þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Bom Diaz!




Jæja nú erum við í Köben á ný eftir yndislega ferð til Portugal.
Mig langar að þakka öllum sem sendu mér símkveðju á afmælisdaginn minn...ég var bara með slökkt á símanum alla ferðina fyrir utan smá stund á afmælisdaginn þannig að ég gat ekki svarað sms-unum. En takk kærlega fyrir hugulsemina:)!

Ferðin var s.s. mjög vel heppnuð þrátt fyrir þessa sorglegu skógarelda sem blossuðu upp allsstaðar í landinu meðan við vorum þarna. Sáum eitt stykki RISA bruna þegar við vorum að keyra á hraðbrautinni aftur til LIssabon.
Við túristuðumst í LIssabon í tvo daga áður en við fengum bílaleigubíl og keyrðum norður. Gistum fyrstu nóttina í háskólabænum Coimbra(sem er einmitt bær sem varð í mikilli hættu vegna skógarelda tveimur dögum eftir að við vorum þar) svo krúsuðum við áfram til Porto sem er mjög skemmtilegur bær að koma til. Eftir eina nótt þar héldum við svo aftur til Lissabon.

Ég nenni ekki að skrifa meira um ferðina núna...ætla að reyna að nýta góða veðrið hér í Köben aðeins.

Hafðið það nú gott!

Senhora Hildz

Engin ummæli: