...í próf!
Fékk einhver gæsahúð?.....good....því að ég fæ það þegar ég heyri minnst á prófin.
Reyndar ekki vegna prófanna sjálfra, heldur útaf þeim stutta tíma sem ég hef til að klára verkefni sem á að skila fyrir próf.
Kennarar halda að effektívasti tíminn til að skella verkefnum á fólk sé svona mánuði fyrir jól. Ég tel þá kenningu ranga, hver segir að fólk sé meira vakandi og áhugasamt akkurat á þessum tíma. Mín kenning er að fólk sé einmitt að vinna verr því öll verkefnin verði í raun copy-paste frá einu verkefni til annars....bara umorðað! Ég t.d. hef engann tíma til að vera funky í verkefnagerð þegar það er svona stutt til jóla....
Jæja nóg af kvarti og kveini...maður þarf bara að vinna á double hraða fyrir vikið!
Nú er mánuður til jóla...and counting:)
21 dagur þanga til Drafnskí kemur heim
Aðeins meir þanga til Edda snýr aftur
...og þá verður sko fjör!
P.s. ATH. Er að spá í að halda smá Vatnaliljufeeling þann 18 desember..þá er ég að meina PJÚRA DJAMM....einhverjar skoðanir um það?


Engin ummæli:
Skrifa ummæli