sunnudagur, nóvember 21, 2004

Hörku stuð...

...um helgina!
Föstudagurinn fór í ritgerðarskrif og smá skóla. Svo um kvöldið skellti ég mér á Bridget Jones 2. Fín mynd þó það sé kannski ekkert nýtt þar á ferðinni....eftir bíóið endaði ég á Vegamótum með Leu og Mette vinkonu hennar og svo einhverjum fleiri skiptinemum. Voða fjör... þar sem svona skiptinemafólk eru alltaf svo hresst!

Laugardagurinn fór líka í ritgerð þanga til ég nennti ekki meir og skrapp í Kringluferð með mömmu. Ferlega langar mann að versla mikið núna...jólaföt, jólagjafir, skraut og allan fja......maður þarf samt að reyna að hemja sig til mánaðamóta!:/
Um kvöldið fór ég í party með með Leu og hennar crewi og það var svona líka fjör....verst að kellan fer aftur heim til Danmark eftir 2 vikur....

Núna er sunnudags-ritgerðar-klárun í gangi. Ritgerðin er í rauninni búin fyrir utan eitt smáatriði...það vantar eina heila blaðsíðu með texta. Annars er allt komið...forsíða og heimildarskrá. Það er alltof pirrandi að þurfa að bulla heila blaðsíðu til að ná ákveðnum blaðafjölda þegar maður er búin að segja það sem maður vill..

Jæja...have a nice week!

Engin ummæli: