föstudagur, febrúar 20, 2004

Helgi helgi...hver er þessi helgi?

Jæja enn einn helginn komin...og allt að gerast. Ég verð að vinna báða daga ef einhvern langar allt í einu óstjórnlega til að swing by da flowershop! Langar að minna á að það er konudagurinn á sunnudaginn svo ég mun hafa nóg að gera seinni part dags við að afgreiða desperate karlmenn semhafa gleymt að vekja konuna sína með blómvendi um morguninn....hehe. Ótrúlegt hvað þetta lið er að kaupa fyrir mikið....því meira samviskubit því hærri upphæð;)

Gestirnir eru mættir og passa sig svoldið bara sjálfir því að ég og Troels þurfum að mæta í skólann. Hver veit nema maður skelli sér e-ð út á laugardaginn og sýni þeim næturlífið. Verður einhver á 101 svæðinu þá sem hægt væri að kíkja á?!?...anyone djammin´?

Svo er það í dag föstudag að ég verð að skila valblaðinu mínu inn....á maður að stefna á myndmenntakennslu oder e-ð annað. I still dont really know...en verð víst að skila einhverju á blaði. Svo það kemur bara í ljós hvað stendur á blaðinu þegar ég skila því inn um tvöleytið í dag.....

Jæja verða að fara aftur í tíma....nice talkin
good times*

Engin ummæli: