesti í einu stykki "airwaves"armbandi og hef reynt að mæta á allt það sem ég get. Er faktískt mjög ánægð með kaupin þar sem það er rosa góða stemmning fyrir þessari hátið og ég hef séð fullt af góðum böndum og samt er hátíðin bara hálfnuð.
Í gærkveldi (áður en ég fór á fleiri tónleika) skellti ég mér í leikhús á "forðist okkur" eftir Hugleik Dags. Mjög fínt og fyndin sýning, skemmtilega spes og það er alltaf gaman að sjá svona öðruvísi útfærslu á leikriti.
í kvöld eru það bara fleiri tónleikar og mögulega bjórkolla með þeim til að halda upp á að fyrsta vikan mín í kennslu er búin. Only 4 to go.

Eigiði menningalega helgi...
Sé ykkur á mánudaginn niðri í bæ, 14:08 sharp !!

"Menningagúrúið"

þriðjudagur, október 18, 2005

Hvar verdur þu...

...næsta mánudag kl. 14:08?
Mögulega hittir maður þig niðri í bæ...eða hvað?

Munið kvennafrídaginn!

http://www.guardian.co.uk/g2/story/0,3604,1594755,00.html

mánudagur, október 17, 2005

Einbuinn a holnum!

Ég er ein á Hóli þessa dagana þar sem TJ var valinn til að taka þátt í franskri sjónvarpsauglýsingu uppi á Vatnajökli. Þar er hann akkurat núna að þeysast um ísbreiðurnar í líki Napolens Bonaparte og við erum að tala um the whole uniform hér!
Aldrei er mér boðið að leika Napoleon....damn it!

Vettvangsnám hófst í dag. Held að það verði bara mjög kúl að vera þarna í gamla gagnfræðiskólanum mínum. Ég get nýtt mér tækifærið og lifað mig inn í að vera í 10.bekk....þar sem ég missti jú af þeim ágæta árgangi vegna Danmerkurferðar í denn. Matarslagur í mötuneytinu, deitböll og fleira. Öss hvað mar missti af miklu!;) En eitt kom mér á óvart...ég hafði fullkomlega gleymt hversu mikið statement það er að vera í ákveðnum fötum á þessum aldri. Ef ykkur fannst ykkar gaggó vera fatatískubóla þá er þessi skóli alveg sprugninn....við erum að tala um alla stíla..fjólubleikt hár sem búið er að klippa hliðina af, göt í andliti, nýjust diesel vörurnar, slitnar neon sokkarbuxur, minnstu pils í heimi og maaaargt fleira....í einum gagnfræðiskóla. Mjög gaman að fylgjast með þessu...en ég er alveg WAY off í kæðaburði þegar maður ber sig saman við hópinn og flest allir aðrir utan að komandi líka...en tja fjölbreytni er bara af hinu góða;)

Miss Hildz in da Hás

laugardagur, október 15, 2005

LOKSINS LOKSINS

...er bíllinn Willy komin heim á ný.
Eigendurnir eru hæstánægðir að fá hann aftur, eftir mikinn söknuð!

miðvikudagur, október 12, 2005

Skufurdeni

Sit við tölvuna og er að gera allt annað en að gera það sem ég á að gera. Sem er axjúallí fimmtán munnlegar dönskuæfingar fyrir dönsku nemendur + útskýringu á afhverju í ósköpunum ég hafi valið eina aðferð fram fyrir aðra.
Er ég að mygla jú mæt ask?...alveg gersamlega....er búin að vera að pína mig við þetta tvo kvöld í röð. Veit ekki afhverju þetta er mér svona erfitt...en þetta er alveg ekki "my cup of tea"(eins og ágætir aðilar nota) þessa dagana. Fimm stykki=ok...fimmtán=killer!

Löng vinnuhelgi framundan....og svo bara vettvangsnám næstu 5 vikurnar. Svoldið magnað að hugsa til þessa að þegar ég er búin þar þá eru bara nokkrar vikur í jól. Dröfn, kemuru ekki örugglega heim um jólin??!

Svo er það bara spurning hvort maður skelli sér e-ð út í heim svona stuttlega fyrir jólin. Það er ýmislegt á teikniborðinu...um að gera að sýna smá spontantheit í þessu lífi;)

Skufurdení...alveg klassa orð...(mannstu Hanna? :)

þriðjudagur, október 11, 2005

sunnudagur, október 09, 2005

Ein spurning...




Ætlar þú á Airwaves?
Ef já....á hvaða tónleika?

Já - allir að skrifa!

föstudagur, október 07, 2005

Helgin framundan

Jæja fólkens...
Ég hef ekki verið dugleg að skrifa hingað inn...en ekki örvænta...þið getið alltaf bara hringt í mig;)

Ég er búin að ákveða lokaverkefni. Það er reyndar svoldið viðfangsmikið svo ég þarf í raun að byrja fljótlega á því þó það eigi fyrst að skilast 2.maí. En mér líður 300 sinnum betur eftir ákvörðunina og skráningu verksins. Dröfn þakka ég mikinn hlýhug frá Myrtle...:)

Í kvöld ætlar maður vonandi að kíka á Sean Price á Gauknum( ásamt fleiri sniðugum).
Ætluðum að skella okkur í kokteil-partí á undan hjá innfluttningsfyrirtækinu sem TJ verslar við, en greyið vakti til 5 í nótt við að klára skólaverkefni og hélt sér ekki vakandi til að mæta. Þannig að ég sit bara hérna og blogga bara í staðinn. Ekki nenni ég að mingla ein við einhverja vindla/bumbu kalla;)

Heimsókn í Héðinsholtið á morgun...vonandi. Fer eftir því hvort við fáum (LOKSINS) bílinn okkar frá viðgerðargaurnum. Bíllinn hefur staðið einn og yfirgefinn fyrir utan verkstæði í Hafnarfirði í á 4 viku núna, ef ekki lengur. RUGL! Tveir plúsar í þessu hallærisdæmi, spöruðum bensín í mánuð og fengum fullt af hreyfingu (hef ekki hjólað jafn mikið síðan í DK í den).


Anywho hafðiði það sem allra best um helgina. I know Im gonna....

mánudagur, október 03, 2005

STRESS....

Ég verð bara að fá að pústa aðeins út....þann 17.október á ég að vera búin að ákveða hvað lokaverkefnið mitt á að fjalla um og að finna mér leiðsögukennara! Þetta er verkefni sem verður skrifað á næstu önn. Úff...og ég sem er að hugsa um allt annað eins og pælingar um hvað ég á að kenna þessum grislingum í 5 vikna vettvangsnáminu sem er eftir 2 vikur.
Hvurslags eiginlega pressa er þetta á auma námsmenn!!

Annars allt gott að frétta af mér....aðeins 3 mánuðir til jóla...ekki seinna vænna að fara að huga að því líka...úff enn meiri pressa;)

Jæja nóg í bili...have to go lie down;)

laugardagur, september 24, 2005

Boogie..

Langar að þakka vantaliljunum fyrir skemmtilgan OG mjög áhugaverðan "fund" á föstudagskvöldið. Það voru 5 meðlimir mættir, fengum höfðinglegar veitingar á Flókagötunni og frábært spjall. Það vantaði bara hana Dröfn okkar...sem var þó með okkur í anda...amerískum anda;)

Næsti "fundur" er bara pizzugillið hjá Harps og Hauk... :)

þriðjudagur, september 20, 2005

klukkeri...

Ég var að enda við að lesa hjá henni Harps að ég væri klukkuð. Ég sem hef einmitt verið að lesa nokkrar síður í dag þar sem fólk var að þessu klukki...og hugsaði einmitt djö...er ég heppin að lenda ekki í svona vitleysu:)
En viti menn Harpan er sér um sína..hehe
So here goes:
1.-ég elska saltstangir..get borðað þær tímunum saman...þanga til ég fæ brjóstsviða. Hef meira að segja þurft að henda pökkum til að hætta að maula þær.
2.-ég hef oftar en einu sinni fjárfest í rándýru líkamsræktarkorti og nýtt minna en 1/10 af því....ein ekki að læra af reynslunni!
3.-mér finnst afslappandi að þvo þvott
4.-eins og hún Harpa mín (gaman að komast að því svona) þá naga ég neglurnar..hef alltaf gert og virðist ekki geta hætt. Ósiður sem er ALLTAF í áramótaheitunum hjá mér...!
5.-mér finnst leiðinlegt að tala í gsm-síma...en hef samt gaman að því að spjalla í heimilissíma.

Hananú...5 useless facts um mig

Nú langar mig að klukka Birnu, Siggu Gyðu og ja bara þá sem lesa bloggið...þeir sem eru ekki með blogg geta bara sett það í kommentin...jebb

ath. að það er komið myndagallery á síðuna mína:)

Loksins nytt myndagallery!!

Jæja þá er komid nytt myndagallery...
Áhugasamir eiga endilega að kíkja á það.

Linkurinn er hérna aðeins neðar hægramegin á síðunni .

Ég er búin að henda einhverjum myndum inn og ætla að bæta fleiri við með tímanum!

Mikilvægt að muna--> Passwordið: nafnið mitt
Enjoy:)

mánudagur, september 19, 2005

Afmæli föður míns var haldið með pompi, potti og pragt á laugardaginn.
Ég hef ekki borðað jafn mikið í langan tíma...eða alveg síðan í Portugal;)
Fínt að fljóta svo um í nuddpottinum eins og blaðra þegar pása varð átinu með gestum og gangandi.Bústaðurinn er orðinn svo ferlega fínn að maður getur bráðum farið að skoða það að bjóða í bústaðarhelgar!

Nú er skólinn að drekkja manni í deadlines...og hann sem fór svo rólega af stað. ég reyni bara að vera dugleg og er í leiðinni að undirbúa vettvangsnámið. Ég fer í Hagaskóla og mun þar læra og kenna í 5 vikur. Það er ekkert stuttur tími í svona unglingaskóla...vona bara að maður komist lífs af:) Segi svona...þetta verður ábyggilega mjög skemmtileg reynsla!

Næsta föstudag er svo gilli hjá hinni nýbökuðu brúði Birnu í Grænuhlíð...spurning um að breyta nafninu Birna? Svona til að samræmast götuheitinu....ég sting upp á Anna!;) Ég er strax komin í stuð fyrir kvöldið....verður án efa sveitt geim..hehe

Jæja þarf að fara að ljúka upptökunum fyrir stuttmyndina mína...look out Eastwood!!

Hilsner Pilsner
-Hildzy

fimmtudagur, september 15, 2005

Afmæli afmælanna!

í dag hefur faðir minn náð þeim merka aldri fimmtugu. Ég óska honum innilega til hamingju með daginn og munum við fagna með honum næstkomandi laugardag í hinu glæsilega Héðinsholti!

Fimmtíufalt húrr!

sunnudagur, september 11, 2005

Helgin=>very nice

Sunnudagar eru yndislegir.
Gott veður og sól/enginn slappleiki/sund/Konditori Copenhagen/afslöppun og huggulegheit!!

Á föstudaginn brá ég mér út á lífið. Snæddum þrjár pæjurnar á Oliver, eftir að hafa komist að því að kl. 20:30 á föstudagskvöldi er of seint að ná sér í borð á Vegamótum. Það fór þó allt á besta veg. Maturinn á Oliver er ágætur..ég get amk. mælt með New York salatinu og það sem hinar voru með leit líka mjög vel út. Meðalaldurinn á staðnum var þó yfir mínum aldri fram undir miðnætti, þá fóru djammþyrst ungmenni að ýta eldra liðinu út. Við vorum í ágætis gír og hittum mikið að háskólaliði sem var að fagna hinum árlega degi skólans. Mjög gaman og mikil stemmning.
E-ð vorum við samt slappar í þetta skiptið og héldum, hálf þreyttar, heim á leið um tvöleitið.
Fíluðum okkur svoldið sem gamalmenniá tímabili þegar okkur fannst tónlistin og lætin svo há að við gátum ekki talað saman.

Veit ekki hvort það hafi verið þetta sem varð stemmingunni að falli en ég ætla að gefa Oliver umsögnina 4 bjóra-staður sem þýðir "verður að vera á fjórða bjór til að fitta inn í stemmninguna".

Gagnrýnandinn kveður í bili

Verslunarmiðstöðin internetið!

Ég er loksins að komast inn í þennan merka heim sem nefnist "netverslun". Var að panta mér frá einhverju fyrirtæki í Bandaríkjunum...ég verð samt að viðurkenna að ég er ekki alveg búin að losna við tortryggnina gagnvart þessu. Kannski er þetta fyrirtæki ekki einu sinni til og ég er að borga beint inn á reikning einhvers tölvudjúdda sem nennir ekki að vinna sér inn pening á heiðarlegan hátt!! Ég á allt of auðvelt með að ímynda mér hið versta...ekki hinn besti eiginleiki að búa yfir.
Ég er s.s. að gera tilraun og finnst frekar spennandi að sjá hvort þetta nái fram...

Im moving into the future......about time;)

fimmtudagur, september 08, 2005

The lost tourist..

Í dag gerðist ég túristi...maður gleymir alltaf hvað það er gaman að vera túristi þegar maður er hérna heima á Íslandinu en missir sig svo á myndavélinni þegar maður er úti í heimi.
Ég er í námskeiði sem heitir ljósmyndun og myndbönd í skólanum. Fyrir það þurfti ég að afla mér slatta af myndum til að vinna með þannig að ég labbaði bara niður að sjó og byrjaði að hleypa af. Það kom s.s. í ljós að leiðin sem ég valdi mér að fara var einstaklega túristavæn...það úði og grúði af ameríkönum við Sólfarið..svo rölti ég áfram á stígnum og varð að vara mig á túristunum sem höfðu leigt sér hjól í bænum og fengu útrás fyrir hátt verðlag hérna með því að reyna að miða á íslendingana sem áttu leið um stíginn. Þegar ég kom svo niður að höfn lenti ég í miðjum hóp af allra þjóða kvikindum sem voru á leið aftur í glæsilega cruise skipið sem kom þeim hingað. Munaði engu að ég þvældist með þeim ofan í ferjubátinn þar sem ég var með myndavélina í allar áttir....

Kannski að það sé sniðugt að skella sér á svona cruise...með sundlaug, diskóteki, bíói og matvöruverslun.
Það yrði bara alveg eins og að vera heima hjá sér...eini munurinnn er kannski sá að þú sefur með björgunarvesti undir höfðinu.

Jæja ætla að fara að prenta út myndirnar af túristunum og setja í ramma...!

þriðjudagur, september 06, 2005

Brrr

E-ð segir mér að það að blogga sé ekki jafn hip og kúl eins og það var hér fyrir sumarfríið...
Það er í rauninni skiljanlegt þar sem íslendingar eru svona dellu fólk sem endist yfirleitt stutt í vitleysunni. Kannski bara kominn tími á e-ð nýtt...spurning hvað það verði...?!! Það er allt hægt...bara ímyndunar aflið sem ræður. Mér aftur á móti dettur ekkert funky í hug...kannski alveg eins gott að ég sé ekki "græju" hönnuður.

Another thing...hvenær ætlar fólk að hætta að segjast vera ólétt...þetta kemur úr öllum áttum. Ætli þar sé komið nýja trendið?Börn og brúðkaup í einum pakka....? Þetta er ótrúlegt, um leið og mér finnst farið að hægast um í óléttu-tilkynningunum kemur önnur sprengja.....!! Er þetta ekki farið að verða svoldið þreytt.. ;)

Annars er þetta bara kurteisis heimsókn á bloggið því að þrjóskan í mér hefur ákveðið að láta bloggið ekki deyja út þó það sé ekki lengur hip og kúl að skrifa tilgangslaust röfl á netið...

Enn eitt atriði...en og aftur rafrænar hamingju óskir til Birnu og Andra sem eru núna í þessum rituðu orðum "sippin´champagne ´n relaxin´on da beach" á Ítalíu. Hafið það gott kæru brúðhjón og by all means EKKI nota tímann til að kíkja á bloggið mitt á meðan þið eruð úti!!!:)

Nóg í bili

Psycadelic penguin kveður

mánudagur, september 05, 2005

whats this world coming to??

Jæja gott fólk...heimur versnandi fer!

Ég horfði á myndina "war of the worlds" í gær og verð að viðurkenna að það sem ég sá þar minnti mig óneytanlega á það sem er að gerast í New Orleans þessa dagana...kannski fyrir utan geimskrímslin og geimförin með leysigeislabyssunum.
Fólk að flýja, heimili í rúst og bílar eins og hráviði út um allt.
Get ekki ímyndað mér að vera stödd þarna núna og upplifa allt þetta. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá fréttir með myndum af svæðinu var að þetta væri eins og handritin sem kvikmyndir væru að moka inn peningum á. Svo verður þetta svo súrrealiskt þegar kvikmyndirnar eru færðar yfir á real-life aðstæður. Ekki að flóðbylgjan í Asíu hafi haft minni áhrif á mann...en þar sem maður er ofdekraður evrópubúi sem hefur það allt of gott þá er það svolítið ógnvekjandi að fylgjast með hörmungunum færast nær manni....scary!

Og er það bara ég eða er þetta einhver trend núna í öllum löndum að kveikja í hinu og þessu og brotlenda flugvélum í stórum stíl?!

Ég hef ekki gott af því að horfa á svona bíómyndir...vissi að ég hefði átt að halda mig við gríndeildina!

sunnudagur, ágúst 28, 2005

HoMe sweet HoMe...

Ég er komin HEIM á ný eftir brill ferð....
Höfðum það rosalega gott í Köben líka..veðrið var fínt og fullt af heimsóknum og djammi á dagskránni ásamt smá auka verslun þó að fjárráðin hafi minnkað verulega síðan í Portugal.
Í gærkvöld (laugardag) borðuðum við og skemmtum okkur með gömlum højskole-félögum sem var ferlegt fjör og upplifði maður svolitla flashback stemmningu frá því þegar við bjuggum öll undir sama þaki í den. Gleði!

Á leiðinni heim í dag ákvað ég að ég taka mér pásu frá flugferðum amk. fram að jólum/áramótum þar sem þolinmæði mín til að sitja í flugvélum hefur farið minnkandi. 4 í flug á 2 vikum er of mikið fyrir mig. Ég segi pass...

Skóli á morgun...I am very excited about that!!

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Sma stelpu-humor!!

Words with two Meanings

1. THINGY (thing-ee) n
Female... Any part under a car's hood.
Male..... The strap fastener on a woman's bra.

2. VULNERABLE (vul-ne-ra-bel) adj.
Female.... Fully opening up one's self emotionally to another.
Male.... Playing cricket without a protector.

3. COMMUNICATION (ko-myoo-ni-kay-shon) n.
Female.... The open sharing of thoughts and feelings with one's
partner.
Male... Leaving a note before taking off on a fishing trip with the
boys.

4. COMMITMENT (ko-mit-ment) n.
Female... A desire to get married and raise a family.
Male...... Trying not to hit on other women while out with this one.

5. ENTERTAINMENT (en-ter-tayn-ment) n.
Female.... A good movie, concert, play or book.
Male...... Anything that can be done while drinking beer

6. FLATULENCE (flach-u-lens) n.
Female.... An embarrassing byproduct of indigestion.
Male...... A source of entertainment, self-expression, male bonding.

7 MAKING LOVE (may-king luv) n.
Female...... The greatest expression of intimacy a couple can achieve.
Male.. Call it whatever you want, just as long as we do it.

8. REMOTE CONTROL (ri-moht kon-trohl) n.
Female.... A device for changing from one TV channel to another.
Male... A device for scanning through all 75 channels every 5 minutes.


AND;


He said . . . I don't know why you wear a bra; you've got nothing to
Put in it.
She said . . . You wear pants don't you?

He said . . .... Shall we try swapping positions tonight?
She said . . That's a good idea - you stand by the ironing board while
I sit on the sofa and fart!

He said. What have you been doing with all the grocery money I gave
you?
She said . ....Turn sideways and look in the mirror!

He said . . .... Why don't you tell me when you have an orgasm?
She said . I would but you're never there.

He said . . Why did the man cross the road?
She said. He heard the chicken was a slut.

He said . ..... Why don't women blink during foreplay?
She said .. . . They don't have time

He said . . How many men does it take to change a roll of toilet paper?
She said . . We don't know; it has never happened.

She said...What do you call a women who knows where her husband is
Every night?
He said . . . A widow.

He said . .. . Why are married women heavier than single women?
She said... Single women come home, see what's in the fridge and go to
bed.
Married women come home, see what's in bed and go to the fridge.

Bom Diaz!




Jæja nú erum við í Köben á ný eftir yndislega ferð til Portugal.
Mig langar að þakka öllum sem sendu mér símkveðju á afmælisdaginn minn...ég var bara með slökkt á símanum alla ferðina fyrir utan smá stund á afmælisdaginn þannig að ég gat ekki svarað sms-unum. En takk kærlega fyrir hugulsemina:)!

Ferðin var s.s. mjög vel heppnuð þrátt fyrir þessa sorglegu skógarelda sem blossuðu upp allsstaðar í landinu meðan við vorum þarna. Sáum eitt stykki RISA bruna þegar við vorum að keyra á hraðbrautinni aftur til LIssabon.
Við túristuðumst í LIssabon í tvo daga áður en við fengum bílaleigubíl og keyrðum norður. Gistum fyrstu nóttina í háskólabænum Coimbra(sem er einmitt bær sem varð í mikilli hættu vegna skógarelda tveimur dögum eftir að við vorum þar) svo krúsuðum við áfram til Porto sem er mjög skemmtilegur bær að koma til. Eftir eina nótt þar héldum við svo aftur til Lissabon.

Ég nenni ekki að skrifa meira um ferðina núna...ætla að reyna að nýta góða veðrið hér í Köben aðeins.

Hafðið það nú gott!

Senhora Hildz

sunnudagur, ágúst 14, 2005

Chao bellisimo;)

Jæja pökkun í gangi og ekki sé ég fram á að kveðja(=monta mig) á morgun áður en ég fer..þess vegna ætla ég að nota tækifærið núna og segja au revoir og allt það...
Á þriðjudag mun ég tralla um götur Lissabon í 30 stiga hita...hugsið til mín:)
Ég ætla að versla eins mikið og ég get þegar tækifærin gefast þarna úti...verst að ég kann ekki að segja: "ég ætla að fá þetta, þetta, þetta og þetta...." á Portúgölsku. But I´m að kvick learner u know!
Svo munum við auðvitað skoða okkur um inn á milli...jafnvel keyra til Porto í vínsmökkunina og allt hitt!

Eftir erfiða verslunar/skoðunar viku í Portugal mun ég hvíla mig vel í Köben...lítið verslað þar, þar sem ég treysti því að vera búin að versla allt í Portugalos. Sjáum samt til með það.

Jæja kæru vinir montstundin(kveðjustundin) er búin og hlakka ég til að sjá ykkur hress og kát þegar ég sný aftur!

One luv my homies
Hildz

föstudagur, ágúst 12, 2005

Thanx!

Mig langar að segja "takk kærlega fyrir mig og TJ" við ykkur sem mættuð í kaffiteitið í gærkveldi. Gaman að þið skilduð koma:) Við afmælisbörnin vorum hæst ánægð með þetta kózy-köku-kvöld.

Daninn minn er farinn til Köben og verð ég ein í kotinu um helgina...ég fer fyrst af stað á mánudaginn en þó ekki fyrr enn að ég hef farið í hár-fíniseríngu hjá mömmu Guðrúnar. Maður verður nú að vera svoldið stælí í Portugal!!

Seinasti dagurinn minn í vinnunni á leikskólanum var í dag...mjög sorglegt en þó undarlega ágætt að vera "frjáls" á ný;) Krakkarnir átta sig auðvitað ekkert á því að maður sé ekki að fara að mæta á mánudaginn...ég ætla samt rétt að vona að þau sakni mín örlítið þegar þau fatta að maður sé ekki á staðnum...ég er náttúrulega búin að vera svo drullu skemmtileg við þau í allt sumar, skiluru. :)

Dröfn flaug frá okkur í dag til Ameríkunnar...það er líka mjög sorglegt...ekkert meir um það að segja nema kannski við munum sakna þín kleinuhringurinn okkar...múhahaha;)

3 dagar í Köben
4 dagar í Portugal

Jeij!

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Solarlag við sumarbustaðinn!




Jæja!
...ég ákvað að skella inn einni mynda af sólarlaginu séð frá sumarhúsi foreldra minna um helgina....

Nú fer að styttast í sólarlandaferðina mína.....minna en vika í brottför!
Þessi vika er samt vel pökkuð af ýmiskonar uppákomum. Var að enda við að kveðja listaspíruklúbbinn minn eftir mikið og gott át....sem er jú einu sinni tilgangur matarklúbbsins;)
í seinustu viku spísuðum við vatnaliljurnar saman og slúðruðum um allt og ekkert...yndislegt!
Á fimmtudaginn 11. er svo afmælisboð fyrir afmælisbarn dagsins hann TJ (og reyndar mig líka, þar sem Portugalir munu fagna mínum afmælisdegi með mér )...
SJÆSE...ég verð orðin hnöttótt þegar ég loksins kemst út í Portugalssólina!!

Þeir sem eru lausir/ar næstkomandi fimmtudagskvöld um kl. 20:00 eru meira en velkomnir/ar í kaffi og "með því"...ég ætla ekki að telja upp nöfn en þið vitið hver þið eruð;)

Sáumst með Hildi Nótt og TJ Dag

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Baugur að taka yfir Danmörku???

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1151986

Hvað eiga þessir menn eiginlega mikinn pening??!
Þeir þurfa líklegast aldrei aftur að borga fyrir gjafir handa eiginkonunum þegar þeir eiga tvær stærstu og þekktustu stórverslanir Danaríkis ásamt öllu hinu....
Jón Ásgeir hefði bara átt að stinga undan Henrik Prins og ná sér í Margréti drottningu, þá hefði hann amk. kosti greiðan aðgang að valdinu og peningunum á einu bretti.

"Yes, we own all of Iceland and Brittain now...oh yes and nearly all of Denmark".
Þetta er ekki heilbrigt...oder was?!!

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Verslunarmannahelgin min...



Island sækjum það heim...JAHA!!

mánudagur, ágúst 01, 2005

Portugalos...here i come



Fann mynd af hótelinu okkar í Lissabon, 4 stjörnur-ætti ekki að klikka....ég ætla svoleiðins að njóta þess að eiga smá útlandafrí (aka. ekki Danmörk) áður en skólinn byrjar. Ætlum að leigja bíl í 3 daga og keyra upp í fjöllin, skoða vínekrur og mögulega að skella okkur niður á Algarve ströndina.
Já maður, það er komast mynd á fríið okkar...Köben verður svo bara Köben as we know it-family and friends...í heila viku eftir Portugalos.

More later frá Portugaldur

miðvikudagur, júlí 27, 2005

Sunshine reggae

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það er alls ekki svo slæmt að vera á Íslandi á sumrin!
Það er bara eðal sól dag eftir dag....what are the odds?!! Svo er maður búin að gera svo mikið skemmtilegt með skemmtilegu fólki....

Ég var að enda við að gefa upp visakortsnúmerið mitt fyrir Portúgalsferðinni minni. Þar mun ég fagna afmælisdeginum mínum í ár... Það s.s. lítur út fyrir að það sé meiri sól og blíða á dagskránni hjá mér í ágúst. Jafnvel eitt stykki sjóferð á stærðar banana eða fallhlífarstökk;) Svo er það bara Köben í viku eftir Potúgalos...þetta getur varla klikkað..!!

Verslunarmannahelgin mín fer í túristabransann þar sem tengdó og vinkona hennar eru hér í heimsókn. Ég tel líklegast að við höldum suður og skoðum jökulsárlón og fleira þessháttar. Mér finnst það fínt þar sem ég hef aldrei komið þangað sjálf. Ég er hræðilegur illi þegar kemur að því að ferðast um ísland....en ég er að vinna í málinu.

Ég byrja að vinna aftur á leikskólanum á þriðjudaginn og verð þar í 2 vikur þanga til við förum út. Áður en við förum út ætla ég samt að halda upp á afmælið mitt (og TJ, þar sem hann á afmæli 11.(vika á milli))...læt ykkur vita bráðum hvenær hátíðarhöldin fara fram;)

Er farin í sólbað...

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Sumar-stemmning!

Ég fíla afmæli, þau eru e-ð svo skemmtileg....takk fyrir boðið í kvöld Arna mín og enn og aftur til hamingju með tuttugasta og fjórða afmælisdaginn.
Vill svo heppilega til að mitt afmæli er eftir akkurat 28 daga...þvílík tilviljun!!

Þessa dagana hef ég verið iðin við að njóta mín í miðborginni...varla annað hægt þar sem veðrið er hrein snilld og ég er í "semi sumarfríi".
Ég hef bæði farið í húsdýra/fjölskyldugarðinn(vinnutengt) og á kaffi Flóru í Grasagarðinum(mæli með því!). Svo lagði ég bíl undir fót og skellti mér á Árbæjarsafnið í hrað-skoðun-> klukkutími í lokun þegar við mættum á staðinn.
Keyrt í sumó og farið í pottin, borðað og heim aftur...á innan við tveimur tímum.
Kaffihúsa-huggulegheit á Austurvelli í sólinni og snætt kvöldverð utan dyra á ágætis veitingastað.
Farið út að skokka um morguninn í sól og blíðu(that never happens!!..ekki sólin og blíðan heldur skokkið!)

Hversu mikið meir getur maður beðið um þegar tekið er tillit til þess að maður er á Íslandi en ekki erlendis?

Alveg hreint wúnderfúl:)

laugardagur, júlí 16, 2005

Madagascar!!
Ég ætla svo að sjá þessa bíómynd...
hver þorir að hleypa sínu innra barni út og koma með mér??

mánudagur, júlí 11, 2005



Ég vildi óska að þetta væri málið í dag...en nei rigning og aftur rigning.
Minnz er veikur og þarf að hanga heima það hefur sjaldan verið jafn óspennandi og núna þar sem ég er ekki að nenna að vera bara heima. Langar miklu meira í vinnuna. Krakkarnir eru svo mikil yndi:)

Ýmislegt skemmtilegt búið að ganga á í seinustu viku...með áherslu á mikið af góðum mat/kökum:)

Hitti hann Kjarra góðvin okkar Kvennóstelpnanna. Við fengum heimboð í nýju funky íbúðina hans (loksins) og var Kjarri samur við sig þegar hann hélt uppi stemmningunni á laugardagskvöldið ásamt félugum. Mjög stór og flott íbúð á besta stað...allt í sixty´s-stíl hjá kallinum. Við reyndum að plana skólafélaga-hitting en strönduðum á að Óli pimp er fjarverandi fram að jólum og Kjarri ekki viss um hvort hann þyrði að vera einn með fríðum flokki kvenna:)

Brúðkaup næstu helgi...en ekki það að ég verði með í gleðskapnum...í þetta skiptið fæ ég að sitja heima og passa brúðarbarnið...það er svo sem fínt líka. Komin tími til að ég kynnist þessari nýju litlu frænku minni að ráði:)

Aldrei dettur mér neitt sniðugt í hug þegar í sit fyrir framan þessa tölvu og held ég kenni veikindunum um í þetta skiptið..."ég er með óráði" hljómar vel....

Sendi kveðju til Siggu...útfrá lýsingunum að dæma vildi ég óska að ég væri þarna hjá ykkur (..í smá tíma amk.)
Au revoir french frie!!

Singin´in da rain
Hildz

sunnudagur, júlí 03, 2005

Tomleg en fin helgi

Þetta hefur verið ansi mikil palli var einn í heiminum helgi hjá mér.
TJ í Köben, Sigga systir í Frakklandi og foreldrarnir fyrir austan. Hinir fóru flestir út á land eða voru að vinna.
Ég átti samt mjög góðar quality stundir með Dröfn og Oddnýju ásamt Bergþóru. Smá shopping á útsölunum og svo djamm í gærkveldi með tilheyrandi fjöri.

Þessi sunnudagur er líka búinn að vera ansi hægur en góður. Vaknað seint og það eina sem fékk mig til að fara út úr húsi var óstjórnleg löngun í pizzu. Verst að þegar maður er svona al einn heima neyðist maður til að gera allt sjálfur...

Anywho þá styttist í spennandi tónleika og svo er gomma af afmælum og hittingum framundan...ekki slæmt.
Eigið góða viku alle sammen...

sunnudagur, júní 26, 2005

Alltof stuttar helgar!

Jæja enn ein sumarhelgin búin og það er barasta að koma júlí...jólin eru bara á næsta leyti;)
Loksins er þessi helgi búin. Þrátt fyrir langdregna vinnuhelgi komst ég á "ættarmót"á laugardagskvöldið. Já þetta er önnur helgin í röð sem ég fer á fund fjölskyldunnar. í þetta skiptið var það bara hin fjölskyldan sem hittist í Kjósinni. Mikið grillað og og sungið í rigningunni.Mikið fjör, mikið gaman..yes!

Ég kláraði að horfa á Desperate housewives seríuna í kvöld....ég er alveg hooked, get ekki beðið eftir næstu seríu. Þetta eru allt svo miklar kjarnakonur í þessum þáttum. Ég væri alveg til í að prófa að búa í svona flottum húsum, vera í mega formi, forrík, vera heimavinnandi og hafa óendanlegan tíma til að slúðra um nágrannana...samt frekar ólíklegt að ég nennti þessu í lengri tíma.

Ég er byrjuð að láta mig dreyma um næstu helgi. Ætla að gera e-ð grúví. Mögulega í stutta útilegu með gömlum vinum. Látum "gömlum" liggja á milli hluta! Það verður náttúrulega bara fjör, grill og gaman. Hef ég nefnt áður hversu hrifin ég er af grillum og grillmat....ég myndi ábyggilega grilla 5 sinnum í viku ef ég nennti því:)
En mikið fjör framundan...þrátt fyrir að TJ sé á leið til KBH á fimmtudaginn...e-ð verður maður nú að gera til að stytta sér stundirnar...hehe!

Desperate Housewife
Helen Van Háteigsberg

fimmtudagur, júní 23, 2005

R u kidding me!

Vá hvað ég vorkenndi Bigga í Maus að hafa þessa Sylviu Nótt ofsækjandi sig. Ég held ég hefði fengið mér nálgunarbann á svona týpu. Þrátt fyrir að þetta sé með eindæmum leiðinlegur þáttur verð ég að viðurkenna að heimskulegheitin í þáttastjórnandanum fengu mig til að lyfta munnvikunum agnarögn, örfáum sinnum. Það er sko miklu meira en ég bjóst við af þessu sjónvarpsefni.

Þúst skiluru!

-snurf-

Jibbí ég get loksins sett in myndir...props til Blogger fyrir að gera e-ð fyrir Mac notendur!!

Strembin vinnuhelgi framundan...ég er strax farin að hlakka til mánudagsins.
Ég fæ s.s. ekki einn einasta frí dag í þessari viku. Oj, ég er svo dugleg, þrátt fyrir að ég sé ekki að nenna því....;) Fyrsta helgin í júlí verður tekin með trompi í staðinn. Hvað er nú fólk með á prjónunum fyrir hana??

Leikskólinn er að gera lukku...sumarhátíð á morgun með grilli og skrúðgöngu. Hvað er maður eiginlega að hanga í háskóla...það er á leikskólunum sem allt fjörið er!!
Jibbí ég get loksins sett in myndir...props til Blogger fyrir að gera e-ð fyrir Mac notendur!!

Strembin vinnuhelgi framundan...ég er strax farin að hlakka til mánudagsins.
Ég fæ s.s. ekki einn einasta frí dag í þessari viku. Oj, ég er svo dugleg, þrátt fyrir að ég sé ekki að nenna því....;) Fyrsta helgin í júlí verður tekin með trompi í staðinn. Hvað er nú fólk með á prjónunum fyrir hana??

Leikskólinn er að gera lukku...sumarhátíð á morgun með grilli og skrúðgöngu. Hvað er maður eiginlega að hanga í háskóla...það er á leikskólunum sem allt fjörið er!!

sunnudagur, júní 19, 2005

Alyndisleg helgi

Þessi þjóðhátíðar helgi var frábær. Sól, hiti og góð stemmning.

Ég skrapp stuttlega niður í bæ á föstudaginn til að ná mér í snuddu og blöðru. En skynsemin náði yfirhöndinni þegar á hólminn var komið, ég nennti ekki að halda á blöðru um allan bæ og svo mundu ég eftir því hversu slæmar svona snuddur eru fyrir hárið (flashback). Lét mér nægja kaffihús, sólbað og að horfa á fólkið. Um kvöldið var það grill og huggulegheit. Velkomin heim Edda:)
Laugardagur var sveitadagur.."ættarmótið" fór fram í Borgarfirðinum, á ekta fínerís bóndabæ. Við fengum brilliant veður og óðum í ánni, hlupum með kúnnum og kynntum okkur hegðun Bjórkollunnar(sérstakur fugl þar í sveitinni). Tala nú ekki um söngvagleðina bæði í singstar og "brekkusöngstíl". Allt í allt mjög vel heppnað mót.
Takk fyrir okkur Guðrún og Þór, við tökum minigolfið bara næst þegar við komum;)

Nú fer sunnudagurinn í að taka til, ganga frá útilegudótinu og að hangsa svolítið..
Perfect!

miðvikudagur, júní 15, 2005

Hamingju oskir...

Systir mín kær á afmæli í dag og óska ég henni til hamingju með 18 árin.
Hafðu það gott í kvöld gamla mín:)

mánudagur, júní 13, 2005

Ar ju biliving dis veðer??

Hversu gaman er að búa á Íslandinu í svona veðri. Very much so my friend!!

Ég verð brúnni og brúnni í framan m hverjum deginum þar sem við eru utan dyra öllum stundum í leikskólanum. Ég ætla ekki að kvarta þó ég haldi að ég hafi mögulega náð mér í vott af sólsting í dag.

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag sofnaði ég og var svo vakin af einhverju liði sem talaði dönsku fyrir utan gluggan hjá mér. Ég lít út og sé grúppu af síðhærðum drengjum berandi hljóðfæragræjur úr bíl í áttina að húsinu mínu. Þeir arka svo beint upp tröppurnar hjá mér (ég verð að viðurkenna að í svefnrofunum var ég ekki viss hvort ég hefði pantað þungarokksband heim). Grúppan hvar svo inn hjá nágrannanum (sem betur fer). TJ heilsaði upp á liðið á svölunum þegar hann kom heim og komst að því að þetta danska band hafði verið að spila hér á laugardaginn. Einnig komst hann að því að í íbúðinni næst okkur í hinu húsinu heldur sig frönsk heavymetal grúppa. What are the odds???!

Ég tók mig til og blastaði allan diskinn hennar Beyonce fyrir útlensku gestina okkar;)

sunnudagur, júní 05, 2005

Barnavagn oskast!

ekki fríka út strax.....mig vantar bara vagn að láni frá 9.júní til 16 júní vegna þess að frændi TJ og kona hans ætla að heimsækja okkur með hálf nýfæddan son sinn.
Endilega látið mig vita ef þið eigið einn góðan í bílskúrnum...ja eða þekkið einhvern sem getur lánað mér.

Danke schön:)

Island sækjum það heim!

Ég brá mér á Snæfellsnes í gær. Við ákváðum seint á föstudag að skella okkur og brunuðum úr bænum snemma á laugardagsmorgun.
Sólin skein allan daginn og ég er með vel rauðar/brenndar kinnar og nef. Við fórum upp að jökli. Þar var snjóbretta get-together. Búið að byggja park með öllu tilheyrandi. Við höfðum reyndar engin bretti með en héngum bara í sólbaði og nutum útsýnisins í staðinn.
Gistum i tjaldi á Arnarstapa og túristuðumst aðeins í nágreninu. Um kvöldið var svo grill og góðra vina hópur.

Svona á þetta að vera....meiri útilegur!

fimmtudagur, júní 02, 2005

Summer-Hildz

Sól og blíða alla daga!
Ég er svoleiðins að njóta góða veðursins með ærlsandi krakka í kringum mig allan daginn.
Sumarvinnan er s.s. byrjuð. Byrjaði í gær (miðvikud.) og ég er dauð uppgefin eftir tvo daga. Þarf samt að taka fram að ferðin okkar til Köben var æði en mjög krefjandi. Mikið að gera alla dagana. Gat lítið verslað vegna allskonar matarboða og hittinga. Svo skelltum við okkur á risa djamm á laugardagskvöldið. Þar voru skemmtiatriðin í spes kantinum þar sem ýmsir spiluðu..þar á meðal dama sem kallar sig Peaches og var með vægast sagt sérstakt show.
Borðaði mikið af góðum pizzum á verði sem ekki er hægt að miða við íslenskar aðstæður...þetta er eitt að því sem mér finnst best við köben...snilldar pizzur á 400 kr.-could life be any sweeter:)

Nú er maður komin heim í íslenska sumarið og sumarvinnuna. Ég sé samt ekki fram á rólegt sumar þar sem dagskráin fyrir helgarnar er óðum að fyllast.....ekki verra að nýta sumarið í fjör:)

miðvikudagur, maí 25, 2005

Denmark here i come!

Jæja....enn og aftur komið að ferð til Köben.
Ekki vera svona hissa...þið vissuð öll að ég myndi endurtaka leikinn;)

Við fljúgum um 16 leytið á morgun. lendum 21 í köben.
Stíf dagskrá hefst föstudagsmorgun með fjöri,prúttun og látum á risa útimarkaði með systkinum hans TJ.
Laugardagur í verslun,vini og djamm. Sunnudagur skírn og family-time.
Mánudagur...versla, vinir, grill og flug heim.

Wonderful Copenhagen...once again:)

Sé ykkur sjún*

mánudagur, maí 23, 2005

naaw...sætt!

http://www2.gamesville.lycos.com/html_poke/poke_penguin.htm

föstudagur, maí 20, 2005

Snappy Answer #5

A crowded United Airlines flight was canceled. A
single agent was rebooking a long line of
inconvenienced travelers. Suddenly an angry
passenger pushed his way to the desk. He slapped his
ticket down on the counter and said, "I HAVE to be on
this flight and it has to be FIRST CLASS." The agent
replied, "I'm sorry sir. I'll be happy to try to help
you, but I've got to help these folks first, and I'm
sure we'll be able to work something out." The
passenger was unimpressed. He asked loudly, so
that the passengers behind him could hear, "DO YOU
HAVE ANY IDEA WHO I AM?"

Without hesitating, the agent smiled and grabbed her
public address microphone. "May I have your attention
please," she began her voice heard
clearly throughout the terminal. "We have a passenger
here at Gate 14 WHO DOES NOT KNOW WHO HE IS. If anyone
can help him find his identity, please come to Gate
14."

With the folks behind him in line laughing
hysterically, the man glared at the United agent,
gritted his teeth and swore. "F*** you!" Without
flinching, she smiled and said, "I'm sorry, sir, but
you'll have to get in line for that, too."

miðvikudagur, maí 18, 2005

Hahaha...


Hahaha...
Originally uploaded by .:eyjan.
Man einhver eftir thessum dogum?Oh hvad vid vorum sæt!
Strakarnir virðast hafa tapad kúlinu þarna fremst...

Hæ ho...jibbi?

Af mbl.is

"Frítekjumark námslána afnumið"

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1139101


Er þetta góðmennska eða bara enn ein leiðin til að snúa á námsmenn og ná hverri krónu út úr þeim?
Mapur spyr sig...!

mánudagur, maí 16, 2005

Parampam tss....

Ótrúlega fín helgi sem einkenndist af nýju og skemmtilegu fólki, gleðskap, ást og hamingju.

Ég endurheimti foreldra mína frá frumskógum Afríku
Dröfn snéri aftur frá "Skjaldböku strönd".

Allt í allt góð helgi með góðu veðri.

Átveisla í kvöld...ekki veitir af...*hóst* :)

fimmtudagur, maí 12, 2005

Undarlegt nokk

Hvað á maður að segja þegar gömul kona kemur að versla hjá manni í blómabúðinni og byrjar að spjalla.
Segir þér fyrst að hún haldi að þú sért 14 ára (time for an extreme makeover!!?)
Svo þegar maður er að reyna að leiða það hjá sér...spyr hún hvaða skóla ég sé í og svarar þegar ég segi henni það "æ elskan afhverju ertu að gera þér þetta..". Ég svara þá að ekki allir geti verið sál-og lögfræðingar. Þá segist hún sjálf vera uppgjafar kennari.

Aha.....spurning um að endurmeta val á námi?!!
Það er ekki eðlilegt hvað allir hafa skoðun á þessu blessaða kennara starfi!

miðvikudagur, maí 11, 2005

Hugleiðing

Ok, Eva er flott og átti skilið að vinna...að mínu mati.

En eru fleiri en ég að velta fyrir sér því sem Tyra sagði þegar mynd af Yaya kom upp á skjáinn: " I thought: what is a picture of me doing up there" Auðvitað vill Tyra ekki að einhver yngri gella geti kóperað hennar lúkk. Þá er Tyra auðvitað fokin af launaskránni ásamt því að vera ekki jafn uniq og hún er spila sig....

Just a thought...go Eva!

Walking on sunshine!

fjúff....búin....GLEÐI!

þriðjudagur, maí 10, 2005

Eg losna a morgun....og það er ekki Hive að þakka!

Seinasta prófið á morgun....
ég mun greina danskar setningar eins og sérfræðingur á milli 9-12 á morgun.

woohoo!

sunnudagur, maí 08, 2005

Snappy Answer #4

A truck driver was driving along on the freeway. A
sign comes up that reads "Low Bridge Ahead." Before he
knows it the bridge is right ahead
of him and he gets stuck under the bridge. Cars are
backed up for miles. Finally, a police car comes up.
The cop gets out of his car and walks around to the
truck driver, puts his hands on his hips and says,
"Got stuck, huh?" The truck driver says, "No, I was
delivering this bridge and ran out of gas."

Sunny sunday!

Gæti veðrið verið meira anti-próf. Maður spyr sig!!

Gleðilegan mæðradag mæður landsins....mín mamma er í frumskógum Afríku ásamt föður mínum þessa dagana og þar af leiðandi missir hún af blómabreiðunni sem ég ætlaði að gefa henni. Just goes to show að maður á ekkert að vera á svona flandri þegar aðrir eru í prófum!
En ég ætla nú samt að vera indæl "tímabundið móðurlaus" stúlka og færa "tímabundið barnlausri" móður blóm...hehe;)

Íslenskan á morgun og svo er það danskan á miðvikudag. Á þriðjudag eru lokaskil á öllum hinum verkefnunum. Og svo er maður laus allra mála....í bili.

Blómavinnan hefst svo næstu helgi og fram að seinustu helginni í maí. Þá ætlar mín að taka sér "power slökunarferð" til Köben í 4 daga. Nánast hver mínúta er skipulögð með vinum og ættingjum. En þetta verður snilld....get ekki beðið!

Svo kem ég beina leið aftur heim og fer að spóka mig í sólinni í sumar (treysti á það) með grislingunum sem ég ætla að eyða sumrinu með.....

Poj poj í prófunum....eins og danir segja (=good luck:)

föstudagur, maí 06, 2005

Snappy answear #3

The cop got out of his car and the kid who was
stopped for speeding rolled down his window. "I've
been waiting for you all day," the cop said. The kid
replied, "Yeah, well I got here as fast as I could."
When the cop finally stopped laughing, he sent the kid
on his way without a ticket.

Jaw!

Mig skortir þetta vinsæla einbeitingar-gen þessa dagana.
Það ætti að banna próf svona seint að vori. Hafa þau í síðasta lagi í lok mars!
Veðrið úti er ekkert nema freistandi og svo kalla búðir bæjarins blíðlega á mig.
Sjálfsagi er málið....

ATH .Munið að fá ykkur "Blaðið" í dag...ekki bara eitthvað blað heldur the"Blaðið" !!! Skemmtilegt framtak þar á ferð með glæsilegu layout-i. Var einmitt stödd í prentsmiðju morgunblaðsins þegar fyrsta upplaginu var rent í gegn:)

fimmtudagur, maí 05, 2005

snappy answears #2

  Snappy Answer #2

A lady was picking through the frozen turkeys at the
grocery store, but couldn't find one big enough for
her family. She asked a stock boy,
"Do these turkeys get any bigger?" The stock boy
replied, "No ma'am, they're dead."

miðvikudagur, maí 04, 2005

Kenni profunum um!!

Ég er búin að reyna allt!
Mbl.is er skoðað í tætlur á hverjum degi, ég hef aldrei verið jafn upplýst um bæði heimsmálin OG slúðurmálin.
Ég er yfirleitt búin að renna gegnum ÖLL ný blogg fyrir hádegi.
Hef ætlað að halda mér frá Bloggernum en ég hef bara ENGA aðra afsökun eftir til að taka mér pásu frá lestrinum.
So I blog....maður er líka svo einn með þessum bókum sínum að maður er komin með hundleið á sjálfum sér...strax og ég er ekki einu sinni búin með EITT próf....úff þetta á eftir að vera átakanleg helgi!!

Spurning: Hvort er betra próf snakk?
-djúpur, tromp, doritos, rolo og æðibitar.
eða
-epli, bananar, gulrætur,popp og cheerios í bolla.

Ég er búin að prófa bæði en hef ekki alveg komist að niðurstöðu ennþá. Gott að það eru ennþá 4 dagar eftir fyrir rannsóknarvinnu.

Skrapp á bókasafnið í skólanum í morgun..ætlaði þvílíkt að taka á því. Hitti Guðrúnu þar í svaka stuði. Hún ætlaði víst að dúndra af einu stykki ritgerð þar á "no time". Ég taldi mig einnig hafa möguleika á að dúndra lærdómnum af í eitt skipti fyrir öll. Heyrðu kellurnar í afgreiðslunni voru svo háværar að ég var komin heim um hádegi...varla búin að lesa neitt af viti.
Held mig bara heima í lærdómnum framvegis....

Jæja þetta var ágætis pása...ég ætla að halda áfram að kynna mér læsi og lestranám ungra barna.

Þema- "snappy answears"

Já ok ég er ekki 100% hætt ennþá, en samt að mestu leyti.
Ég ætla að vera smá þema og pósta einni stuttri sögu á dag...fylgist með;)


Snappy Answer #1


A flight attendant was stationed at the departure
gate to check tickets. As a man approached, she
extended her hand for the ticket, and he
opened his trench coat and flashed her. Without
missing a beat she said,
"Sir, I need to see your ticket, not your stub."

mánudagur, apríl 25, 2005

Blogg ahugaleysi

Ég er alltaf að verða þreyttari og þreyttari á bloggi...bæði mínu og að lesa annara (þó svo að þau séu mörg ansi skemmtileg).
Fyrir sumarið ætla ég að leggja niður bloggun með öllu og nýta tímann í annað en tölvuhangs.
Ætla amk. að prófa það og sjá hvort að heimur minn hrynji.

Þannig að nú set ég á "pause" í bili
Ykkur er samt velkomið að skilja eftir skilaboð í kommentunum.

Ég segi bara hafiði það gott í sumar
(sérstaklega við þau ykkar sem ég heyri aldrei í nema í nördheimum)!

miðvikudagur, apríl 20, 2005

nyr timi fer i hönd..

..GRILLTÍMINN!!!
I luuuuv it.
Það er sko öllu fleygt á grillið sem nálægt er...mmmm
Ætla að halda grillboð í sumar...ekki spurning.

Gleðilegt sumar kindurnar mínar!

p.s. eruði búin að sjá auglýsinguna með svefnkindunum??
Mér finnst hún æði.
Leiðinlegt að ég skuli aldrei kynnast þeim...sofna yfirleitt áður en höfuðið snertir koddann( sjö, níu,þrettán:).

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Friends...

...er og verður mesta snilld nokkru sinni.

Var enn og aftur að horfa á þáttinn "the one with the stoned guy", hann er lang besti þátturinn að mínu mati.
"Grab on to those suger O´s fellas"....ég fæ alltaf magakrampa af hlátri.
Margar góðar stundir sem ég bind við akkurat þennan þátt.
Good times...ah...hehe...ah:)

sunnudagur, apríl 17, 2005

Svei mer þa...

...helginni var vandlega varið í leti og tiltekt, fyrir utan almennan vinnutíma.

Ég fékk nýja "workout" skó beint frá ammmeríkunni í dag (ásamt ýmsu öðru spennandi) og sé fyrir mér í hyllingum alla kílometranna sem þeir eiga eftir að flytja mig. Takið eftir að ég skrifa "í hyllingum", því þessir kílometrar halda sig líklegast að mestu leyti þar.
Hún móðir mín sagði mér að ég hefði örugglega hagað mér eins og krakki í nammibúð ef ég hefði verið með í þessu búðarrápi. Ég efast alls ekki um það.
Það er líka alveg komin tími á að Ameríka fái loksins að kynnast the one and only Hildur.
Spurning um að ég fari á svona official tour um ríkin sem professional verslari....kannski kaninn skilji það sem professional wrestler og myndi þá borga undir mig ferðina.

Draumar eru góðir fyrir sálina....

laugardagur, apríl 16, 2005

Menningaleg i meiralagi

Ég er búin að vera ofsalega dugleg í kvikmyndunum upp á síðkastið.

Ég er núna búin að sjá 3 myndir á kvikmyndahátíðinni í Hásk.bíó ásamt Garden State(sem ég held að tilheyri ekki hátíðinni), Napoleon Dynamite og Million Dollar Baby.

Menningamyndirnar eru:
-Maria Full of Grace: mér fannst hún góð
-The Motorcycle Diaries: heilluð
-I Heart Huckabees: twisted en góð

Ef einhver þarf review þá látið mig bara vita...;)

Langar svoldið að sjá: Beyond the Sea, SpoungeBob Squarepants, Et Hål i mitt hjarta....ja og fleira...

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Meðmæli...

Amos Lee er snilld.
Hann er næsta Norah Jones (en þó karlkyn)
Mæli sterklega m gæjanum
úff...

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Solin að standa sig!

Ótrúlega ánægð með veðrið í augnablikinu.
Ef við höldum þessu svona ásamt því að hækka hitatölurnar þá erum við komin með drauma-sumarið.

:) :)

Ætla að bregða mér á bíó í kvöld með henni Birnu...ja eða það held ég...verður spennandi að sjá hversu margar við endum með að verða:)- The more the merrier!

mánudagur, apríl 11, 2005

By the way..

..ég fann spólu frá Peysufatadeginum um daginn.
Það er hefur sko mikið vatn runnið til sjávar síðan þá.
Þetta var ansi leiðinlegt og langdregið myndband með okkur dansandi þjóðdansa í slowmó um allan bæ en þó var hægt að skella upp úr hér og þar vegna útlits og útbúnaðar fólks ásamt góðum minningum sem endurvöktust...

Spurning um að skella þessu á við tækifæri og hóa í vatnaliljurnar?
Hvað segiði Gunna frá Stöng, Sigríður úr Efra Koti, Hallgerður af Saurbæ og fleiri....?

Got to get one of those!

tekið af Mbl.is:

"Vekjaraklukka sem hleypur í felur

Þessi vélknúna vekjaraklukka á hjólum hringir og skýst síðan í felur þannig að eigandinn verður að fara á fætur og finna hana til að slökkva á henni. Gripurinn er uppfinning Gauris Nandas, framhaldsnemanda við Tækniháskólann í Massachusetts (MIT) í Bandaríkjunum. Hann kallar tækið „Clocky“."

Held að þetta verði afmælisgjöfin í ár.
Vá hvað maður yrði morgunfúll af því að eltast við svona kvikindi á hverjum morgni.
(Kvennaskólafólk=no comment on that last thing thank u) ;)

laugardagur, apríl 09, 2005

Fjolublair dagar...

Laugardagurinn minn varð í einu orði "not as expected"
Hófst snemma á símtali frá systur minni sem venjulega hringir ALDREI fyrir hádegi.
Við tvær plönuðum date upp á slysó innan nokkra mínútna.
Við höfðum það huggulegt með hjólastól, x-rays og fleira í morgunstemmningunni.
Hún neitaði gipsinu. Harður nagli.
Við héldum heim með hálf brotið tásubein.
Harður nagli=harður miðnætur "hlaupari".

Kvaddi foreldrana sem voru á leið til fyrirheitnalandsins. Ameríka.

Eftir gipsstofuna var leiðin bara niður á við fyrir mig með hausverk dauðans og kuldaköst. Kannski bæklingur, sem ég greip á biðstofunni, um mígreni hafi haft áhrif.
Var að vakna núna.Tel að klukkan sé 20. Líður betur.

Kvöldið óplanað.

Gærkvöldið var mjög kósí. Matur á Pottinum og pönnunni, sem kom ágætlega á óvart.
Pool á Gauknum þar sem við TJ skiptum á milli okkar tveimur sigrum. Mikið af spes fólki þar fyrri hluta kvölds.
Kíkt við í partý hjá Örnu. Mikið rökrætt um heimsmálefni.
Bustaði nokkrar rímur á ískápinn áður en við héldum heim.

fimmtudagur, apríl 07, 2005

french frie!

Oh my le godskí...
ég var að koma heim af Edith Piaf og verð að segja að mér finnst hún alveg brill.
Gleymdi mér alveg í frönsku stemmningunni og oui oui-inum.

Þegar ég var lítil og kom heim úr fyrstu utanlandferðinni minni, sem var til París og Andorra, þá lýsti ég því hátíðlega yfir að þegar ég yrði stór myndi ég sko:
a) tala frönsku
b) giftast franskara
c) flytja til Frakklands

Hver veit nema að ég bara hrindi þessu plani í framkvæmd.

Je ne regrette rien....lala
Il est malade og fleira þesslegt

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Desp.Housew. rokka!

Af mbl.is:

"Framleiðendur sjónvarpsþáttanna Aðþrengdar eiginkonur, sem nú njóta mikilla vinsælda, afþökkuðu tilboð söngkonunnar Britney Spears um að koma fram í gestahlutverki í þáttunum. Kváðust þeir telja að ef Britney birtist í þáttunum myndu þeir missa aðdráttarafl sitt."

Ég fíla ekki Britney!

mánudagur, apríl 04, 2005

Spriklari dauðans

Já ykkar einlæg er orðin mikill spriklari.... varð að endurtaka þetta ef einhver skyldi hafa misst af því áður.

Í dag mætti frökenin í Klósettsetrið í Laugardalnum og púlaði þar í 1 og hálfan klukkutíma!! Meira að segja þeir sem búa þarna hafa ekki verið svona lengi....(tel ég mér trú um). Oj hvað ég er ánægð með mína. Tel varla þörf á að mæta aftur næsta mánuðinn:)

Á laugardaginn var stofnaður einstakur matarklúbbur, sem ekki hefur fengið nafn ennþá. Það var haldið upp á stofnfundinn með pompi og prakt.....svo miklu pompi að næstum gleymdist að borða;) Eftir mikið spjall um yfirnáttúrleg fyrirbæri( unmræða sem virðist eiga við alls staðar) og nokkrar "Lestir" var haldið í bæinn með fylgdarliðið. Er über ánægð með framtak klúbbsins og hlakka til þemakvöldanna...sem eru yet to come.

Hún Guðrún Anna ofurgella fagnaði "litlumþstór" afmælisdegi um daginn og er núna komin í hóp hinna merku gamalmenna sem stunda nám í Kennó...haha...enn og aftur til lukku og þú ert automatiskt komin með V.i.P. í "litla-stór" afmælið mitt.

Dröfn heldur áfram að koma á óvart....þó er hún ekki á landinu! Stattu þig nú vel í brúnkunni og krónísku dýfingunum!

jæja meira af æsispennandi updates later....

þriðjudagur, mars 29, 2005

Einn sjens enn....

Fannst þetta hilarious:

"Handbók drykkjumannsins"

Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fölur og tær.
Orsök: Glasið er tómt.
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.

Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju, bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fremri hlutinn á þér er blautur.
Orsök: Munnurinn hefur ekki verið opinn meðan þú varst að drekka EÐA glasið hefur verið sett upp við rangan andlitshluta.
Viðbrögð: Kauptu annan bjór og æfðu þig fyrir framan spegil. Drekktu eins marga og þörf er á til að byggja upp fullkomna tækni.

Vandamál: Fætur blautir og kaldir
Orsök: Glasinu hefur verið haldið á hvolfi
Viðbrögð: Snúðu glasinu við þannig að "opni" endinn snúi upp.

Vandamál: Fætur blautir og heitir
Orsök: Slæm stjórn á þvagblöðrunni
Viðbrögð: Labbaðu upp að næsta hundi, og kvartaðu svo við eigandann að hundurinn sé illa upp alinn. Krefstu þess að fá bjór í skaðabætur

Vandamál: Gólfið er þokukennt
Orsök: Þú ert að horfa í gegnum botninn á tómu glasi
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.

Vandamál: Gólfið sveiflast
Orsök: Of mikil ókyrrð í loftinu, sennilega vegna úrslita sem hafa orðið í einhverju spili á barnum
Viðbrögð: Settu kústskaft niður bakhlutann á skyrtunni.

Vandamál: Gólfið hreyfist
Orsök: Það er verið að bera þig út
Viðbrögð: Reyndu að komast að því hvort að það sé verið að fara með þig á annan bar. Ef svo er ekki, öskraðu þá að það sé verið að ræna þér.

Vandamál: Veggurinn á móti þér er þakinn loftklæðningu og ljósaperum
Orsök: Þú hefur dottið aftur fyrir þig
Viðbrögð: Ef glasið þitt er fullt og enginn stendur á hendinni á þér, vertu þá bara ennþá á gólfinu og haltu áfram að drekka. Ef ekki, fáðu þá einhvern til að hjálpa þér að standa upp og haltu þér vel í barborðið.

Vandamál: Allt er orðið dimmt, munnurinn á þér er fullur af sígarettustubbum
Orsök: Þú hefur dottið fram fyrir þig.
Viðbrögð: Sjá fyrir ofan

Vandamál: Allt er orðið dimmt
Orsök: Það er búið að loka barnum
Viðbrögð: Hræðsla!!!!!

Vandamál: Þú vaknar og finnur að rúmið þitt er kalt, hart og blautt; þú sérð ekkert inni í svefnherberginu.
Orsök: Þú hefur sofnað í göturæsinu.
Viðbrögð: Kíktu á klukkuna til að gá hvort að það sé búið að opna barina. Ef ekki, reyndu þá að sofa aðeins lengur

Skál!

þriðjudagur, mars 22, 2005

Paska fri!

Bloggið mitt er komið í páska frí...
...ætla að sjá til hvort ég nenni að skrifa aftur.

-Gleðilega páska!-

(...og góða ferð aftur til U.S. Dröfn mín!!)

fimmtudagur, mars 17, 2005

Glataðir ökumenn!

Íslendingar eru sorglegir ökumenn! Það er algjörlega mín skoðun...og þeir verða bara verri með tímanum. Sem dæmi þá gerðist það um daginn að ég flýtti mér yfir gatnamót á hágulu/rauðu ljósi og hugsaði "hjúkket ég rétt náði" þegar ég fór yfir, EN svo lít ég í baksýnisspegilinn og það kom ekki einn né tveir bílar beint á eftir mér yfir á rauðu heldur fjögur/fimm stykki!!!
Svo svína menn hægri vinstri og skipta um akgreinar eins og nærbuxur án þess að blikka eða yfirhöfuð líta í baksýnisspegilinn!
Are u kiddin me hvað fólk er kærulaust!...Það geta ekki ALLIR átt réttinn né fengið forgang þegar þeim hentar....íslendingar eru bara ekki að átta sig á að þeir eru hvorki einir á veginum né ódrepanlegir!
Djö...vitleysa!

Kv. Ein ekki paranoid!!

miðvikudagur, mars 16, 2005

Allt er nu til!

Ég hef verið að vinna að verkefni um málshætti seinustu daga í tilefni þess að páskarnir eru á næsta leiti og rakst á nokkra sem ég vildi bera undir ykkur...

-Ekki fretar mús eins og hestur þó rauf rifni. 
-Margur dansar þó hann dansi nauðugur. 
-Sætt er sameiginlegt skipbrot. 
-Engin kona verður skækja af eins manns völdum. 
-Margur kafnar undir nafni. 
-Digur rass þarf víða brók. 

og fleira sem þið fáið að sjá seinna!
...ja sei sei, þessir Íslendingar!*hristir hausinn*

mánudagur, mars 14, 2005

I luv surprises:)

Ég get bara sagt....keep them coming!!!

:)
:)

sunnudagur, mars 13, 2005

long time no blog!

Ég elska sunnudaga sem eru gjörsamlega óplanaðir og það vill svo skemmtilega til að svoleiðins eintak er einmitt í dag:)

Ýmislegt hefur gengið á í liðinni viku.
-Yours truly er gengin í klósettklúbbinn WC í Laugum. Planið er að vera dugleg og enn sem komið er hefur BIrna verið dyggur stuðningsmaður minn...amk. í bæði skiptin sem ég hef mætt. Framvegis er það bara Brennslukickbox og sterakokteilar með ljósalegnum íþróttaspírum....Við Birna ættum nú ekki að eiga erfitt með að fitta inn!!

-Kennslukonan í mér er búin að vera að blómstra seinustu vikuna. Hinn alkunni morgunhressleiki minn er meira að segja að lagast með árunum því nú er sko engin miskun hjá Magnúsi heldur rífur maður sig núna upp eiturhress kl.7 og er til í slaginn( ja svona ca.). Batnandi manni (eða konu í þessu tilfelli) er best að lifa....ég panta hann í páskaeggið!

Ég er búin að fara í sumarklippingu og lét taka svoldið vel neðan af stríinu...en ég því miður sit ég ennþá uppi með Krullu Jóns sem rígheldur í hárið á mér...permanet er alveg OFF í framtíðinni...tíska eður ei!

Ég fékk fjórar ókeypis mjólk daginn áður en mjólkin var hækkuð upp í 38kr.....heppin...ég held það nú!

Páskaegg heimilisins eru komin í hús og reynt verður að hemja sig frá því að ráðast á þau með því að borða allt annað óhollt sem á vegi mínum verður...það verður því mikill léttir þegar páskadagur rennur loksins upp!

Akkurat núna sit ég með skattaskýrslur og svoleiðins óbjóð við hliðina á mér. Planið er að vera á undan skilafrestinum í ár...þoli ekki þessar umsóknir um frest og svoleiðins vesin. Þetta er samt meira ruglið....ég er bara dauðfegin að vera ekki að vinna hjá skattinum....hjá þeim er þetta ekki svona einu sinni á ári thing....heldur allt árið, öll árin.....greyin!

Heimurinn fær prik í kladdann fyrir að vera bjartur og fagur, mínus fyrir kulda....eigið góðan HVÍLDARdag!

miðvikudagur, mars 09, 2005

Allt að verða vitlaust

...ég er búin að komast að því að bloggið mitt er steindrepleiðinlegt.
Miðað við allt actionið hjá henni Örnu ætti ég bara að loka mínu;)
Ath. http://arnaolafs.blogspot.com/ þar sem röflari lætur gamminn geysa...

úff...

mánudagur, mars 07, 2005

Ofur kennari...

er ekki neitt sem ég myndi kalla mig!
Eftir kennslu tók ég mér vel útilátinn lúr, með extra topping af púðum og teppi.
Ég var bara hissa á því að ég væri ekkert þreytt þegar skóladeginum lauk...en svo kom ég heim og bara lak niður. Úff þvílíkar energy-sugur.....en þrátt fyrir það bara ansi skemmtilegar;)

Ég er loksins búin að gera mér grein fyrir afhverju kennarar hafa starfsdaga....það er alveg voðaleg undirbúningsvinna fyrir þetta allt saman....

Yfir og út-

laugardagur, mars 05, 2005

Dönsku heimaprof..

..er ekki málið á laugardagskveldi. En þegar maður hefur engan annan tíma í þetta þá lætur maður til leiðast.

Ég er alltaf að hitta svo dúllulegt eldra fólk í vinnunni(það er náttlega líka til afskaplega fráhrindandi eldra lið)...þau fara sér svo hægt og segja svo skemmtilegar sögur meðan maður er að afgreiða það. Þetta eru reyndar ekki draumakúnnar þegar það er vitlaust að gera en ef búðin er tóm þá eru þetta skemmtilegustu kúnnarnir. Til dæmis kom gráhærður eldri herra í dag og tilkynnti hátíðlega að frúin ætti afmæli í dag og hann þyrfti vönd. Ég gerði einn og sagði honum verðið (fannst hann sjálf svoldið dýr) þá svarar hann herramannlega" maður horfir ekki í aurana þegar frúin á í hlut, hún þetta skilið"....Mó!

Jæja þið sjáið hvað ég hef átt spennandi dag...og hversu mikill áhugi er á dönskuprófinu sem á að vera í gangi akkurat núna.

Mig langar til að nota tækifærið og mæla með (fyrir þá sem ekki þekkja) Ben Harper...finnst hann ansi skemmtilegur tónlistarmaður.

Anyway, prófið bíður mín....vonandi drekkur einhver þarna úti einn öllara fyrir mig í kvöld!

Ariva datchi!

fimmtudagur, mars 03, 2005

Að vera eða ekki vera...

....veik.
Það er EKKERT leiðinlegra en að vera of slappur til að gera e-ð EN of hress til að hvíla sig!!!
Það ætti bara að vera annaðhvort eða.....finnst mér og hananú!

Anywho þá er nóg að gerast þessa dagana....
Kennslukonan í mér ýtir úr vör á mánudagsmorguninn og verður á sjó í 2 heilar vikur. Undirbúningsvinnan er í hámarki og þessir sjö ára krakkalingar eiga von á OFSA lærdómsríkum og fjörfylltum dögum;)

Helgin fer í blómvinnu, kennslundirbúning og heimapróf í dönsku. Þannig að djamm-mynstur seinustu helga verður rofið þrátt fyrir hækkandi sól og almenna stemmningu hjá fólki. Ég verð bara með í næstu lotu..dadara:)

Ég var að átta mig á að ég fer ekki í neina fermingarveislu í ár...og þykir mér það mikið miður. Ég elska svona risavaxinn kökuboð...ég veit að sumir vilja ekkert frekar enn að sleppa við að mæta í svonalagað...en ég er greinilega svona family-and cake-oriented:)
Þannig að nú held ég bara í vonina um gott afmæli hjá einhverjum á næstunni....Harpa og Guðrún Anna ég treysti á ykkur;)


Eigið smellna viku!

mánudagur, febrúar 28, 2005

Goðar frettir!

QuEyFoThStraGy byrjar annað kvöld (þriðjudag) kl.22

Júhú!

sunnudagur, febrúar 27, 2005

engla arna


engla arna
Originally uploaded by .:eyjan.
her er ein fin af ther Arna min...alger engill her a ferd;)

Alveg að standa mig...

...nú hef ég verið á djamminu fimm helgar í röð...þetta er þvílíkur dugnaður að ég kem sjálfri mér á óvart!

Árshátíðin var bara ansi vel heppnuð...amk kosti miðað við í fyrra(að mig minnir). Edda Bjö. var veislustjóri og það var nú hægt að hlæja svoldið að henni. Eftir slappt atriði frá karlrembuklúbbi skólans gerði kvenfélagið betur með sínu atriði, þar mættu 4.súkkulaði töffarar í hvítum jakkfötum á sviðið (parodía á Nylon) og sungu nælon lagið "einhversstaðar" og enduðu með Backstreet lagi...allt varð vitlaust í salnum og ein gella meira segja flassaði þessa sólbrenndu selfoss töffara. Það borgar sig greinilega að vera mjúkur maður;)
Miljónamæringarnir voru í stuði m Palla og Ragga B....stemmningin var góð en ég verð að viðurkenna að í lokin fannst mér tjatja-takturinn minna á ball hjá eldri borgurum;)...svo það varð úr að ég brá mér í miðbæinn.

Ég sá nú svoldið eftir að hafa skellt mér í bæinn í árshátíðarfötunum þegar ég var komin heim með hálf eyðilagða spariskó og megnan ölkeim af fína pilsinu mínu. En þetta er náttlega bara mér að kenna...hvað var ég að TROÐA mér inn á skemmtistað þar sem fólk nuddar saman bringum/bökum við fullt af ókunnugum þegar það þarf að komast á barinn, og hellir svo veigunum niður á mann og annan á leið tilbaka. Þetta var samt þess virði...voða fjör langt fram á nótt:)

Þynnildið og þreytan voru tekin út í sumarbústaðnum þar sem markmiðið var að hafa það notalegt.. mission accomplished:)

Ýmislegt á dagskránni og nálgast óðfluga:

-Vika í að vettvangsnám byrjar...stress
-Páskar og páskaeggja át....enn meira stress....mikið af eggjum sem þarf að torga
-Útborgun eftir 1 dag....gleði
-Akureyrarferð í apríl...þegar borgarbörnin þykjast vera sveitatöffarar
-.....og svo allt hitt

G. times------!

föstudagur, febrúar 25, 2005

Arshatið...

...í kvöld er árshátið hjá KHÍ....ég er búin að fjárfesta í einu stykki miða og ætla að láta sjá mig í rífandi stemmningu.
Það er einn mínus við þessa samkomu og hann er sá að gillið fer fram á Broadway. Alltaf þegar ég nálgast þessa byggingu fæ ég svona netta menntaskólaballsklígju. Ekki að það hafi ekki verið gaman á gömlu menntaskólaböllunum...en ég get ekki að þessu gert. Kannski er það bara ég sem upplifi staðinn svona...eða hvað?

Ég vonast svo til að geta þeyst út úr bænum hress og kát á laugardeginum...beina leið austur...og slappa þar af í fjölskylduslottinu, aka. Héðinsholti, sem enn er í byggingu.

Sunnudagur fer í lærdóm og hangs í opinni dagskrá...

Góða helgi....og gangið hratt og örugglega um gleðinnar dyr;)

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

áskorun!

Ég vil hér með skora á hana Guðrúnu Önnu stórvinkonu mína til að taka til við að blogga um sitt spennandi og litskrúðuga líf!

Vildi bara koma þessari áskorun á framfæri...

-hverjir eru sammála?

Formleg kvörtun...

...til Skjá eins. Ertu að grínast með 4 auglýsingahlé í einum þætti.... og þau urðu öll að vara 10 mínútur eða álíka!!!
Það er jú ekki aukaatriði að þátturinn ANT var mjög spennandi í kvöld og þar af leiðandi virkilega pirrandi að þurfa að horfa aftur og aftur á sömu auglýsingarnar...þeir gætu amk. reynt að hafa þetta svoldið fjölbreytt fyrst þeir ætla að vera að þessu á annað borð;)

Skamm...

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

þvilikur lettir...

...að þokunni sé létt. Var farin að hafa áhygggjur af því að þetta ætti bara eftir að vera svona framvegis. Ég get nú sagt ykkur að þá hefði ég umsvifalaust flutt til Hawaii...ja eða bara á einhverja sólarströnd.
En nú er s.s. hægt að sjá næsta ljósastaur á ný og finn ég fyrst núna hversu mikið ég hef saknað hans....

mánudagur, febrúar 21, 2005

Pizzur og blom...

Ég var í blómafíling um helgina....náði samt að troða inn glæsilegu pizzuboði og skemmtilega löngu djammi á laugardagskvöldið. Takk fyrir ánægjulegt kvöld "wAterLiljur" við gerum þetta aftur við tækifæri...;)

Í gær var svo vaknað seint eða ca.14:30...og það var einungis vaknað þá vegna þess að ég var að fara í vinnuna kl.16. Þessi vinnudagur var sérstaklega "konulegur" þar sem kúnnahópurinn var að mestu leyti karlmenn. Menn voru að kaupa bæði ROSA vendi og smærri útgáfur...en ég verð að segja að ég var alveg komin með upp í kok af rauðum rósum, hjartablöðrum og hjartakonfekti kl.22 í gærkveldi. Ég fékk engin blóm sjálf og var bara sátt við það...hefði ekki getað höndlað að hafa rauðar rósir heima hjá mér líka...

Eigið góðan mánudag fólkens...

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Nytt timabil hafið...

..já hvaða tímabil gæti það verið spyrjiði ykkur.... jú ég get sagt ykkur það. Nýtt tímabil af Americas next topmodel og ég var svo heppin að hitta óvart á fyrsta þáttinn. Þetta þýðir bara eitt...og það er að ég verð að sjá restina...Eins mikið og Tyra Banks fer í taugarnar á mér með þessa amerísku væmni sinni er ég jafnan spennt í að sjá hvað þetta lið tekur upp á miðvikudagskvöldum...byrjaði vel með stelpuslag á einhverjum bar í kvöld...hehe það má eiginlega ekki hlæja að svona löguðu en hey e-ð verður maður að leyfa sér;)......Kreizí ameríkanar! (Harpa..no hard feelings!;) ;) ;)

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Söknuður...

Yðar einlæg er í dag orðin 4. stykkjum "fegurðar"blettum léttari....mikill missir fyrir mig...og útlitið auðvitað, þar sem ég er nú orðin önnur og mun léttari manneskja!;) -amk.skrítin lífsreynsla.

Þetta voru fréttir dagsins...
Ásamt því að ég hef nú ákveðið að utanlandsferð sumarsins sé heitið til:
-
ú spennó...
-
-
dadara.........Köben!!! Vúhú!

Hver er ekki hissa? I am......

mánudagur, febrúar 14, 2005

Bara aftur komin manudagur?!?!

Heyriði, mér sýnist ég nánast bara blogga fyrir eða eftir helgar...time sure flies...ég ræð ekkert við þetta!

Helgin var mjög fín. Föstudagurinn var vægast sagt skrautlegur og þá er ég ekki að tala um bingóið! Við s.s. mættum nokkrar upp í skóla hressar og til í bingó um átta leytið. Þessi einstaklega skemmtilegi leikur var svoleiðins drepin niður með dauðaþögn í salnum, allir með tíu bingóspjöld og í brjáluðum keppnisham...við settumst niður m bjór og skönnuðum heldur sorglegt pleisið. Svo bauðst okkur að kíkja í e-ð sálfræði gilli sem var í nágreninu...við þáðum boðið fegins hendi. Þegar við svo mættum á svæðið þá var barasta allt vitlaust. Sálfræðinemar eru greinilega alveg nuts sjálfir....held ég bara fari til útlanda ef ég þarfnast sálfræði meðferðar í framtíðinni...ussuss! Eftir ekki langa stund stungum við svo af í bæinn vorum komin þangað um miðnætti. Eftir stutt milli stopp kom hún Edda (alltaf hægt að stóla á að hún mæti;) og við enduðum á Prikinu enn og aftur og skemmtum okkur konunglega þrátt fyrir að dansinn hafi verið heldur minni en um seinustu helgi:)
Laugardagurinn var spes....segi ekki meir. Átti annars rólegan dag.

TJ er mættur heim á ný. Rosalega er gott að koma heim úr skólanum með kaffikönnuna í gangi...ég drekk ekki kaffi en þeir sem skilja skilja. Ég fékk fullt af sniðugu Hollensku dóti..ekki amalegt:)

Skólinn er að kicka smá rass þessa dagana. Ýmislegt sniðugt í gangi. Er komin á fullt í grafík pælingar og svo fer teiknun og málun af stað á morgun...danskan fær að fljóta þar með með sína spennandi málfræði;)

Jæja...eigið ánægjulegan Valintínusardag og allt það...ást og hamingja
-friður-

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Fønn fønn fønn fønn fønn fønn!

Sjæse...það er sko nægur snjór hér í Rvk. til að opna eitt stykki skíðasvæði. Lyftukort verða seld í Svarta Svaninum og sætaferðir verða með strætó upp á Arnarhól...ekki slæm hugmynd...langar svoldið að skella mér upp í fjöll..læt kannski bara verða af því á morgun ef það er sól og hiti:)

Skafhöfðinn...(vöðvinn sem sér um að skafa bílrúður) er komin í topp form eftir að ég fékk loksins ástkæra bílinn minn tilbaka...varð að borga lausnargjald upp á 77.000 kr. takk fyrir...en núna er hann amk. með nýja viftureim og einhvern stærri alternator(þeir sem hafa kynnt sér eiginlegan tilgang alternators vinsamlega kommentið um niðurstöður!)

Nú helgin er handan við hornið...og stefnan er á bingóbjórskvöld í skólanum annaðkvöld...ætla þar að vinna bæði peninga vinninginn frá KB banka og allt hitt, svo er málið bara að kíkja í bæinn...

Daginn eftir ætla ég að skunda á fund heilara sem ætlar e-ð að bæta mig og breyta...vonandi...fingers crossed:)
Laugardagskvöldið er enn óplanað...kannski ég eldi e-ð gott (ja eða læt bjóða mér e-ð)...borðapantanir skráist í kommentin..;)

TJ kemur víst á sunnudag og þarf maður þá að skella 50" dekkjunum undir fjalla-bílinn og bruna til Kef. og muna að hleypa lofti úr dekkjunum þegar maður fer yfir Keili!


Góða helgi allebody...ég rekst kannski á ykkur í bænum!

sunnudagur, febrúar 06, 2005

Helgarfíllinn....

Helgin var zúper góð...þrátt fyrir að helmingurinn hafi reyndar farið í blómavesinið,þá var það bara alls ekki svo slæmt í þetta skiptið....
-ég keypti mér loksins fína skó sem ég er mjög ánægð með...fyrir margar dömur er e-ð rangt við seinustu setningu en hey...allir eru picky með e-ð og í mínu tilviki eru það skór...

Ég skellti mér á djammið í gær með henni Eddu líffræði-spekingi og fleirum. Þetta var svona spontant...og enn og aftur þá er það sannað að svoleiðins djömm eru skemmtilegustu djömmin.Takk fyrir frábært kvöldi Edda... og ég er alltaf til í annað svona:)

Í þynnku dagsins tók ég óvirkan þátt í bollubakstri á heimili foreldra minna.Ég tók svo virkan þátt í át-processinu....þrátt fyrir lystarleysi á heilsusamlegufæði.

Jæja nú nenni ég ekki meir....segi bara gleðilegan bolludag á morgun...njótið hans því hann er jú bara EINU SINNI á ári....

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Uff

Ætla bara að segja takk fyrir komuna í gær vatnaliljur;)
.....ég er ennþá eftir mig eftir kræsingarnar...hehe... og selskabinn:)

Dröfn við sendum þér "át"-strauma til USA í gær...

Hlakka til pizzupartýsins!

Lifi lijurnar aríba!

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Gott framtak eða bara rugl....?

Tekið af Ananova.com:

"Queer Beer launched for gays"

A trio of Swiss businessmen have launched a new drink for gay people called Queer Beer.

Michael Hutmacher, 32, came up with the idea with two friends and has now founded a company, Lemonhead, to market it.
Hutmacher, from Zug. added: "Our beer is a humorous attempt to identify with the gay scene and we hope it will help people to feel relaxed with their sexuality and not hide away."
And he added despite its provocative name the lager wasn't just aimed at homosexuals but also straight people.

"I'm happy to see that homosexuals are being taken seriously as consumers. I just hope that the beer tastes good," he said.



-Ég verð að viðurkenna að ég er svoldið forvitin um hvernig "queer beer" geti verið öðruvísi en hinn almenni bjór...

mánudagur, janúar 31, 2005

Helgar flugan...

Helgin var wúnderfúl....
Föstudagskvöldið fór í þríréttað á Enricos. Mjög nice staður og fyrsti veitingastaðurinn þar sem ég hef snætt við sófaborð sitjandi í ansi mjúkum og þægilegum stólum(hélt að maður gerði svoleiðins bara heima hjá sér;). Hápunkturinn var bananasplitið, úff!!

Laugardagsnóttin fór í að vesinast í nágranna mínum þar sem hann er með þvottaáráttu á milli miðnættis og tvö um nóttina alla daga vikunnar. Og svefnherbergið okkar er fyrir ofan þvottahúsið! Mín lét í sér heyra og bankaði upp á hjá kauða kl:02 og sagði YO þetta gengur ekki lengur. Svo stormaði ég upp aftur ánægð með minn "Hild-power" í málinu.
Það gekk ekki betur en svo að á miðnætti daginn eftir var verið að þurrka íþróttaskó eða einhvern fjandann í þurrkaranum....COMMON! Ég setti 3 púða yfir hausinn og komst að því að annað hvort hefur gaurinn ekki látið úrilla náttfata konu hræða sig eða að einhver annar væri að leika listir sínar....
Ég virðist þurfa að taka þetta mál til æðri valda.....hvað varð um old fashioned tillitsemi!?

Jæja nóg í bili...

Manudags hressingin...

Tjekkið á þessu...
Yndislegt að fólk geti verið svona ófeimið

http://www.orapois.com/br/arquivos/01032005140525688g.swf

Munið svo að syngja með!:)

Gleðilegan mánudag!

föstudagur, janúar 28, 2005

...helgin framundan...

..loksins á ég frí helgi...og maður verður sko að nýta tækifærin þegar þau gefast.

Kvöldið í kvöld fer í e-ð surprise sem ég veit ekki enn hvað verður. Hlakka mjög til:)

Very very early á morgun þarf ég svo að ferja kallinn í flugvélina til Amsterdam þar sem hann mun baða sig í menningu Hollands næstu 10 daga ásamt skólafélögum...úff ekki amalegt.

Nú hef ég verið að íhuga að kaupa spriklkort í líkamsræktastöð í margar vikur...það er stór séns á að ég geri e-ð í málinu á morgun. Er farin að fá harðsperrur af að gera ekki neitt!!

Annað kvöld er stefnan tekin á nokkrar kollur og fjör...en annað kemur líka til greina..

Sunnudagur er heimsóknardagur!!!

-Góða helgi-

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Tjutt og trall...

Quiz Me
Hildur spins tunes as
DJ Electric Gun

Get your dj name @ Quiz Me



Nú er maður alveg laus við veikindin*sjö níu þrettán* og hitt og þetta búið að ske eftir að maður komst á fætur... sem við nennum ekki að fara nánar út í hér.Það má samt fylgja að ég var að ljúka við að horfa á "Meet the Fockers" og get vel mælt með henni for a few laughs....

Nú eru 3 dagar í að ég verði grasekkja í 2 vikur....spurning um djamm anyone;)

laugardagur, janúar 22, 2005

loksins frjals!

..jæja þá er komið að því. Ég fer út fyrir hússins dyr eftir hálftíma...im very excited about that.
Ég er nefnilega á leið í vinnuna kl.10 en er reyndar altilbúin núna um 9 leytið...fréttablaðið kemur ekki til okkar nema að blaðberanum henti...þar af leiðandi ákvað ég að morgunblogga...1 skref mitt í átt að heilsusamlegri lífsstíl;)

Eftir vinnu ætla ég svoleiðins að njóta þess að geta gert allt og ekkert.....enda samt ábyggilega á því að kíkja í Kringluna.
-CUaround

fimmtudagur, janúar 20, 2005

konnun...!

Hver vill skella sér með mér í bíó á "A Very Long Engagement " þegar ég er orðin hress?.

-ég veit að ég er að taka sjéns á þvílíku skúffelsi, því að kannski vill enginn fara með mér...en þá fer ég líka bara með honum;)


(p.s. 5aurar eru ágætir...dedicated 2 S.G.H.)

miðvikudagur, janúar 19, 2005

jæja...

...jæja...núna eru þetta að verða 6 dagar í veikindalandi og ég verð að segja að heimþráin er gríðaleg.
Fólk er hætt að spurja hvort það sé e-ð að frétta þegar það hringir...hitatölur og samhengislausir draumar eru hættir að vera spennandi topic. Næst hættir fólk ábyggilega bara að hringja....
Skólinn heldur áfram að rúlla og ég bara sit eftir með heitt enni og læknisvottorð!

Betri helmingurinn á heimilinu...nei bíddu það er ég....sem sagt restin hefur verið eins busy og hægt er að vera seinustu daga,allt að gerast í hans heimi, kemur heim á matartímum til að elda dýrindis máltíð fyrir veiklinginn og þýtur svo af stað í að bjarga heiminum. I guess að það þýði meiri frið fyrir mig til að jafna mig....en eins og þið sjáið af bloggskrifunum þá er þessi veikindatími að verða ansi rúmur og langdregin...ja og einmannalegur!

Snurf...rúmið kallar...ennnnnnnn einu sinni!

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Greyid eg!!

..ég ætla bara að nota tækifærið á meðan ég er á fótum og vorkenna mér alveg ofsalega. Ég er búin að vera veik alveg frá því á laugardag og líður alveg hörmulega. Þetta influensu drasl er sko ekkert grín. Mig minnir að í gamla daga hafi maður setið uppi í sófa og horft á videó...en núna...nehei...times have changed! Ég hef verskú ekki getað gert neitt annað en sofa og dreymir þá bara einhverja framúrstefnulega hitamóks drauma. Ekki mikil hvild í því!
Nú má þetta sko fara að vera búið!
Greyið bitra ég....aftur á leið undir sæng:(

föstudagur, janúar 14, 2005

Kindin Einar!

Ég ætla að biðja fólk vinsamlegast um að vera duglegt að blogga á næstunni. Þannig er mál með vexti að ég er í intensívu íslensku námskeiði næstu 6 vikurnar og það þýðir endalaust af ó svo þreytandi fyrirlestrum. Eina von mín um að halda mér vakandi þessa þungu morgna er að lesa hressandi blogg öðruhvoru....þannig að endilega leggið þreyttum lið og bloggið!

Allt gengur vel í sjö ára bekk. Við erum reyndar í pásu núna og förum ekki næst fyrr en 20 jan. Þess á milli dundum við kennaranemarnir okkur við ofan greint efni (fyrirlestrana þ.e.). Við munum svo demba okkur út í pró kennslu í mars...held að það verði bara einkar ljúf og áhugaverð reynsla!....(spurning hvort annað eigi eftir að koma í ljós?!)

Í dag var rosa "ég" dagur, munar um að hafa sem mest af þeim, ég skellti mér bæði í sund og klippingu. Klippingin var svona lala...en amk. sé ég út aftur eftir langa toppa daga undafarið. Sundið aftur á móti var málið. Ég naut mín innilega fljótandi um og þreyjandi kappsund við eldri dömur borgarinnar sem höfðu hertekið Neslaugina. Ég komst að því að mig vantar nauðsynlega rósótta sundhettu til að fitta inn.
Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað sund er hressandi og ég segi líka í hvert skipti að ég verði að gera meira af því sem gengur ekki alltaf upp (....The story of my work-out life!!).

Ég og TJ munum halda uppi stemmningunni í Kolaportinu á morgun. Þeir sem eru í krús hugleiðingum...endilega krúsið við!

Jæja ég var víst að lofa mér í vinnu áðan svo ég ætti að glugga í bók eða tvær og fræðast um fónem og fleira über spennandi*hóst*

Until next time....

miðvikudagur, janúar 12, 2005

þetta er alveg hilarious

Garantera að þetta hressi mann við!!
(Hafið kveikt á hátölurunum!)

http://www.funnyjunk.com/pages/cat.htm#tell

mánudagur, janúar 10, 2005

A blast "to" the past

...jæja góðir hálsar. Its official, ég er aftur kominn í sjö ára bekk!
Og ég verð að segja að það er bara ósköp notalegt. Það eina sem er í rauninni öðruvísi í þetta skiptið er að ég kann að skrifa og lesa, ég þarf ekki að fara út í frímínútur og get chillað á kennarastofunni.

Skólinn minn er sem sagt byrjaður og ég er strax komin í áheyrn í grunnskóla....fer svo og kenni í mars. Allt að gerast hjá litlu mér;). Árið 2005 byrjar vel!

Dröfn fór því miður til usa í dag...en maður verður víst bara að lifa með því. Gangi þér vel úti og take care!

þriðjudagur, janúar 04, 2005

home sweet home...

-Hildur back in the house once again!-
...og er búin að hafa það snilldar gott. Köben var æði ( ja, eins og oftast ).
Það var verslað og "hygget" í miðbænum sem og annastaðar. Nóg af góðum mat og þessháttar lúxus. Heimsótt vini og kunningja og allt þar á milli himins og jarðar.Haldið upp á nýja árið á danska mátann með rakettum og kampavíni.
Þegar ég fer að spá í það.... náði ég barasta að gera ansi mikið á þessum 6 dögum.

Við fórum í heimsóknir til fjölskyldu Troelsar. Í hana eru nýlega komnar tvær litlar dúllur, báðar stelpurnar innan við eins árs gamlar. Nóg af barnaspjalli þar á bæ;) Svo er von á strák í hinni fjöslkyldunni hans og góður vinur hans er einnig að verða pabbi í febrúar. Ég er viss um að þetta sé einhver faraldur...hann var hér á landi fyrir stuttu og er nú að herja á Danmörku. Baby-Boomið continues....;)

Gamlárskvöldið var mjög skemmtilegt. Ekki svo frábrugðið okkar kannski bara það að það er mun auðveldara að komast á milli staða vegna neðanjarðalestanna. Þetta eru sko fyrstu áramót í langan tíma sem ég er ekki bílstjóri....og ég naut þess verulega. Fyrst var borðað með familíu og svo ca. 22 haldið af stað út í bæ. Fórum í party hjá vini Troelsar og vorum þar til ca.01. Þar var verulegt fjör...og svo hélt allur hópurinn af stað í næsta gilli sem var með ljósashow og læti. Þar var dansað til late og svo kíktum við TJ á e-ð Punk Royal party áður en við héldum heim...með falafel í annari:) Very good night indeed...

Nú er kellan komin heim á ný. Hress sem aldrei fyrr. Skóli á morgun og æfingakennsla á fimmtudaginn....life is swueet!

p.s. áramótaheit þessa árs:
-meiri bjartsýni
-meiri hreyfingu
-basicly enjoy life more....maður á jú bara eitt stykki.