Jæja seinasta vikan í janúar búin....damn og ég sem hélt að mánuðurinn væri rétt að byrja! Maður er nú samt búin að fá áorkað ýmislegu..þótt að lærdómurinn hafi mátt vera öflugri
-fór og skoðaði báða Waldorf skólana í Reykjavík(sem partur af túristaguide starfinu)það var bara mjög áhugavert sérstaklega þar sem ég vissi ekki að það væru tveir skólar og hafði ekki hugmynd um hvar þessir Lækjarbotnar væru. Hinn er víst í Breiðholtinu....
-fór í sumarbústaðinn okkar að tjékka statusinn þar í mannskemmandi frosti og kulda en samt beautiful weather(líka guide störf). Ákváðum svo að skella okkur líka í fjallöngu upp á fjallið þar. En snerum við þegar maður var orðinn tilfinningalaus í vörunum og blár á nefinu(vorum ekki einu sinni nálægt toppnum!!).
-er búin að panta far til Danmark þann 3.júlí og heim aftir 3.ágúst...ætlum svo að reyna að skella okkur eitthvert frá Köben í vikuferð. Er að vonast eftir góðu verði á flugi til Egyptalands!!!Jeij...
-er búin að vera á leiðinni á snjóbretti alla vikuna en alltaf e-d komið upp á...
-svo er ég búin að vera að gera fullt sem ég man ekki eftir...
-Svo átti hún Manda afmæli í gær...maður missti víst að heljar partyi..en getur án efa lesið um það í séð og heyrt...hehe
-Troels er að fara að vinna fyrir mosfellsbæ og hanna fyrir þá skatepark..svo hann er í góðum málum þar...
-Ég er að fara með stelpunum á stelpur.com 7.feb....verður bara fjör held ég!
-Hún Lea vinkona/roomate-inn minn frá höjskólanum tilkynnti mér að hún kemur næsta haust og verður skiptinemi í kennó í 3 mánuði...gaman það!
-Annars er ég er bara líka ánægð með lífið og tilveruna!*