Jæja gott fólk...heimur versnandi fer!
Ég horfði á myndina "war of the worlds" í gær og verð að viðurkenna að það sem ég sá þar minnti mig óneytanlega á það sem er að gerast í New Orleans þessa dagana...kannski fyrir utan geimskrímslin og geimförin með leysigeislabyssunum.
Fólk að flýja, heimili í rúst og bílar eins og hráviði út um allt.
Get ekki ímyndað mér að vera stödd þarna núna og upplifa allt þetta. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá fréttir með myndum af svæðinu var að þetta væri eins og handritin sem kvikmyndir væru að moka inn peningum á. Svo verður þetta svo súrrealiskt þegar kvikmyndirnar eru færðar yfir á real-life aðstæður. Ekki að flóðbylgjan í Asíu hafi haft minni áhrif á mann...en þar sem maður er ofdekraður evrópubúi sem hefur það allt of gott þá er það svolítið ógnvekjandi að fylgjast með hörmungunum færast nær manni....scary!
Og er það bara ég eða er þetta einhver trend núna í öllum löndum að kveikja í hinu og þessu og brotlenda flugvélum í stórum stíl?!
Ég hef ekki gott af því að horfa á svona bíómyndir...vissi að ég hefði átt að halda mig við gríndeildina!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli