fimmtudagur, júní 02, 2005

Summer-Hildz

Sól og blíða alla daga!
Ég er svoleiðins að njóta góða veðursins með ærlsandi krakka í kringum mig allan daginn.
Sumarvinnan er s.s. byrjuð. Byrjaði í gær (miðvikud.) og ég er dauð uppgefin eftir tvo daga. Þarf samt að taka fram að ferðin okkar til Köben var æði en mjög krefjandi. Mikið að gera alla dagana. Gat lítið verslað vegna allskonar matarboða og hittinga. Svo skelltum við okkur á risa djamm á laugardagskvöldið. Þar voru skemmtiatriðin í spes kantinum þar sem ýmsir spiluðu..þar á meðal dama sem kallar sig Peaches og var með vægast sagt sérstakt show.
Borðaði mikið af góðum pizzum á verði sem ekki er hægt að miða við íslenskar aðstæður...þetta er eitt að því sem mér finnst best við köben...snilldar pizzur á 400 kr.-could life be any sweeter:)

Nú er maður komin heim í íslenska sumarið og sumarvinnuna. Ég sé samt ekki fram á rólegt sumar þar sem dagskráin fyrir helgarnar er óðum að fyllast.....ekki verra að nýta sumarið í fjör:)

Engin ummæli: