laugardagur, september 24, 2005

Boogie..

Langar að þakka vantaliljunum fyrir skemmtilgan OG mjög áhugaverðan "fund" á föstudagskvöldið. Það voru 5 meðlimir mættir, fengum höfðinglegar veitingar á Flókagötunni og frábært spjall. Það vantaði bara hana Dröfn okkar...sem var þó með okkur í anda...amerískum anda;)

Næsti "fundur" er bara pizzugillið hjá Harps og Hauk... :)

þriðjudagur, september 20, 2005

klukkeri...

Ég var að enda við að lesa hjá henni Harps að ég væri klukkuð. Ég sem hef einmitt verið að lesa nokkrar síður í dag þar sem fólk var að þessu klukki...og hugsaði einmitt djö...er ég heppin að lenda ekki í svona vitleysu:)
En viti menn Harpan er sér um sína..hehe
So here goes:
1.-ég elska saltstangir..get borðað þær tímunum saman...þanga til ég fæ brjóstsviða. Hef meira að segja þurft að henda pökkum til að hætta að maula þær.
2.-ég hef oftar en einu sinni fjárfest í rándýru líkamsræktarkorti og nýtt minna en 1/10 af því....ein ekki að læra af reynslunni!
3.-mér finnst afslappandi að þvo þvott
4.-eins og hún Harpa mín (gaman að komast að því svona) þá naga ég neglurnar..hef alltaf gert og virðist ekki geta hætt. Ósiður sem er ALLTAF í áramótaheitunum hjá mér...!
5.-mér finnst leiðinlegt að tala í gsm-síma...en hef samt gaman að því að spjalla í heimilissíma.

Hananú...5 useless facts um mig

Nú langar mig að klukka Birnu, Siggu Gyðu og ja bara þá sem lesa bloggið...þeir sem eru ekki með blogg geta bara sett það í kommentin...jebb

ath. að það er komið myndagallery á síðuna mína:)

Loksins nytt myndagallery!!

Jæja þá er komid nytt myndagallery...
Áhugasamir eiga endilega að kíkja á það.

Linkurinn er hérna aðeins neðar hægramegin á síðunni .

Ég er búin að henda einhverjum myndum inn og ætla að bæta fleiri við með tímanum!

Mikilvægt að muna--> Passwordið: nafnið mitt
Enjoy:)

mánudagur, september 19, 2005

Afmæli föður míns var haldið með pompi, potti og pragt á laugardaginn.
Ég hef ekki borðað jafn mikið í langan tíma...eða alveg síðan í Portugal;)
Fínt að fljóta svo um í nuddpottinum eins og blaðra þegar pása varð átinu með gestum og gangandi.Bústaðurinn er orðinn svo ferlega fínn að maður getur bráðum farið að skoða það að bjóða í bústaðarhelgar!

Nú er skólinn að drekkja manni í deadlines...og hann sem fór svo rólega af stað. ég reyni bara að vera dugleg og er í leiðinni að undirbúa vettvangsnámið. Ég fer í Hagaskóla og mun þar læra og kenna í 5 vikur. Það er ekkert stuttur tími í svona unglingaskóla...vona bara að maður komist lífs af:) Segi svona...þetta verður ábyggilega mjög skemmtileg reynsla!

Næsta föstudag er svo gilli hjá hinni nýbökuðu brúði Birnu í Grænuhlíð...spurning um að breyta nafninu Birna? Svona til að samræmast götuheitinu....ég sting upp á Anna!;) Ég er strax komin í stuð fyrir kvöldið....verður án efa sveitt geim..hehe

Jæja þarf að fara að ljúka upptökunum fyrir stuttmyndina mína...look out Eastwood!!

Hilsner Pilsner
-Hildzy

fimmtudagur, september 15, 2005

Afmæli afmælanna!

í dag hefur faðir minn náð þeim merka aldri fimmtugu. Ég óska honum innilega til hamingju með daginn og munum við fagna með honum næstkomandi laugardag í hinu glæsilega Héðinsholti!

Fimmtíufalt húrr!

sunnudagur, september 11, 2005

Helgin=>very nice

Sunnudagar eru yndislegir.
Gott veður og sól/enginn slappleiki/sund/Konditori Copenhagen/afslöppun og huggulegheit!!

Á föstudaginn brá ég mér út á lífið. Snæddum þrjár pæjurnar á Oliver, eftir að hafa komist að því að kl. 20:30 á föstudagskvöldi er of seint að ná sér í borð á Vegamótum. Það fór þó allt á besta veg. Maturinn á Oliver er ágætur..ég get amk. mælt með New York salatinu og það sem hinar voru með leit líka mjög vel út. Meðalaldurinn á staðnum var þó yfir mínum aldri fram undir miðnætti, þá fóru djammþyrst ungmenni að ýta eldra liðinu út. Við vorum í ágætis gír og hittum mikið að háskólaliði sem var að fagna hinum árlega degi skólans. Mjög gaman og mikil stemmning.
E-ð vorum við samt slappar í þetta skiptið og héldum, hálf þreyttar, heim á leið um tvöleitið.
Fíluðum okkur svoldið sem gamalmenniá tímabili þegar okkur fannst tónlistin og lætin svo há að við gátum ekki talað saman.

Veit ekki hvort það hafi verið þetta sem varð stemmingunni að falli en ég ætla að gefa Oliver umsögnina 4 bjóra-staður sem þýðir "verður að vera á fjórða bjór til að fitta inn í stemmninguna".

Gagnrýnandinn kveður í bili

Verslunarmiðstöðin internetið!

Ég er loksins að komast inn í þennan merka heim sem nefnist "netverslun". Var að panta mér frá einhverju fyrirtæki í Bandaríkjunum...ég verð samt að viðurkenna að ég er ekki alveg búin að losna við tortryggnina gagnvart þessu. Kannski er þetta fyrirtæki ekki einu sinni til og ég er að borga beint inn á reikning einhvers tölvudjúdda sem nennir ekki að vinna sér inn pening á heiðarlegan hátt!! Ég á allt of auðvelt með að ímynda mér hið versta...ekki hinn besti eiginleiki að búa yfir.
Ég er s.s. að gera tilraun og finnst frekar spennandi að sjá hvort þetta nái fram...

Im moving into the future......about time;)

fimmtudagur, september 08, 2005

The lost tourist..

Í dag gerðist ég túristi...maður gleymir alltaf hvað það er gaman að vera túristi þegar maður er hérna heima á Íslandinu en missir sig svo á myndavélinni þegar maður er úti í heimi.
Ég er í námskeiði sem heitir ljósmyndun og myndbönd í skólanum. Fyrir það þurfti ég að afla mér slatta af myndum til að vinna með þannig að ég labbaði bara niður að sjó og byrjaði að hleypa af. Það kom s.s. í ljós að leiðin sem ég valdi mér að fara var einstaklega túristavæn...það úði og grúði af ameríkönum við Sólfarið..svo rölti ég áfram á stígnum og varð að vara mig á túristunum sem höfðu leigt sér hjól í bænum og fengu útrás fyrir hátt verðlag hérna með því að reyna að miða á íslendingana sem áttu leið um stíginn. Þegar ég kom svo niður að höfn lenti ég í miðjum hóp af allra þjóða kvikindum sem voru á leið aftur í glæsilega cruise skipið sem kom þeim hingað. Munaði engu að ég þvældist með þeim ofan í ferjubátinn þar sem ég var með myndavélina í allar áttir....

Kannski að það sé sniðugt að skella sér á svona cruise...með sundlaug, diskóteki, bíói og matvöruverslun.
Það yrði bara alveg eins og að vera heima hjá sér...eini munurinnn er kannski sá að þú sefur með björgunarvesti undir höfðinu.

Jæja ætla að fara að prenta út myndirnar af túristunum og setja í ramma...!

þriðjudagur, september 06, 2005

Brrr

E-ð segir mér að það að blogga sé ekki jafn hip og kúl eins og það var hér fyrir sumarfríið...
Það er í rauninni skiljanlegt þar sem íslendingar eru svona dellu fólk sem endist yfirleitt stutt í vitleysunni. Kannski bara kominn tími á e-ð nýtt...spurning hvað það verði...?!! Það er allt hægt...bara ímyndunar aflið sem ræður. Mér aftur á móti dettur ekkert funky í hug...kannski alveg eins gott að ég sé ekki "græju" hönnuður.

Another thing...hvenær ætlar fólk að hætta að segjast vera ólétt...þetta kemur úr öllum áttum. Ætli þar sé komið nýja trendið?Börn og brúðkaup í einum pakka....? Þetta er ótrúlegt, um leið og mér finnst farið að hægast um í óléttu-tilkynningunum kemur önnur sprengja.....!! Er þetta ekki farið að verða svoldið þreytt.. ;)

Annars er þetta bara kurteisis heimsókn á bloggið því að þrjóskan í mér hefur ákveðið að láta bloggið ekki deyja út þó það sé ekki lengur hip og kúl að skrifa tilgangslaust röfl á netið...

Enn eitt atriði...en og aftur rafrænar hamingju óskir til Birnu og Andra sem eru núna í þessum rituðu orðum "sippin´champagne ´n relaxin´on da beach" á Ítalíu. Hafið það gott kæru brúðhjón og by all means EKKI nota tímann til að kíkja á bloggið mitt á meðan þið eruð úti!!!:)

Nóg í bili

Psycadelic penguin kveður

mánudagur, september 05, 2005

whats this world coming to??

Jæja gott fólk...heimur versnandi fer!

Ég horfði á myndina "war of the worlds" í gær og verð að viðurkenna að það sem ég sá þar minnti mig óneytanlega á það sem er að gerast í New Orleans þessa dagana...kannski fyrir utan geimskrímslin og geimförin með leysigeislabyssunum.
Fólk að flýja, heimili í rúst og bílar eins og hráviði út um allt.
Get ekki ímyndað mér að vera stödd þarna núna og upplifa allt þetta. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá fréttir með myndum af svæðinu var að þetta væri eins og handritin sem kvikmyndir væru að moka inn peningum á. Svo verður þetta svo súrrealiskt þegar kvikmyndirnar eru færðar yfir á real-life aðstæður. Ekki að flóðbylgjan í Asíu hafi haft minni áhrif á mann...en þar sem maður er ofdekraður evrópubúi sem hefur það allt of gott þá er það svolítið ógnvekjandi að fylgjast með hörmungunum færast nær manni....scary!

Og er það bara ég eða er þetta einhver trend núna í öllum löndum að kveikja í hinu og þessu og brotlenda flugvélum í stórum stíl?!

Ég hef ekki gott af því að horfa á svona bíómyndir...vissi að ég hefði átt að halda mig við gríndeildina!