mánudagur, nóvember 29, 2004

Plastur...anyone?

Tekið úr netfréttum:
"Band Aid 20's new version of Do They Know It's Christmas? is released today and is a dead cert for the Christmas No1 spot, according to the bookies.

But a Sky Showbiz poll has revealed a whopping 86% of music fans prefer the original version released 20 years ago this month."

Ég er sammála þessum 86% fólk sem fíla orginalinn betur...það passar bara eki að skella rappi inn í mitt jólalag með Bono og fleirum...er fólk að fíla þetta?

laugardagur, nóvember 27, 2004

Mette og Lea


Mette og Lea
Originally uploaded by .:eyjan.
Her er mynd af henni Leu vinkonu og roommate fra hojskolanum(til hægri) sem er buin ad vera herna nuna i 4 manudi og fer heim eftir viku...
Med henni a myndinni er annar danskur skiptinemi..

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Minna en tvær vikur...

...í próf!
Fékk einhver gæsahúð?.....good....því að ég fæ það þegar ég heyri minnst á prófin.
Reyndar ekki vegna prófanna sjálfra, heldur útaf þeim stutta tíma sem ég hef til að klára verkefni sem á að skila fyrir próf.
Kennarar halda að effektívasti tíminn til að skella verkefnum á fólk sé svona mánuði fyrir jól. Ég tel þá kenningu ranga, hver segir að fólk sé meira vakandi og áhugasamt akkurat á þessum tíma. Mín kenning er að fólk sé einmitt að vinna verr því öll verkefnin verði í raun copy-paste frá einu verkefni til annars....bara umorðað! Ég t.d. hef engann tíma til að vera funky í verkefnagerð þegar það er svona stutt til jóla....
Jæja nóg af kvarti og kveini...maður þarf bara að vinna á double hraða fyrir vikið!

Nú er mánuður til jóla...and counting:)
21 dagur þanga til Drafnskí kemur heim
Aðeins meir þanga til Edda snýr aftur
...og þá verður sko fjör!

P.s. ATH. Er að spá í að halda smá Vatnaliljufeeling þann 18 desember..þá er ég að meina PJÚRA DJAMM....einhverjar skoðanir um það?

mánudagur, nóvember 22, 2004

Spurninga dagsins....

...hverjum finnst danski þátturinn "Kroniken", sem sýndur er á sunnudagskvöldum í ríkissjónvarpinu, snilldar þáttur?

sunnudagur, nóvember 21, 2004

Hörku stuð...

...um helgina!
Föstudagurinn fór í ritgerðarskrif og smá skóla. Svo um kvöldið skellti ég mér á Bridget Jones 2. Fín mynd þó það sé kannski ekkert nýtt þar á ferðinni....eftir bíóið endaði ég á Vegamótum með Leu og Mette vinkonu hennar og svo einhverjum fleiri skiptinemum. Voða fjör... þar sem svona skiptinemafólk eru alltaf svo hresst!

Laugardagurinn fór líka í ritgerð þanga til ég nennti ekki meir og skrapp í Kringluferð með mömmu. Ferlega langar mann að versla mikið núna...jólaföt, jólagjafir, skraut og allan fja......maður þarf samt að reyna að hemja sig til mánaðamóta!:/
Um kvöldið fór ég í party með með Leu og hennar crewi og það var svona líka fjör....verst að kellan fer aftur heim til Danmark eftir 2 vikur....

Núna er sunnudags-ritgerðar-klárun í gangi. Ritgerðin er í rauninni búin fyrir utan eitt smáatriði...það vantar eina heila blaðsíðu með texta. Annars er allt komið...forsíða og heimildarskrá. Það er alltof pirrandi að þurfa að bulla heila blaðsíðu til að ná ákveðnum blaðafjölda þegar maður er búin að segja það sem maður vill..

Jæja...have a nice week!

föstudagur, nóvember 19, 2004

Khhhalt uthhiii...

..ertu að grínast með kuldann?
Ég bíð og vona að það komi í fréttunum að það hafi orðið veðra-ruglinur og við höfum fyrir misskilning fengið veðrið sem á að vera í Alaska....þeir munu kippa þessu í liðinn fyrir kvöldið!

plís plís plís

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Roma 2004

Er það bara ég eða eru Mtv awards nokkru sinnum ári...jafnvel á 2 mánaða fresti...ég spyr! Þetta er e-ð sem mér finnst ég alltaf vera að sjá eða þá sjá auglýsingar fyrir.

Anywho...fylgdist örlítið með verðlaununum í kvöld. Sumt fólk er bara töff ...og svo eru það þeir sem eru aðeins minna töff (mildly put)....en Pharell var flottur eins og alltaf ...og svo er hún Alicia K. sítöff þrátt fyrir sérstakan klæðnað í kvöld. Maroon 5 unnu bestu nýliðarnir og Outkast fékk 3 verðlaun. Miss B.Spears var besta female-in og Usher kallinn besti male-inn.
Fólk vann og fólk tapaði. Svoleiðins er það nú bara.

Verð samt að skjóta því að...að Róm og Ítalía, þar sem verðlaunathingið var haldið, er bara málið. Ég hygg á ferð þangað..ja kannski með vorinu...hver veit!

Góða nótt peeps

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Eindregin eftirspurn...

...hefur verið eftir frekara bloggi. Reyndar eru það aðeins tveir dyggir lesendur sem heimta meir og þar sem þeir eru þeir tryggustu og jafnframt ómissandi þá mun ég láta undan í von um áframhaldandi tryggð;)

Update:
Ýmislslegt hefur drifið á daga mína seinustu viku...og má þar nefna heimsókn ömmu TJ sem kom á laugardaginn og fékk að sjá það helsta í bænum...ja eða það sem hægt var fyrir snjóbyl. Ég skilaði ritgerð á mánudaginn og skilaði þá líka ferilmöppu í myndmenntinni...gleði! Við reyndum að fara með ömmuna í Bláa lónið í gær en urðum að snúa við hjá álverinu vegna snjó-crazyness, þar sem að við erum nú ekki á neinum jeppa....þetta endaði s.s. sem bíltúr í Hafnarfjörðinn og ekki meir...gátum ekki einu sinni notið útsýnisins á leiðinni þar sem gluggarnir voru bara fallega hvítir.
Ég heimsótti Þjóðminjasafnið í 4 sinn á innan við 5 vikum á þriðjudaginn.Amman var reyndar með núna. Þeir hljóta nú að fara að gefa mér frítt árskort bráðum...var mætt þar kl.11:10 um morgunin. Þeir opna 11!!

Í dag miðvikudag sendum við svo ömmuna heim og ég hélt 3. mínútna fyrirlestur um Jónas Hallgrímsson ásamt því að flytja ljóð eftir kallinn, allt í tilefni degi íslenskrar tungu sem var í gær og sem lokapróf í þessum námskeiði.
Ertu að grínast hvað 3 mínútur taka langan tíma...með réttum áherslum og áherslupásum, rétt öndun og rétt staða, verða að kunna textann nánast utan af ásamt því að muna að láta gleðina streyma úr brjósti sér í hverju orði....OH MY! Meðan maður beið eftir að komast í ræðupúltið fann maður fyrir miklum fótkulda, hrolli, svengd, klósett þörf og fleiru skemmtilegu....svo loksins þegar maður stóð við púltið með amk. 30 manns í salnum og 2 videóvélar sitthvoru megin við sig á rec. þá gekk þetta bara ágætlega eftir allt saman. Þessar 3 mínútur orsökuðu samt spennufall og ég svaf í klukkutíma eftir að ég kom heim....gleði gleði þetta er búið!

Núna bíður mín 10.bls heimildaritgerð um blah...en skiptir ekki máli...jólin eru að koma og tíminn líður alltof hratt. ég sem var að koma heim frá Norge fyrir fáeinum dögum í byrjun Nóv. og samt er 18.nóv á morgun. Akkurat mánuður í að ég sendi TJ til ríkis dana.

Heyrðu people ég ætla að láta þetta duga í dag...mun reyna að standa mig í stykkinu héðan af...

Ég styð "vatnaliljing" á mánudaginn hjá mér ef enginn annar er æstur í að bjóða heima.....

-Fraulichen Weinachen meine deutche Freunde-

laugardagur, nóvember 13, 2004

Allt að verða snældu vitlaust...

...biðst formlega afsökunar á bloggleysi. Það er bara akkurat svo mikið að gera núna að bloggun mætir afgangi..þ.e. að það kemur meira segja á eftir hangsi.
Þannig að þið heyrið fyrst frá mér kannski á fimutdag:)
Until then...have a great life!

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

nokkrar myndir fra Norge

...gerði mér nýtt myndaalbúm:

http://www.flickr.com/photos/26979219@N00/

þar eru myndir frá Noregsferðinni fyrir áhugasama. Ég tók ekki nógu mikið af myndum þar sem ég var svoldið myndalöt...en enjoy!

mánudagur, nóvember 08, 2004

heima a ny...

...jæja þá er maður komin aftur heim eftir mjög fína Oslóarferð
Við Edda tókum upp á ýmsu áhugaverðu. Ætla að sjá hvort ég nenni að skrifa ferðasögu á næstu dögum og athuga með að setja inn einhverjar myndir....

Ha´de!