
2006 bara mætt í öllu sýnu veldi. Ég er engin völva en tel að þetta blessaða ár eigi eftir að vera viðburðaríkt...hef þó engar heimildir fyrir því. Gamlárskvöld 2005 fór fram úr mínum björtustu vonum (þar sem ég hef einsett mér að vera með vonir í lágmarki fyrir þetta árlega kvöld) og var ég bara mjög sátt þegar kvöldinu/morgninum lauk. Vorum með fjölskyldunni langt fram á nótt í góðu glensi eftir að hafa borðað á okkur gat af eðal áramótamat, skálað í kampavíninu og sprengt nokkrar rakettur kl.00:00 og svo haft það kósý og spjallað með snakk og osta til ca.3. Leiðin lá þá niður í bæ í teiti á Tjarnargötu þar sem við áttum hressilegt kvöld með nóg af allskonar fólki.
Ég er bara mjög sátt við byrjunina á árinu og er bjartsýn (það er partur af ný ársheitinu mínu).
Mig langar líka til að nota tækifærið og kynna fyrir lesendum nýjasta meðlim fjölskyldunnar og jafn framt mína nýju bestu vinkonu: Fúdjí frænku (hugguleg mynd af henni fyrir ofan)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli