
Jæja!
...ég ákvað að skella inn einni mynda af sólarlaginu séð frá sumarhúsi foreldra minna um helgina....
Nú fer að styttast í sólarlandaferðina mína.....minna en vika í brottför!
Þessi vika er samt vel pökkuð af ýmiskonar uppákomum. Var að enda við að kveðja listaspíruklúbbinn minn eftir mikið og gott át....sem er jú einu sinni tilgangur matarklúbbsins;)
í seinustu viku spísuðum við vatnaliljurnar saman og slúðruðum um allt og ekkert...yndislegt!
Á fimmtudaginn 11. er svo afmælisboð fyrir afmælisbarn dagsins hann TJ (og reyndar mig líka, þar sem Portugalir munu fagna mínum afmælisdegi með mér )...
SJÆSE...ég verð orðin hnöttótt þegar ég loksins kemst út í Portugalssólina!!
Þeir sem eru lausir/ar næstkomandi fimmtudagskvöld um kl. 20:00 eru meira en velkomnir/ar í kaffi og "með því"...ég ætla ekki að telja upp nöfn en þið vitið hver þið eruð;)
Sáumst með Hildi Nótt og TJ Dag


Engin ummæli:
Skrifa ummæli