miðvikudagur, febrúar 11, 2004

yoyo..

..heyrðu hvað varð eiginlega um gömlu góðu yoyo-in? Það var nú heilsusamlegt og þroskandi æði hérna í den....ég átti sko kók og sprite yoyo!

Jæja nú hefur maður prófað að vera viðstaddur kennaranema-árshátið. Það var bara fínt..ágætis matur, aðeins of löng skemmtidagsskrá, kaffi og pínu lítil súkkulaðistykki í eftirrétt, Sveppi og Auddi voru skemmtanastjórar, ég vann ekki utanlandsferð í happdrættinu og svo var dansað fram á nótt við undirleik " í svörtum fötum".
Kennaranemar eru nú meiri drykkjuboltarnir! Spurning um að maður kenni bara börnum sínum heima í framtíðinni....æ held samt bara að það sé kannski bara ágætt að vita að stéttin sé ekki eingöngu þurrt og leiðinlegt lið...hehe;)
Hitti Guðrúnu Önnu á svæðinu og hún var búin að vera að síðan um 12 á hádeigi...þannig að hún var bara í góðu fíling!

Jæja ætli maður fari ekki bara og leggi sig aðeins, svona upp á að endurheimta hressleikan...nota bene: er bara þreytt!

adios....

Engin ummæli: