sunnudagur, febrúar 15, 2004

home sweet home...

..er komin heim á ný eftir bara ágætis helgarferð. Held ég hafi sjaldan náð að sjá svona mikið af íslenskum ferðamannastöðum á einu bretti.
Höfðum það ferlega nice í sumarbústaðnum hans afa....og á laugardeginum keyrðum við þaðan til Þingvalla. Þar var allt á floti...allur snjórinn var að bráðna svo að fullt af þessum túrista göngubrúm yfir vötnin vorum bara sjálfar sokknar í vatn og ís. Okkur tókst samt að vaða í leðju og for upp almannagjá...vei!
Á sunnudeginum keyrðum við svo aftur af stað frá sumarbústaðnum í rigningu, hagli, sól og snjó (Ísland hefur upp á svo margt að bjóða!!) Við komum við hjá Geysi og sendum foreldraparið upp á hverasvæðið á meðan ég og Troels könnuðuðm sælgætisúrval kaupmannsins (common ég fór með hann sama hring fyrir ári síðan!). Gullfoss var líka hylltur með viðkomu...þar var allt á fullu..og líka á floti...því allur ísinn í kring var að bráðna...very beautiful yes thank u!
Svo var bara feitur ride heim með stoppi í aldingarði Edens í hveragerði....verð að segja að mér fannst Eden miklu meira impressive í gamla daga þegar talandi apinn gaf manni egg með dóti í fyrir 50kall!

Anyways foreldrarnir fara á morgun til Danmark og við vöknum fersk (my ass) um fimmleytið til að keyra þau. Það er nú líka svoldið til að sjá og heilsa upp á íslenska fjárhundinn sem þau keyptu hérna...
oh well...úti*

Engin ummæli: