sunnudagur, ágúst 28, 2005

HoMe sweet HoMe...

Ég er komin HEIM á ný eftir brill ferð....
Höfðum það rosalega gott í Köben líka..veðrið var fínt og fullt af heimsóknum og djammi á dagskránni ásamt smá auka verslun þó að fjárráðin hafi minnkað verulega síðan í Portugal.
Í gærkvöld (laugardag) borðuðum við og skemmtum okkur með gömlum højskole-félögum sem var ferlegt fjör og upplifði maður svolitla flashback stemmningu frá því þegar við bjuggum öll undir sama þaki í den. Gleði!

Á leiðinni heim í dag ákvað ég að ég taka mér pásu frá flugferðum amk. fram að jólum/áramótum þar sem þolinmæði mín til að sitja í flugvélum hefur farið minnkandi. 4 í flug á 2 vikum er of mikið fyrir mig. Ég segi pass...

Skóli á morgun...I am very excited about that!!

Engin ummæli: