fimmtudagur, mars 29, 2007

Litið að gerast her i landi vors og bloma...

...er samt á fullu í skólanum. Litafræði er viðfangsefnið þessar vikurnar. Mikið hægt að læra í þeirri deild..amk. meira en mann grunar. Það krefst stundum mikillar þolinmæði þó þetta sé áhugavert og skemmtilegt.

Það er blessunarlega gott veður hjá okkur núna sem er bara frábært því kuldaskræfan ég er mikill hitatölu-aðdáðandi. Fólk er að komast í sumar stemmningu og jafnvel farið að tala um að fara á ströndina og að grilla.

Annars er ég bara að kvitta fyrir mig núna til að halda lífi í síðunni. Dettur ekki neitt sniðugt í hug sem gæti verið áhugavert fyrir ykkur að lesa og þar af leiðandi ætla ég bara að koma aftur við seinna.

p.s.
Harpa...þið hefðuð nú geta stoppað við í kaffi hjá mér fyrst að þið fjölskyldan voruð á svæðinu hvort sem er;)
Guðrún R....já það eru breytingar frammundan í íbúðarmálum. Þið Ingiber verðið bara að drífa ykkur yfir til okkar til að fá updeit.

Góða helgi mín kæru:)

sunnudagur, mars 25, 2007

Frjals a ny...

...ég er risin úr rekkju!
Eftir 5 daga af algjöru lystarleysi, orkuleysi,magakveisu og ömurlegum hita hef ég loksins loksins loksins komist aftur í heim lóðréttra.
Þessi leiðindar veikindi gáfu mér einungis um það bil 2 daga í samveru foreldra minna sem höfðu tekið sér tíma til að heimsækja mig hingað í Baunaland. Talandi um góða tímasetningu hjá mér!!!
Seinasti dagurinn þeirra var í dag og fengum við geggjað vorveður í bíltúrnum okkar...ekki frá því að maður hafi fengið smá lit.

Framundan mikið að gera í skólanum fram að páskafríi. Ég geri ráð fyrir að hluta af páskafríinu verði varið í sumarhúsum hér í Dk og líka e-ð í Svíþjóð.

Íbúðarmál eru í vinnslu og á góðri leið og læt ég vita meir með það þegar við höfum fengið pappíra í hendurnar.

Ást og hamingja

Fyrrverandi sjúklingurinn...sem er laus við pestina....jeij!

fimmtudagur, mars 22, 2007

....

veikindi->rúmliggjandi
heimsókn foreldra

skrifa e-ð sniðugt við fyrsta tækifæri.

sunnudagur, mars 11, 2007

Vorboðinn...

ég ætla að leyfa mér að segja að vorið sé á næsta leyti hér í Köben( þó að svona yfirlýsingar hafi yfirleitt ekki reynst vel!)
Sólin er farinn að sjást meira og getur maður greint örlítinn hita í loftinu. Þó maður hlaupi ekki niður á strönd með grillið undir vinstri og bjórinn í hægri þá er þetta vissulega í áttina.

Maður verður alltaf svo brjartsýn og jákvæð þegar sólin kemur og þar af leiðandi erum við farin að dunda okkur við íbúðarpælingar. Erum með augastað á tveimur þó að önnur þeirra sé að slá meira og meira í gegn hjá okkur.
Ákvörðun verður tekin á allra næstu dögum.

Vonandi er vorið líka að hressa ykkur við þarna heima!
Skrifa meira fljótlega

miðvikudagur, mars 07, 2007

Oeirðirnar minnka

...og vonum að það haldist. Það er eitthvað skrítið við að þurfa að halda sig frá ákveðnum bæjarhlutum til að lenda ekki í vandræðum. Maður getur til dæmis ekki ímyndað sér að svo gerðist á Íslandinu, burt séð frá þeirri staðreynd að það er ekki til mannafl í almennilegar óeirðir á Klakanum.

Hér er rigning og grátt veður. Ekkert til að monta sig af...

Ég er í skólanum eins og venjulega og áfram heldur strigaskós verkefnið mitt. Skil í næstu viku. Set kannski inn sýnihorn hérna þegar ég er búin.

Ma og pa ætla að heiðra mig með nærveru sinni í lok mars og er ég hæst ánægð með það. Þau munu í leiðinni halda upp á 25 ára brúðkaupsafmæli og ég mun halda upp á 25 ára skírnar-afmæli( sem er glænýr hátíðardagur sem ég fann upp á)
-25 ár sem Hildur...ekki amarlegt afrek það!

Jæja....nóg í bili!

fimmtudagur, mars 01, 2007

Dagurinn i dag...

Baráttan um Ungdomshuset á Nørrebro í dag.