föstudagur, desember 19, 2008

Jóla-countdown

Ég er ad telja nidur dagana thanga til vid fljúgum heim. Ég er búin ad jólast eins og hægt er seinustu daga. Baka, kaupa jólagjafir,trilljón jólakort skrifud,skreyta og punkturinn yfir i-id var thegar ég skellti mér óvænt í tivoli í gær...løbbudum thar um fengum jólagløgg og allskonar gódgæti. Frábært ljósashow og flott skreyttur gardurinn. Thar sem ferdin var óvænt var ég ekki med myndavélina...annars hefdi ég smellt inn nokkrum myndum.

í stadinn setti ég inn mynd af nýjung á markadnum í dag...fyrir fólk sem ekki vill vera eins og allir adrir.



Jólaknús!

laugardagur, desember 13, 2008

Ég er að fíla nýju efnalínuna frá ikea

sérstaklega hvíta, bláa og rauða efnið....

föstudagur, desember 12, 2008

Fyrst með fréttirnar...og það æsi spennandi!

Frekar öruggar heimildir fyrir því að H&M Home opnar í febrúar á næsta ári og mun selja vörurnar í vefverslun sinni.

sneak preview:











Hvað finnst ykkur?

mánudagur, desember 08, 2008

Jólastemmari...

Um seinustu helgi var jólamarkadur í skólanum mínum sem var ansi mikid stud...amk allt stappad af fólki. Hendi kannski inn einni mynd eda svo af markadnum á næstu døgum. Daginn eftir var jólamarkadur í Jónshúsi sem er hid íslenska hús hér í Køben. Ég og Trolli mættum eitur hress thangad... tókst ad troda okkur fram hjá glerdóti og jólakrønsum(og nokkrum sætum prjónavørum) beint í maltid og appelsínid og kleinurnar!
Héldum svo heim á leid med jólavarninginn. Kleinurnar eru næstum búnar og thad er ofsalega jólalegt ad vita af 4 dósum af malt/appeslíni úti á svølum. Núna er ég í vinnunni ad hlusta á jólaløg á rás tvø...svo jólaskapid mitt er allt ad koma til:D

Bara 16 dagar til jóla og 16 mínus 2 dagar thanga til ég mæti á svædid í íslenska jólafjørid...

miðvikudagur, desember 03, 2008

Pæling

Stjórnarandstødumenn yfirtaka flugvellina í Bangkok í 8 daga í rød og í framhaldi af thví fellur dómur um ad ríkisstjórnin í landinu sé leyst upp.
Íslendingar mótmæla annan hvern laugardag og kasta smá grænmeti....althingismenn bidja fólk um ad stilla mótmælum í hóf....og EKKERT gerist!!

Ég held thetta sé spurning um adferdir!?

mánudagur, desember 01, 2008

Úff!

Var að komast að því að það er ferlega er sterk(og að mínu mati vond) lykt af hýasintum....og ég sem hef selt þessi blóm í þúsunda tali fyrir hver jól á meðan ég vann í blómabúðinni. Ef ég hefði vitað hvernig lykt er af þeim þá hefði ég alls ekki haldið þessu að fólki!!!

Fussum svei!

closer than we think

Svakalega fínar myndir úr "Chicago Tribune" frá árunum 1958 og 1960...og skemmtilegar framtíðar spár.
enjoy!




fimmtudagur, nóvember 27, 2008

Ja sei sei

Nú er ég orðin svakalega dugleg að blogga amk. samkvæmt Örnu! En ég held barasta að þetta kerfi okkar hafi veitt mér innblástur til að blogga meir...;)þó að innihaldið í bloggunum sé vissulega misspennandi

Þetta finnst mér fáránlega absúrd frétt...erum við ekki sammála um það að stúlkan er aðeins 16 ára??!

Whats this world coming to!!

miðvikudagur, nóvember 26, 2008

vá...!

fíledda...

enda alltaf verið skotin í sænsku!

OK...

...talented eða bara creepy?
tjékkið á þessum litlu krílum

smá auglýsing...

...hef verid ad hlusta á mikid af thessum TED talks útaf verkefni sem ég er í...en thetta er sko mjøg áhugavert stuff og gaman ad hlusta á fólkid...thó thetta sé nú sumt ordid 2 ára gamalt...tjékkid á thessu

Jólin handan vid hornid...eda kannski nokkur horn...

Smá blogg-breyting svona af thví thad eru ad koma jól!

Annars er kominn ørlítill jólafílingur í mig. Kannski af thví ad vid fljúgum heim í jólafrí eftir rúmar 3-4 vikur, kannski af thví ad føstudaginn 5.des ætla ég ad vera med í jólamarkadnum í skólanum mínum annad árid í rød eda kannski vegna thess ad mig langar svo mikid í og ad baka smákøkur(en hef thó tæplega tíma í thad)....

en amk. smá svona spreading the christmas spirit!

mánudagur, nóvember 24, 2008

Kominn vetur!

Veturinn mætti formlega um helgina...snjór féll(alvøru jólasnjór) og er í dag á mánudegi ordinn ad smávegis frost-leifum á gøtunum hér og thar. En thad er ordid kalt svo nú eru húfan og vetlingarnir ordnir standard útbúnadur.

Danirnir taka svona merki um vetur háalvarlega...sem getur pirrad mig, t.d. má nefna ad eftir ad thad snjóadi á føstudagskvøldid...hefur verid saltad 3x á dag...og í dag thar sem snjórinn er í raun løngu farinn og madur tharf ad leita til ad finna smá klaka...er allt morandi í thykkum løgum af salti út um allt...sem getur tæplega verid gott fyrir skóbúnadinn. Svo ad kósí hljódinu af snjó sem brakar undir skónum hefur verid skipt út fyrir thurrt og pirrandi salt hljód...ekki nógu jóló!

Jólaskrautid verdur sett upp um næstu helgi...vei...og vel flestar jólagjafir komnar í hús(ja eda réttara sagt annara hús)...s.s. nægur tími fyrir skólann og kósíheit!

föstudagur, nóvember 21, 2008

Tja

Varúd...gæti lyft munnvikunum ørlítid...sjá hér

miðvikudagur, nóvember 19, 2008

Huggulegheit...

Mér finnst alltaf fyndid hvad danir nota mikid ordid "hyggeligt" og ad thad sé notad af øllum vid allskonar adstædur. Thó ég sé nú farin ad slysast til nota thad sjálf endrum og sinnum.

Í vinnunni í morgun heyrdi ég ørstutt samtal hjá tveim mønnum sem køstudu kumpánlegri kvedju á hvorn annan á ganginum. Bádum mønnunum má lýsa sem frekar grófum týpum, bjórvømb og skeggrót...

"nei bleeeessadur"
"já sæll"
"takk fyrir sídast"
"já sømuleidis, thad var virkilega huggulegt á pøbbinum"

-kannski er thad bara ég en ég á bara ferlega erfitt med ad venjast thessu...

mánudagur, nóvember 17, 2008

Gamalt og gott...

...og er barasta hámóðins!
Takið t.d. eftir magatöskunni, uppháu sokkunum,skræpótta settinu og sólgleraugunum:)

miðvikudagur, nóvember 12, 2008

Loksins...

...á mannamáli!

hjartanlega sammála þessari ungu dömu.

"thanx for nothing saurbjöllukúkar!!!!"

þriðjudagur, nóvember 11, 2008

Flutt...

í fína íbúd á Íslandsbryggju. Erum voda kát og hress med thad...
Getum greinilega ekki búid á sama stad lengur en 2 ár. Thó ad flutningar geti nú verid ansi threytandi til lengdar.
Allir gestir velkomnir á nýja stadinn!!!

Nokkrar myndir frá nýja svædinu...flest allt sumar myndir thví thá er sko líf og fjør hér á Íslandsbryggjunni.


fimmtudagur, október 30, 2008

þriðjudagur, október 28, 2008

Segdu mér...

...er thátturinn "fjor á fjolbraut" thad sama og Beverly Hills?

update:

í samvinnu við systur mína leysti ég ráðgátuna um fjör á fjölbraut...það er s.s. Heartbreak High en ekki Beverly

mánudagur, október 27, 2008

Fussum svei!

Nei hvur fjárinn.... er mér sko nóg bodid!!!!

mánudagur, október 20, 2008

Loksins...

Snidugt ad tjékka hvar er ódýrast í bíó ádur en madur fer út...og jafnvel hvar bananarnir séu hagstædastir ádur en madur verslar...hér

sunnudagur, október 19, 2008

Hressir?



Svona passlega nørdaleg hressing á þessum tímum:)

Hahaha

Jólagjöfin í ár fyrir betri helminginn?

þriðjudagur, október 14, 2008

Mannlegra Ísland!

Mér líst vel á ýmislegt sem hann segir.
Kominn tími til að taka nokkur skref aftur á bak(í tíma) og byrja upp á nýtt.

Haldiði að ísland fái nýtt nafn...svona formlega...?

"So, my friend, how do you like New Iceland"??

-New Zealand fær samkeppni.

laugardagur, október 11, 2008

Stolt siglir fleygið mitt...

...á þessum tímum þýðir ekkert annað en að vera bjartsýn og hugga sig við það að þetta gæti nú verið verra!
Ég sýni samhug í verki og skellti í íslenska ömmukanelsnúða(samkvæmt uppskriftinni...ja gott ef ekki í fyrsta skipti svona ein míns liðs. Er afar stolt af sjálfri mér akkurat núna!

Annars er engin merkjanleg krísa hér í danaveldi..hús fall í verði og eitthvað hækka matvörur og bensín en fólk er svosem ekkert að stressa sig á þessu. Þingið hér er kannski líka athugulla á steðjandi vandamál en einráðarnir heima. Ég hef heyrt að þeir séu hér að vinna að einhverjum "pakka" sem eigi að hægja á og gott ef ekki snúa við krísu-þróuninni.
Ég fæ þó fjölda samúðaróska frá dönum í kringum mig sem eru voða sorrí yfir þessu öllu saman..kannski ég fari bara að ganga með söfnunarbauk á mér svona til að þeir geti verið okkur meira að gagni en bara verið sorrý;)...og þó...

Jæja snúðarnir tilbúnir og ég þarf að kanna útkomuna....vel og vandlega!

góða helgi

miðvikudagur, október 08, 2008

Smá fyrir Guðrúnu Rögnu:

Red house

Dansk dynamit

Green grass design

Skrípó

Til að stytta þér stundirnar:)

Thema-blogg: "Sparnadur"

Hefur sjaldan eda aldrei verid meira videigandi en núna:

http://www.skotsilfur.com/
Mjøg snidugur sparnadarvefur!
Tjékk it át!


Svo er til gamans hægt ad bæta vid ørfáum sparnardar rádum sem ég hef notad í gegnum árin(enda fátækur námsmadur;)

-Notadu bara hálfa uppthvottavélar-tøflu fyrir hverja vél...gerir alveg sama gagn og heil og thú tvøfaldar thvottana í einum pakka.
-Thú tharft ekki ad nota svona mikid thvottaefni..minna does it...og er umhverfisvænna.
-Uppthvottabursta má skella í uppthvottavélina og verdur hann thá eins og nýr.
-Uppthottaløg má drýgja med vatni og sama gildir um fljótandi handsápur.
-Bakadu thitt eigid braud og frystu...thar er hægt ad spara marga marga peninga!
-Hugsadu kvøldmatinn thannig ad thú getir notad afganga í nesti daginn eftir.

Hmmm...kannski getur einhver notad thetta...thví margt smátt gerir....

laugardagur, október 04, 2008

Hm!?

Stjörnuspá tekin af mbl.is í dag:

Ljón: Þegar þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að framfleyta þér ertu hugmyndaríkari manneskja. Þú græðir á fjárfestingu og þú getur því leikið þér.

Hvað eru þeir að reyna að segja mér...á ég að kaupa hlut í Glitni? Ég hef ekki ekki haft áhyggjur af því að framfleyta mér síðan árið 2000...þetta er nú meira bullið!

Og hver er eiginlega að fjárfesta á svona tímum?!
Ég leik mér bara samt....

*Hnuss*

fimmtudagur, október 02, 2008

Daily stuff...

er núna með æði fyrir old school poppun af poppi í potti:)...PPP
Er með glært lok á pottinum...var alveg búin að gleyma hversu maganð það er að sprengja fullt af baunum....já og auðvitað fá svo að ráða salt magninu sjálf! Skil vel af hverju mér fannst þetta svona mikið sport þegar ég var lítil!

Svo erum við með út þennan mánuð ókeypis sjónvarpsstöðvar...því við vorum að fá nýtt kerfi í húsið....s.s.40 sjónvarpsstöðvar með fullt af góðu stöffi....en ég hef bara hingað til(á degi tvö) engan tíma til að horfa á þetta allt saman!
Og svo er líka spurning hvort maður eigi að taka fréttir á frönsku fram yfir sænka barnatímann...eða norska heimildarmynd fram yfir ítalska spurningakeppni! úff...too many choises!

þriðjudagur, september 30, 2008

Dagdraumar...

ég hef verið of upptekin til að blogga síðustu daga...skólaverkefni og vinna.
En inn á milli eyði ég tíma í að skoða skemmtileg blogg sem ég hef fundið...það fullt af þeim þarna úti...

Ákvað að deila með ykkur nokkrum dæmum um þau sætu/áhugaverðu/fyndnu/fallegu blogg sem ég hef verið að kíkja á:

Desire to inspire
Design mom
Packaging
FFFFOUND
Design for mankind
Makool loves you

Enjoy!

þriðjudagur, september 23, 2008

Ha ha..!

Margt gott hér....nema ad mér finnst stíflur ekki tøff, er meiri mosa manneskja

mánudagur, september 22, 2008

Tja...

...komin heim frá Osló..eða eiginlega löngu komin heim.
Það var bara voða næs...áttum svakalega fína helgi með norsku/dönsku vinum okkar.
Röltum um bæinn og kíktum meðal annars á nýja óperuhúsið sem er inspirerað af borgarísjaka. Ég fékk snjóblindu á meðan við röltum um þakið, eins og sést kannski á augum mínum á næst seinustu myndinni. Þessi marmaraklumpur er bara of hvítur.






Að borða vöfflur eftir sunnudagslabbitúr í kringum Sognsvaten.

þriðjudagur, september 09, 2008

Jæja mánadar br.afmæli...

...held thad heiti nú ekki neitt sérstakt. En vid føgnum thví engu ad sídur..hehe;)

Á føstudaginn skellum vid okkur til Noregs ad heimsækja Benjamin og Ane í Osló. Fengum svo ódýra flugmida. Ég er ordin ansi spennt bara..thad verdur voda stud ad skreppa svona stuttlega út fyrir bæjar(og lands)mørkin. Osló er líka svo huggulegur bær...ég var thar seinast thegar ég heimsótti Eddu Elísabetu á medan hún var í skiptinámi í háskólanum. Ég ætla ad strolla nidur Karl Johan og skoda mig um í Grønnelykke hverfinu sem ég nádi ekki ad sjá sídast(ekki í dagsljósi amk.) Eini gallinn er kannski ad Osló er ekki medal ódýrustu borga sem hægt er ad heimsækja en madur lætur sig svo sem hafa thad fyrir smá upplifelsi:)

Thad er ad koma haust...sem betur fer kemur thad hægt og rólega hérna..svo madur skiptir rólega úr hlýrabolsstiginu í peysuna og thadan í jakkann....er ekki komid lengra enn sem betur fer.
Annars bara skólinn byrjadur og lífid aftur ordid rútína sem inniheldur mikid af hjólun á milli stada(mest skóla og vinnu). Ég krydda thó rútínuna ødruhvoru med smá skólapartýjum, vinahittingi og ødru glensi. Hittum nú sídast Birnu G. sem var med T.J. í skóla og er hún hér i nokkrar vikur í vidbót...ma og pa á leidinni í næsta mánudi...svo thad er enginn lognmolla í danaveldi!

P.s. Vatnó...hugsid til mín annadkveld thegar saumóinn fer í gang...væri svo til í ad geta verid med!

föstudagur, september 05, 2008

Gamall draumur rætist!

Kannski finnst sumum það vera klént, kannski finnst sumum það vera ofsalega fullorðinslegt...
en mér er alveg sama...loksins á ég mína eigin KitchenAid hrærivél!!
Alveg frá því að ég var lítil hef ég dáðst að (karrílitaðri) KitchenAid vél móður minnar sem færði okkur fjölskyldunni margar kræsingarnar.
Nú hef ég fengið mína eigin....og tekur þessi tímalausa og glæsilega hönnun sig afar vel út á borðplötunni minni:)
Ég ætla mér sko að vera ofur dugleg að nota hana...heimabakað á hverjum degi....tja eða svona næstum

Isin´t she beautiful?!

fimmtudagur, september 04, 2008

Hjónalíf.dk

Jæja...ég hef verid gagnrýnd fyrir bloggleysi um frábæra atburdi seinustu vikna...og vikurnar lída hratt. Thad hafa thó verid settar inn nokkrar myndir thar sem tilgangurinn var ad láta myndirnar tala:)

Eins og margir vita áttum vid frábæran brúdkaupsdag og í raun frábærar tvær vikur á Íslandinu(sem einnig var eina sumarfrí okkar hjóna)thó thær hafi lidid hratt. Vïd vorum og erum voda sæl og glød med allt saman. Yndislegt ad fá ad eiga thennan tíma og dag med fjølskyldunni og vinum:)Vid fengum margar fínar gjafir, kvedjur og framúrskarandi adstod frá fólkinu okkar sem vid thøkkum kærlega fyrir!

Svo lenti ég líka í thessari stórskemmtilegu gæsun sem mínar kæru vinkonur høfdu skipulagt fyrir mig. Mótorhjól, listflug yfir Reykjavíkinni og nágreni, picnic og bláa lónid ásamt edal matarbodi um kvøldid...thær voru voda gódar vid mig og sjá ábyggilega eftir thví núna ad hafa ekki verid meira nasty;) En ég er hæst ánægd med thennan dag stelpur og hefdi bara helst viljad hafa ykkur allar med upp í flugvélina og aftan á hjólinu. Mucho gracias amigas:)Nú vantar mig bara myndir frá thessum frábæra degi..(*hint hint*)

Vid hjónin héldum jú til Køben eftir brúdkaupsferdina og á tveggja vikna brúdkaupsafmælinu okkar héldum vid brúdkaupsveislu í Køben fyrir dønsku deildina. Thar áttum vid líka frábæra kvøldstund med vinum okkar hér og fjølskyldu Trolla.

Á sunnudeginum eftir dønsku veisluna ákvádum vid ad thad væri komid nóg af brúdkaupi í bili...thó thetta sé alveg rosalega gaman thá er thetta líka eitthvad sem krefst smá sløkunar eftir tveggja vikna "stanslaus" hátídarhøld.
Eitt stykki brúdkaup, tvær brúdkaupsveislur, honeymoon í kringum landid, frábær gæsun, tvø stykki afmæli(okkar eigin)og nokkrar flugferdir á rúmlega tveimur vikum er ansi vel af sér vikid:)

Nú er skólinn minn byrjadur á ný...seinasta árid í bili...og thad verdur tekid med stæl(vona ég). Vid hjónin høfum thad bara gott og njótum hins gifta lífs, sem er jú ALLT ANNAD en thad sem vid lifdum hér ádur fyrr:)

Knús á línuna!

sunnudagur, ágúst 31, 2008

Tvö stykki myndir



Myndir: Sigurgeir Sigurðsson

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Honímún!

Ég veit að þessar myndir eru kannski ekki í tímaröð miðað við að brúðkaupið kom á undan honeymúninu....en þar sem við erum ekki búin að ganga frá brúðkaupsmyndunum þá fá lesendur bara að sjá nokkrar úr ferðalaginu fyrst:)
Ferðin var æði og við hefðum ekki getað fengið betra veður. Ísland er best í heima....eða stórasta í heimi(fer eftir því hvernig maður lítur á það).

Ferðaáætlun...Keyrt suður eftir landinu...gist á Höfn...keyrt upp firðina og stoppað stutt í víkunum og svo kíkt í Seyðisfjörð áður en við gistum á Eiðum. Svo var haldið í útsýnisflug við Mývatn yfir Dettifoss, Jökulsárgljúfur, Námaskarð, Kröflu, Ásbyrgi, Hverfjall og fleira og fleira...svo var gist í Húsavík...yndislegur bær. Haldið í Ásbyrgi og Hljóðakletta ásamt stoppi á Torfunni á Tjörnesinu til að kíkja á lundavarpið. Aftur gist í Húsó. Svo brunað heim með stutt stopp á Króknum í kaffi hjá frænku.....
Bjútífull...upplifðum alltof mikið á alltof stuttum tíma. Gerum þetta sko aftur!!

Lov


Á Höfn í Hornafirði

Fann stafinn minn

Sáum þennan sæta foss

Picnic á Djúpavogi

Útsýnisflug yfir Dettifoss



Jökulsárgljúfur....sést í hljóðakletta og rauðhóla

Jökulsárgljúfur again

TJ að dýfa tánnum í mjööög heitt vatn í Grjótagjá


Séð yfir Ásbyrgi

Við (við Botnstjörn í Ásbyrgi)

mánudagur, ágúst 18, 2008

Tilbage i København

Ég lofaði elsku bestu systur minni að blogga. En er bara orðin of þreytt núna....geri ráð fyrir að henda inn myndum og færslu á næstu dögum.

Þolinmæði þrautir vinnur allar!

1lov

fimmtudagur, júlí 31, 2008

Hugleidingar og heimferd

Rakst á thessa frétt á mbl.is..........ég er ekki frá thví ad all flestir íslendingar séu med snert af thessari fíkn...ég meina hver tjékkar ekki póstinn sinn oft á dag og verdur eirdarlaus ef hann kemst ekki í ad skoda amk. einn netfjølmidil á hverjum degi.
Kannski væri thad thjódrád ad opna eins og eina "Betty Crocker rehabilitationcenter" netfíklastød á Íslandi. Bædi fyrir landsmenn og Hollywoodstjørnur. Thad væri vel hægt ad græda á thví. Ég myndi íhuga ad skrá mig...væri ferlega gott ad losna alveg vid undirliggjandi áhyggjurnar af thví ad madur væri ad missa af mikilvægu símtali, netpósti eda breakthrough frétt....tala nú ekki um facebook og allt thad.

Annars er heimferdarfílingur komin í mig...fljúgum heim annadkvøld og thá verdur vonandi brunad beint í bústad og gerd fallbyssukúla í heitapottinn(og neitad ad fara upp úr honum í amk. 12 tíma).Sé reyndar ad góda vedrid kvedur klakann um leid og vid lendum...en ég ætla nú ekki ad láta thad hafa áhrif..fuss!

Thetta verdur stud!
Sjáumst heima mín kæru...

föstudagur, júlí 25, 2008

So true...




Eru ekki allir sleipir í dønskunni....?;)

fimmtudagur, júlí 24, 2008

Dagarnir svo lengi ad lída....

...og thad eru ekki einu sinni ad koma jól!

Lítid ad gera í vinnunni, sól og hiti fyrir utan skrifstofugluggann og smávegis heimthráar-tilhløkkun...ég tel thetta allt gera thad ad verkum ad dagarnir lída á hrada snigilsins...

oh my!

Gód sólarspá um helgina og mín verdur sko mætt snemma á teppid med sólarvørn í annarri og eitthvad snidugt í hinni fyrir turbó grillun....

p.s.Erudi annars ad gera ykkur grein fyrir thví hversu fáránlega erfitt thad getur reynst ad finna réttar servíettur ef madur er med ákvedinn lit í huga!!?!! Word of advise:"Byrjidi ad leita núna."

þriðjudagur, júlí 22, 2008

Dýrt gaman....

Tekid af Vísi, 22. júl. 2008

"Dýrasta konfekt í heimi hefur verið sett til sölu í Harrods versluninni í London.

Askja með 49 konfektmolum kostar rúmlega 750.000 krónur. Molunum er pakkað inn í leður og handsaumað silki. Molarnir eru búnir til í Líbanon úr lífrænu kakói og þeir eru skreyttir með gulli, kristölum og silkirósum.

Talsmaður Harrods segir að eftirspurn viðskiptavina þeirra eftir svona sælgæti hafi valdið því að ákveðið var að bjóða upp á þetta sælgæti í versluninni."



Thad var sko ég sem spurdi eftir einmitt svona súkkuladi....ég gat audvitad ekki vitad ad their myndu missa sig í kostnadinum.

Hvernig ætli svona súkkuladi líti út...ætli thad sé eitthvad varid í thad eda brydur madur gimsteina og silki..?!

Thá vildi ég frekar djúpur!

mánudagur, júlí 21, 2008

Arna átti afmmmmæli í gær!


Til hamingju Arnie!
Bakadi thessa í tilefni gærdagsins.....*lygaramerki*

föstudagur, júlí 18, 2008

Tileinkad Harps....og pínu fyrir Siggu


Sharon Jones and the Dap kings...klassa soul/jazz


Hot Chip...sætir nørdar í studi


Judas Priest...gamalt heavy rokk...ég er alls ekki fan...en gaman ad sjá thetta fræga band spila


Swollen Members...gAAAAmalt hiphop


Queen Ifrica...gladlegt reggea

Já Harpa mín....nú ertu med á nótunum;)

og svo eitt danskt fyrir Siggu Gydu í lokin

sunnudagur, júlí 13, 2008

ÉG ÆTLA AÐ EIGNAST ÞENNAN BÍL!!!!!!



Nammmmmmmmmmmmmmmmmmm.....................

laugardagur, júlí 12, 2008

Hrói í myndum

Ég var svo heppin að fá óvænt ókeypis armband á Hróa. T.J. hringdi í mig á laugardags eftirmiðdegi og sagði mér að stökkva upp í bílinn og bruna til Hróarskeldu. Sem ég gerði...og náði slatta af tónleikum þrátt fyrir að vera "seint" á ferð (miðað við að hátíðin hófst á fimmtudegi).
Sáum meðal annars Queen Ifrica, Judas Priest, Swollen Members og Neil Young á laugardeginu( ég stjórnaði ekki alveg dagskránni;) Og á sunnudeginum sáum við Sharon Jones and the Dap Kings, ásamt rúsínunum í pylsuendanum Hot Chip og Jay Z (þó ekki saman).

Laugardagur


Sandra og ég í sólinni...


...að hlusta á TJ lýsa einhverjum tónleikunum.


Orange scene fyrir allar stórstjörnurnar.


Röðin til að vera fremst á tónleikunum...þarna er fólk að bíða eftir Neil Young. Röðin við hliðina á er fyrir Chemical Brothers sem byrjuðu mun seinna um kvöldið..samt er fólk byrjað að bíða í röð.


Loksins er byrjað að spila..


..og maaaargir mættir til að hlusta


Neil Young lét "comb over" greiðsluna fjúka og rokkaði.

Sunnudagur


Mikil stemmning á Hot Chip


Penu Chip-strákarnir á sviðinu


Svo kom RIGNINGIN á seinustu tónleikunum.


Ég og Sandra að horfa á JayZ


Mikið dansað og jiggað á JayZ

fimmtudagur, júní 26, 2008

Sumarfrí!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Loksins loksins sumarfrí.
Sídasta prófid í gær.
Hélt upp á thad med ad fara á Erykah Badu tónleika med Siggu.
VEEEEEEEEEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!

sunnudagur, júní 15, 2008

Afmæliskveðja



Sigga Gyða á afmæli í dag....og heldur upp á það með pompi og pragt í Berlín!!
og svo verður smá eftir ammæli í Köben þegar hún mætir á þriðjudag!

Til haingju með daginn sis!

föstudagur, júní 06, 2008

Helguvík

Af hverju eru það bara útlendingar sem gera eitthvað í málinu?
Það eru ansi margir íslendingar sammála honum...en fæstir gera neitt í því.

Kannski fyrir utan Björk og Sigurrós...en síðan hvenær hafa tónleikar haft drastísk áhrif í svona málum?

fimmtudagur, júní 05, 2008

Ekki láta fram hjá ykkur fara...

...þessa einkar sniðugu sýningu.
María "frænka" er að koma þessu á laggirnar og verður hún áhugaverð mjög.

Í dag...

...mun frækni ferðalangurinn hún systir mín fljúga frá Buenos Aires til London. Og frá London til Amsterdam...í Argentínu skellti hún sér meðal annars í fallhlífastökk með blá-ókunnugu liði.

...ég fór aftur á móti í klippingu.

hvor systirin er djarfari og á meira spennandi líf þessa dagana?!

Tja..maður spyr sig.

þriðjudagur, júní 03, 2008

Það er aldeilis...

...stór jarðskjálfti og ísbjörn....og það í sömu vikunni.

Bæði eru atburðir sem gerast örsjaldan á skerinu okkar.

Hvað ætli gerist næst?
Kannski lækkar verð á bensíni......

laugardagur, maí 31, 2008

ógissla gaman




man ekki einu sinni hvenær ég gerði svona síðast...en þetta er bara mega stuð!!

föstudagur, maí 30, 2008

Skjálftavaktin...

Thad er aldeilis ad thad gengur mikid á heima á klakanum. Verid ad hrista rækilega upp í íslenskuthjódinni. Vonum bara ad thad komi ekki meira svona næstu áratugina.

Skrítid ad ég sé alltaf fjarri gódu gamni thegar svona skjálftar láta finna fyrir sér. Ég missi alltaf af "fjørinu" en kannski er thad lán í ólani.


Skil á verkefnum á mánudaginn eftir helgi.
Brunch med honum TJ mínum í hádeginu á morgun. Flugdreka partýí Malmø seinnipart og kvøld. Bíltúr í sumó á sunnudag.
Upp undir 28 grádur um helgina.

Awesome!!

sunnudagur, maí 25, 2008

fimmtudagur, maí 22, 2008

Eigum við að ræða þetta e-ð...?




Why,why why?

Sumt á bara að fá að vera í friði fyrir framhalds-trendinum!!!

sunnudagur, maí 18, 2008

"Nobody puts baby in a corner"


Loksins skil ég þessa setningu til fulls...


Í gær sá ég s.s. í fyrsta skipti á ævinni myndina Dirty dancing frá 1987 með hinum fótafima Patrick Swayze og Jennifer Grey.
Þar sem að ég hef sífellt verið að rekast á eða heyra tilvitnanir í myndina í gegnum árin þá ákvað ég að láta verða af því og varð ekki fyrir vonbrigðum. Dans og aftur dans...rosalega hefur verið gaman að vera upp á sitt besta í þessu dansæði öllu saman. Dirty dancing, Fame og fleira í þeim dúr. Þá voru allir alltaf hressir og það villtasta sem fólk gerði til að skemmta sér var að dansa í laumi. Og já auðvitað....ástin sigrar alltaf að lokum....what else:)!

Þó ég sé milljón árum á eftir öllum öðrum þá mæli ég með þessari mynd fyrir aðra kvikmyndaletingja(eins og mig) sem eiga eftir að sjá hana.