..eftir seinustu daga...púha! Búin að borða alveg feitt yfir mig nokkra daga í röð;)
Skellti mér á Pizza Hut með Birnu í gær. Allt í einu mætti svo Bergrún á svæðið og hlammaði sér hjá okkur og byrjaði bara að spjalla. Birna sagði ekki neitt og fattaði ekki neitt...hélt bara að Bergrún væri fyrir tilviljun að sækja pizzu... hehe. En þetta var annars vel planað surprise sem ég og Bergrún höfðum ákveðið fyrir löngu;) Very gaman með upprifjun frá gömlu góðu B-dögunum...þakka góða stund girls!!
Í dag var svo kynningardagur á kjörsviðunum fyrir næsta haust. Ég hef komist að því að ég þarf ekki að taka dönskusvið til að kenna dönsku svo að ég sleppi því! En þá er það bara að taka myndmennt og ég held að það verði bara ansi fínt..ásamt nokkrum velvöldum valfögum.
Svo er bara nice sumarbústaðarhelgi framundan...ætli það verði ekki tekinn einn Gullfoss og geysis hringur í leiðinni...ja eða þá Þingvellir. Svo fara tengdó heim á mánudaginn.En það þýðir ekki að öllu sé lokið þar sem vinur Troels og kærasta hans(sem ég þekki ekki neitt) koma á fimmtudaginn og verða fram á mánudag....Igloo tours on the road again!
Svo að lokum vil ég segja að ég hef yfirstigið mikla hindrum í þessari viku. Ég heil litaði hárið á mér tveimur tónum dekkra og lét klippa á mig einhverskonar topplufsu....ég er enn að jafna mig!!....ha det bra....*


Engin ummæli:
Skrifa ummæli