mánudagur, janúar 30, 2006

svart/hvita hetjan min...




Segir allt sem segja þarf...:)

sunnudagur, janúar 29, 2006

Helgin



Jú jú...helgin búin...eins og skot.
Ég áorkaði ýmsu um helgina. Heimsótti listamann á vinnustofu(út af skóla verkefni)
og hjálpaði TJ eftir fremsta megni að standa að frumsýningu á nýrri "Alis" hjólabrettamynd sem haldin var í Laugarásbíói laugardag. Það var vel mætt og ágætis stemmning. Út að borða á Shalimar þar sem var maturinn góður en ansi vel kryddaður. Hvítlauks nan-brauðið var toppurinn. Svo var slakað á í góðra vina hópi um kvöldið og kíkt aðeins niður í bæ...

-ég er sátt en þreytt eftir þessa helgi(en bara af því að maður kom alltof seint heim; )

föstudagur, janúar 27, 2006

Vissir þu...

...að Mozart á afmæli í dag?

Ég vissi það ekki fyrr Google.com sagði mér það....frekar sætt...tjékk it
http://www.google.is/

Kallinn hefði bara orðið 250 ára í dag....ekki slæmur aldur það

miðvikudagur, janúar 25, 2006

Til hamingju Baggalutur...




...og aðrir sem hlutu verðlaun á íslensku tónlistarverðlaunaafhendingunni sem fór fram í kvöld!

Baggalútur hlaut verðlaun fyrir lag og texta (og var til nefnt til 3 verðlauna.)
-Maður er nú alltaf svoldið stoltur af fjölskyldumeðlimum þegar þeir eru að gera það gott;)

þriðjudagur, janúar 24, 2006

International D-day



...as in Drafnar-dagur. Ákvað að tileinka henni Dröfn okkar þessum degi til að minna hana á að við bíðum spennt eftir því að fá hana heim aftur...hvenær sem það nú verður!

mánudagur, janúar 23, 2006

Delightfull!!




Frábær mynd...góð saga fyrir rómantíkusa!
-4 og hálft tópas fær þessi indæla ræma...

-sel það ekki dyrara en eg keypti það

Orðið á götunni er að Friends ætli að taka upp 4 nýja (klukkutímalanga) þætti seinna á árinu.
Júhú...

sunnudagur, janúar 22, 2006

ferskt og sumarlegt



Haldiði ekki að þetta verði málið í sumar?
Ipodin hangandi í belti en bara á annan hátt.....ég held þetta sé málið;)

Gledilegan "helgin er buin" dag

jæja....stórt JÆJA...enn og aftur er ég fegin að helgin er búin. Ég er ábyggilega ein af fáum sem oft er fegin að það sé komin mánudagur. Ég er búin að vinna föst,laug og sunn og inni í því var bóndadagurinn. Það var ágætt að gera...en konur voru samt ekki alveg jafn duglegar að kaupa blóm handa körlunum sínum eins og í fyrra eða árið þar áður.

Ég hef þrátt fyrir vinnuna náð að borða þorramat tvisvar um helgina...ég flokkast samt undir "harðfisks og hangikjöts-týpuna" sem tekur enga sénsa í punga og kjamma áti. Ég er sátt við það...hákarlinn er heldur ekki að tæla mig með ljúfum ilmi(svo það er eiginlega hans sök að ég borði þetta gums ekki).

Skellti mér í fjölskyldu-þorra-boð en kom frekar seint vegna vinnunar (ætti maður ekki bara að hætta í þessari vinnu?!) þannig að þegar ég hafði rétt lokið við að borða voru allir á leiðinni heim;)...En þrátt fyrir stuttan tíma þá var þetta ánægjulega fjölskyldustund.

All in all fín helgi.

föstudagur, janúar 20, 2006

miðvikudagur, janúar 18, 2006

Ja man



Fimmtudagsband þessarar viku.
Enjoy:)

mánudagur, janúar 16, 2006

Betra er seint en aldrei...



Skelltum okkur á "A little trip to heaven" í kvöld, þessa líka "frægu" "íslensku" mynd.
Skemmtilegt nokk varð ég ekki fyrir vonbrigðum. Hafði reyndar engar vonir og væntingar fyrir utan að sjá Juliu Stiles stíga á stokk. Mér finnst hún ennþá töff, hún er e-ð svo öðruvísi og klár leikari....man fyrst eftir henni úr 10 things I hate about you og hún virðist bara verða betri með aldrinum.

Myndin var á heildina litið svoldið dimm og skítug(white trash-leg)með miklu roki sem er líklega vegna þess að myndin er tekin upp á skerinu okkar en einnig var hún frekar spes og áhugaverð.
Dómur: 3 og 1/2 tópas af 5 mögulegum.

sunnudagur, janúar 15, 2006

15. januar!

Hvað er málið með þessa dagsetningu! Mér finnst vera komin einhver allt annar dagur...en þegar ég spyr mig hvaða dagur eigi frekar að vera þá get ég bara ekki svarað því. Mér finnst amk. ekki að það eigi að vera 15.janúar. Ég myndi skjóta á 2.janúar eða 20. febrúar frekar en 15.!!( Svona hefur mér reyndar liðið undanfarna daga) -ég virðist ekki vera mikið fyrir þetta tímabil.

Anyhooo þá langaði mig bara til að blogga að því að fólk víðsvegar um netið virðist vera gripið blogg-gleði og ég ákvað að ég ætti að taka þátt í gleðinni. Auk þess ætti ég að vera að undirbúa mig fyrir fyrirlestur sem ég á að halda í skólanum á morgun...en það er að sjálfsögðu aukaatriði þegar kemur að tilgangslausu sunnudags-blogg-fjasi...


Ég fór í Smáralindina á föstudaginn og keypti mér buxur...stór-sigur þar á ferð þar sem buxur sem heilla mig upp úr skónum eru alls ekki á hverju strái. Því miður.

Að lokum: ég er komin með leið á að labba í snjónum...eins og hann er nú yndislegur séður út um glugga.

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Menning

Ég var að koma heima af túskildingsóperunni.
Leikararnir stóðu sig bara ansi vel. Hljómsveitin var góð og leikmyndin skemmtileg.
En handritið....var ekki minn tebolli.

Leikritið fær tvö tópas af fimm mögulegum á Hildz-skalanum.

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Jæææja...

...ætti ekki bara að loka DV til frambúðar.

Ekki það að mál dagsins í dag sé einhver betri ástæða heldur en önnur.
Þetta blað er og hefur alltaf verið frekar andstyggilegt hvort sem er.

Nows as good a time as any!!

Let it snjow

Það bara snjóar og snjóar!
Vonandi endist þessi snjór þanga til á morgun svo fólk komist á skíði/bretti. Ekki verð ég þar á meðal þar sem vikan mín er út plönuð með vinnu, leikhúsi, matarboði og fleiru. Damnnn íd!

Jæja nóg um það ég er búin að vera að taka svoldið til hjá mér og ákvað að það væri komin tími á bloggið í leiðinni.
Ég var á myndlistasýningu áðan í galleríi Sævars Karls (er á námskeiði í listasögu sem krefst svona mikils lista-metnaðs) þar var smá sýning hjá ungum listamanni /að öllum líkindum/ á uppleið...þeir kíkja sem vilja.

Hafiði það nú gott í snjónum
(allir nema þú Arna...bið að heilsa á Kanarí)

mánudagur, janúar 09, 2006

Rough-tough times ahead...

Ég hef lokið fyrsta degi af síðustu skólaönn minni.
Ég er með hnút í maganum.
Þetta verður sko hektísk önn með yfirdrifið NÓG af verkefnum.
-úff!


Aðeins léttari sálmar:
Ég fór í dag á sýningu á verkum Kjarvals sem núna stendur yfir á Kjarvalsstöðum (karlinn kominn heim til sín;).
Mæli barasta með því að vera pínulítið menningarlegur og kíkja á þennan yfirmáta ástsæla listamann þjóðarinnar. Hann fær mann virkilega til að sjá hið íslenska hraun með öðrum augum...ja og bara skilja um hvað allt fárið snýst.

sunnudagur, janúar 08, 2006

Muzakka

Jæja...þá hefur maður farið á tónleika til að sýna góðu málefni stuðning og nýtt tækifærið til að bera áhugaverðar hljómsveitir/tónlistarmenn augum.
Ég er bara mjög ánægð með þessa tónleika. Tónlistin var góð, góð mæting, málefnið gott og málefnið fékk að njóta sín. ég hélt að þetta væri kannsi einskonar sölubrellu hugmynd hjá einhverju gróðagúrúinu en það var ekki að sjá þar sem maður fékk beint í æð ýmsar upplýsingar um málið sem voru mér(=almúganum) ekki nægilega kunnar(<-shame on me!)
ýmsir gjörningar voru á göngum Laugardalshallar ásamt fólki sem dreifði dreifildum og þessháttar...gott mál.
Þeir sem stóðu uppúr hjá mér voru Björk og Zena(hún er bara orðin klassíker blessunin), Sigurrós fór létt með að ná athyglinni, Damien Rice fór úr hinum blíða "Blowersdaughter" manni í eitthvað nuttcase á sviðinu (verí kjúl)...já og svo er Mugsison ansi sterkur á sviðinu með (og án) Hjálma sem þarf varla að nefna.

Mín er sátt....stoppum virkjanirnar...komið alveg nóg af þeim anyway!

laugardagur, janúar 07, 2006

Rett upp hönd....

...sem ætlar á HÆTTAN tónleikana annaðkvöld?

miðvikudagur, janúar 04, 2006

why didnt i think of that!!


Verí sniðugt

þriðjudagur, janúar 03, 2006

hversu töff...






Ég er búin að vera að þvælast svoldið á netinu í sambandi við lokaverkefnið mitt. Rakst á þennan fræga og merkilega hönnuð Verner Panton og er svoleiðins að kunna að meta hann, ekki skrítið að maðurinn sé mikils virtur.

mánudagur, janúar 02, 2006

Gleðilegt nytt ar!!




2006 bara mætt í öllu sýnu veldi. Ég er engin völva en tel að þetta blessaða ár eigi eftir að vera viðburðaríkt...hef þó engar heimildir fyrir því. Gamlárskvöld 2005 fór fram úr mínum björtustu vonum (þar sem ég hef einsett mér að vera með vonir í lágmarki fyrir þetta árlega kvöld) og var ég bara mjög sátt þegar kvöldinu/morgninum lauk. Vorum með fjölskyldunni langt fram á nótt í góðu glensi eftir að hafa borðað á okkur gat af eðal áramótamat, skálað í kampavíninu og sprengt nokkrar rakettur kl.00:00 og svo haft það kósý og spjallað með snakk og osta til ca.3. Leiðin lá þá niður í bæ í teiti á Tjarnargötu þar sem við áttum hressilegt kvöld með nóg af allskonar fólki.
Ég er bara mjög sátt við byrjunina á árinu og er bjartsýn (það er partur af ný ársheitinu mínu).

Mig langar líka til að nota tækifærið og kynna fyrir lesendum nýjasta meðlim fjölskyldunnar og jafn framt mína nýju bestu vinkonu: Fúdjí frænku (hugguleg mynd af henni fyrir ofan)