mánudagur, febrúar 23, 2004

bolla bolla....*

Jamm og jæja núna er gengin í garð hin sívinsæla þrenna...bolludagurinn, sprengidagurinn og síðast en ekki síst öskudagurinn. Í gamla daga voru þessir dagar álíka yndislegir og jólin. Maður át yfir sig af heimabökuðum bollum, endurtók leikinn með saltkjöti og baunum daginn eftir og rúllaði svo grímuklæddur um göturnar á öskudaginn syngjandi einhverja vitleysu í leit af nammi. Those were the days!!
Núna er sagan önnur...maður kaupir eina rjómadrullu bollu hjá bakaranum, er boðið í saltkjötsboð ef maður er heppinn og stendur óþolinmóður eftir afgreiðslu í sjoppunni á meðan krakkagemsarnir ljúka "á sprengisandi" með tilþrifum.
Man einhver eftir upprunalega tilgangi öskudagsins lengur?!....ég eyddi mörgum skemmtilegum stundum hérna í den í að sauma litla poka með tvinna og sikkresnælu á svo maður gæti laumað þeim aftan á vini sína...ja eða ókunnuga ef maður þorði. Ha ha...það þurfti sko ekki mikið til að skemmta manni!!

Sjit hvað maður er e-ð að fatta að maður eldist e-ð á hverju ári. Kannski er kominn tími til að taka sig saman í andlitinu og horfast í augu við örlögin...henda adidas skónnum, kaupa nokkrar dragtir og ganga með varalit dagsdaglega!! Hmmmm......

Vitiði...ég held bara að litla ég sé ekki tilbúin til þess að kyssa adidas skónna bless strax, svo þessi örlög verða bara að bíða e-ð lengur....hell why not enjoy it while u still dont need to realise it!!

-góðar stundir kæru vinir....adidas skónnir biðja vel að heilsa...*

Engin ummæli: