...ég er risin úr rekkju!
Eftir 5 daga af algjöru lystarleysi, orkuleysi,magakveisu og ömurlegum hita hef ég loksins loksins loksins komist aftur í heim lóðréttra.
Þessi leiðindar veikindi gáfu mér einungis um það bil 2 daga í samveru foreldra minna sem höfðu tekið sér tíma til að heimsækja mig hingað í Baunaland. Talandi um góða tímasetningu hjá mér!!!
Seinasti dagurinn þeirra var í dag og fengum við geggjað vorveður í bíltúrnum okkar...ekki frá því að maður hafi fengið smá lit.
Framundan mikið að gera í skólanum fram að páskafríi. Ég geri ráð fyrir að hluta af páskafríinu verði varið í sumarhúsum hér í Dk og líka e-ð í Svíþjóð.
Íbúðarmál eru í vinnslu og á góðri leið og læt ég vita meir með það þegar við höfum fengið pappíra í hendurnar.
Ást og hamingja
Fyrrverandi sjúklingurinn...sem er laus við pestina....jeij!


3 ummæli:
gott að þú hefur náð bata darling, sendi þér kossa og knús. verði í næsta "húsi" í deutchland út þessa viku....þú hlýtur að finna straumana;)
good luck í skolen og íbúðarmálum. hlakka til að heyra meira.
luv....frá mér, chrissy emm og að sjálfsögðu man of the house.
harps.
velkomin á lappir. ég veit hvað þetta er leiðinlegt, nema að ég slapp blessunarlega við æluna.. sjöníuþrettán! :)
íbúðarmál? Ha, hvað, eruð þið að fá nýja íbúð, ég hef greinilega algjörlega misst af.
Skrifa ummæli