miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Enduruppgötvun


...var að horfa á bíómynd sem ég datt óvart inn í í sjónvarpinu. "White Oleander". Ég hafði aldrei séð þessa mynd áður þó að nafnið virtist örlítið kunnulegt. Michelle Pfeiffer lék í henni ásamt René Zellw. og Noah úr Bráðavaktinni...og svo fleiri. Góð mynd þar á ferð...að mínu mati. Ég er jú svoddan sökker fyrir myndum með "a little of everything":drama, rómó og allt hitt.
Þarna enduruppgötvaði ég líka hvað mér finnst M. Pfeiffer vera töff leikkona og sterkur karakter....man fyrst eftir henni í gömlu góðu "Dandgerous Minds"(gangsters paradise) sem maður fílaði svo vel í denn.Nú langar mig bara að sjá hana aftur við fyrsta tækifæri!

Jæja annars lítið að gerast, Tj er veikur (liggur við að maður segi: komin tími til að leyfa sér loksins svoleiðins munað eftir sumarvinnuna;) Dagarnir mínir líða allt í einu furðu hratt og fyrsti skóladagurinn er ekki á morgun heldur hinn. Jeij!

Langar að mæla með nýja disknum frá Baggalút sem ég og TJ fengum í afmó. Uppáhaldslagið mitt akkurat núna er "Hún fór að fitna" ég er viss um að þetta lag ætti fullkomnlega við mig ef ég brygði mér til Hawaii- þá meina ég viðlagið sko.....mmmm kókoshnetuís, ananasfrómas og pina colada!! :)

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

bad, forstofa/gangur og stofa







-ATH. að við höfum enn ekkert sett á veggina. Smá hlutirnir eru ekki allir komnir á sinn stað og nokkrar bráðabirgða lausnir eru í gangi;) Svefnherbergið og vinnuherbergið koma seinna(= ég nennti ekki að taka til í þeim í dag;)

Myndir...eldhusið




Hættir!



...já þetta góðkunna band hefur lagt upp laupana. Sorglegt þar sem þeir (ásamt) öðrum hafa verið með til að gefa íslensku tónlistalífi smá krydd seinustu árin. Ég er voða ánægð með að hafa séð þá hér í Köben í sumar þar sem það var víst einn af seinastu sénsunum. Megi þeim vegna vel og gera e-ð nýtt og spennó.

Tæknin er annars alveg að fara með mig og suma af mínum nánustu. Ég ræði oft og iðulega við familíuna á skype sem er nottlega bara snilldar prógram fyrir millilanda samskipti. Í gær gaf ég svo systur minni "the grand tour" um fínu íbúðina okkar með vefmyndavél. Hversu tæknó er það?!!
Hugsið ykkur hvað hefur gerst á seinustu árum...þegar ég bjó hér seinast var það sko ekki á hvers manns færi að eiga webcam og hvað þá að ímynda sér að það væri hægt að tala í "símann" ókeypis í gegnum tölvuna. Maður þarf aðeins að halla sér aftur öðruhvoru og minnast þess hversu gott maður hefur það nú á dögum!

Smá áminning um lífsgæðin;)

mánudagur, ágúst 28, 2006

30 stöðvar

...í sjónvarpinu okkar. Þetta er sko e-ð annað en á Háteigsveginum þar sem rúv og skjár 1 voru valkostirnir.
Loksins get ég sappað almennilega eins og sönnum íslendingi sæmir. Gamla sjónvarpið okkar var sko bilað..svo að við þurftum alltaf að standa upp til að stilla inn myndina ef okkur datt í hug að skipta yfir á hina stöðina. Klárlega lúxuslíf hjá okkur núna þó að gamla góða sjónvarpið muni ávallt eiga stað í hjarta mínu;)

Þar sem ég er í mont horninu núna þá langar mig að skrifa stuttlega um nýjustu vinkonu mína hana Miele sem við fengum í afmælisgjöf. Þessi einstaki hlutur hefur nánast gert það ánægjulegt að ryksuga. Engin læti í henni og svo svífur hún um gólf á eftir mér hvert sem ég fer. Yndislegt alveg... hreinasta pleisið í bænum....að minnsta kosti ennþá;)

Í kvöld munum við loksins sofa í okkar rúmi hér í íbúðinni. Hingað til höfum við sofið í fína svefnsófanum sem við fjárfestum í fyrir alla framtíðar gesti okkar. TJ sótti loksins rúmið til ömmu hans í dag þar sem við höfum jú búið þar í allt sumar.
Mér finnst það vera svoldið svona punkturinn yfir i-ið þar sem þá er flest komið á sinn stað íbúðinni og heimilisfílingurinn að komast í samt lag. Jeij...home is where the bed is...finnst mér að það eigi að vera. Þó að klakinn verði ávallt hið eina sanna "home". Hef komist að þeirri niðurstöðu eftir marga búsetuna erlendis.

4 dagar í að skólinn byrji....

sunnudagur, ágúst 27, 2006

Hin sivinsæla hafmeyja




-ég er alltaf jafn hissa á því hversu kreisí vinsæl þessi litla hafmeyja er og líka finnst mér það alveg merkilegt hversu lítil greyið er....en túristarnir elska hana eins og sést á myndinni. Allir keppast þeir um að láta taka mynd af sér með henni...gaman að hafa eitt stykki svoleiðins í myndaalbúminu. Ég gat ekki stillt mig um að smella einni mynd af á crowdið.
Myndin er tekin úr bát svo við sjáum aftan á hafmeyjuna.

föstudagur, ágúst 25, 2006

Days go by so slowly...

.....þessa dagana er ég bara heima í rólegheitunum að mála aðeins þar sem þarf og dútla aðeins við heimilið. TJ er byrjaður í skólanum og fer út fyrir 9 á morgnanna. Skólinn minn byrjar eftir viku..þeir eru greinilega e-ð seinni að koma sér af stað..sem gefur í skyn að hann eigi ágætlega við mig;)

Mér finnst ég allt í einu hafa tonn af frítím sem er að sjálfsögðu ágætt. Ég er búin að kynna mér bókasafnið hérna og skoða hverfið betur. Fann meira að segja keiluhöll hérna í næsta nágreni...það verður nóg að gera hjá mér í vetur;)

Jæja þetta var bara smá innskot frá mér í hversdagsleikanum.

-kærlighed fra Danmark

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Komin timi til...

...að svona vefsíða (eða bæklingur í gamla daga) kæmi út.

http://www.framhald.is/

Frábært framtak hjá þeim ungu mönnum sem stóðu að þessu.
Þetta hefði nú getað auðveldað manni ýmislegt hér í denn.

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Kaupmannahafnar rigning...

...er öðruvísi en sú Reykvíska (ætli þetta sér rétt stafað hjá mér!).
Það koma dembur...alls svaðalegar dembur sem gegnumbleyta mann á augabragði. Þessar dembur bíða annaðhvort eftir að þú sért komin á bert svæði þar sem enginn séns er á skjóli eða þá að þú ert á hjóli með körfuna fulla af drasli sem gerir það erfiðara að stoppa(svo maður hjólar bara áfram). Já þetta er mín greining á dösnku rigningunni. Á Íslandi er rigningin öðruvísi...einhvernveginn mannúðlegri.
Anywho....þá erum við að taka upp úr kössum þessa dagana og setja saman hirslur til að geyma dótið úr kössunum í. Aðeins hefur hægt á framkvæmdar gleðinni eftir að sófinn kom og keyptir voru púðar til að gera hann enn þægilegri. En þetta mjakast þó...ég skrúfaði t.d. saman skóskáp í dag og fyllti og TJ...hmmm...gerði fullt annað á meðan;)

Ég hef lofað myndum...en ætla ekki að birta neitt fyrr en ég er hætt að reka tærnar í og hrasa um kassa á gólfinu.

-Spurning 1: Hefur einhver kynnt sér tónlistahæfileika Paris Hilton? Ég hef ekki verið svo heppin að heyra sjálf...bara heyrt um. Er fólk að digga þetta? Getur hún sungið?

-Spurning 2: Jeff Who og Eberg eiga að spila hér í Köben 1.sept...ég (hef heldur ekki haft tíma til að kynna mér þá) er þetta ekki ástæða fyrir mig til að skella mér? Hvað/Hver er Eberg?

p.s. nýtt blogg-lúkk í bili
commenting and trackback have been added to this blog.

mánudagur, ágúst 21, 2006

Loksins formlega flutt inn



Búið að vera mikið að gera seinustu vikuna. Allt á fullu við að klára sem mest í íbúðinni áður en fjölskylduboðið var haldið á laugardaginn. Við náðum að gera alveg heilmikið áður en gestirnir komu og á meðan ég spókaði mig í bænum(fimmt og föst) með foreldrunum og afa kláraði Troels það sem upp á vantaði. Boðið lukkaðist vel og allir voða ánægðir með útkomu framkvæmdanna.

Núna eru foreldrarnir allt í einu farnir aftur heim sem er frekar skrítið þar ég var farin að venjast því að hafa þau á svæðinu. En það þýðir bara að það sé kominn tími til að taka fötinn upp úr töskunum og koma sér svoldið fyrir í kotinu. Slaka svoldið á og njóta þess að vera sófa-kartafla í nýja sófanum okkar.



Kveðja frá
Borups Allé

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Ammmmæli 2



Jæja þá er minn stóri dagur runninn upp.
Ég hef ekki stækkað né vitkast að ráði frá því í gær...þrátt fyrir miklar væntingar.
Dagurinn mun verða haldinn í faðmi familíunnar á rölti um Strikið og jafnvel með bátsferð. í kvöld verður svo haldið upp á þennan merka dag á ástralska veitingastaðnum Reef n Beef...

Vonandi njótið þið dagsins míns!
Kveðja frá Oldie but Goodie;)

mánudagur, ágúst 14, 2006

Like thunder...like lightning..



Hér aldeilis mikið um þrumur og eldingar þessa dagana( þ.e. kvöldin) og þeim fylgir rigning....mikil rigning. Þessa seinustu daga hefur komið svo mikil rigning í hvert skipti sem við lögðum af stað hjólandi "heim" eftir vinnudaginn. Við höfum verið alveg rennandi þegar við loksins náðum fram. Núna höfum við gefist upp og höfum tekið upp á því að keyra bara heim í staðinn. Nennum ekki þessu wet-looki öll kvöld...hehe!

Það styttist í að foreldranir láti sjá sig hér og er maður farin að hlakka til inn á milli þess sem maður stressar sig svoldið á því að ná ekki að vera búin að klára það sem við viljum klára af íbúðarvinnu fyrir laugardaginn. Þá ætlum við að halda smá familíuboð í tilefni þessarar afmælisviku...tæknilega séð getum við alveg slegið dögunum okkar sama í hátíðarviku sem nær frá afmæli TJ til afmælisdagsins míns. Spurning hvort maður geri e-ð úr því á næsta ári...svoldið svona í anda airwaves...!!! "Troldur" eða "Hildoels"vika.

Jæja nú sé ég af skrifum mínum að ég er orðin alvarlega þreytt og þarf að hætta. Vaknaði lika snemma í morgun...öss...ekki láta það spyrjast!

Ég bið ykkur vel að lifa!!

laugardagur, ágúst 12, 2006

Ammmælisdagur 1

TJ hélt upp á afmælið sitt i gær...borðuðum frábærann brunch á uppáhalds kaffihúsinu okkar.
Enduðum afmæliskvöldið á því að skrúfa saman fataskáp sem við keyptum fyrir svefnherbergið;) Voða rómó

TJ vinnur eins og óður við að flísaleggja baðherbergið og miðar vel..ég hef fengið góðfúslegt leyfi til að taka upp úr kössum. Og geri það líka sem óð væri...kreisí people!
Ég einblíni á að við verðum flutt fyrir lok næstu viku.
Jeij!!

More later....

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Fyrsta helgin i agust buin...

...sem þýðir bara eitt. Seinasti séns til að fara í sumarfrí eða njóta sumasrins er á næsta leiti.
Skólar að fara að byrja og hitt og þetta haustlegt fer að láta á sér kræla.
Og við ekki enn flutt inn. Þetta nær engri átt...ég gerði mér engra grein fyrir því hversu umfangmikið verkefni svona "taka íbúð í gegn" tekur. Fussumsvei...það líður einhver tími áður en ég nenni að hella mér út í svona aftur. Markmiðið fyrir "innfluttning" er núna sett í kringum 16-18 ágúst. Já eða þá flyt ég inn hvort sem TJ ætlar með eða ekki;)

Annars er enn fínt veður hér í Köben. Hitastigið er breytilegt en fer ekki niður fyrir 20 gráður. Sem er hið ágætasta hitastig.
Núna er vika í að ma og pa og afi mæti á svæðið til að njóta sumarsins í Köben og til að samgleðjast mér á afmælisdaginn merka;) Að sjálfsögðu koma þau líka til að samgleðjast TJ og þar af leiðandi eru strax komin 2 tækifæri fyrir bjórkollu eða tvær:)

Siggz systir hélt til Mallorca í fyrirfram-útskriftarferð m skólanum í gær. Verður í viku og viku í London. Lúxus líf! Manni verður hugsað til tveggja skemmtilegra vikna á Krít hérna í denn. Það voru góðir tímar:)

Gleðifréttir vikunnar eru samt að Dröfn Ameríkó hyggst halda heim á klakann á ný. Ég er hæst ánægð þó að ameríka eigi eftir að sakna hennar...skiljanlega;)

Jæja nóg í bili...vonandi höfðu þið það gott um versló...hvert var annars farið eða hvað var gert?? Tell me, tell me...

laugardagur, ágúst 05, 2006

Verslunarmannahelgin 06



Njótið helgarinnar kæru landsmenn!!:)