miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Kaupmannahafnar rigning...

...er öðruvísi en sú Reykvíska (ætli þetta sér rétt stafað hjá mér!).
Það koma dembur...alls svaðalegar dembur sem gegnumbleyta mann á augabragði. Þessar dembur bíða annaðhvort eftir að þú sért komin á bert svæði þar sem enginn séns er á skjóli eða þá að þú ert á hjóli með körfuna fulla af drasli sem gerir það erfiðara að stoppa(svo maður hjólar bara áfram). Já þetta er mín greining á dösnku rigningunni. Á Íslandi er rigningin öðruvísi...einhvernveginn mannúðlegri.
Anywho....þá erum við að taka upp úr kössum þessa dagana og setja saman hirslur til að geyma dótið úr kössunum í. Aðeins hefur hægt á framkvæmdar gleðinni eftir að sófinn kom og keyptir voru púðar til að gera hann enn þægilegri. En þetta mjakast þó...ég skrúfaði t.d. saman skóskáp í dag og fyllti og TJ...hmmm...gerði fullt annað á meðan;)

Ég hef lofað myndum...en ætla ekki að birta neitt fyrr en ég er hætt að reka tærnar í og hrasa um kassa á gólfinu.

-Spurning 1: Hefur einhver kynnt sér tónlistahæfileika Paris Hilton? Ég hef ekki verið svo heppin að heyra sjálf...bara heyrt um. Er fólk að digga þetta? Getur hún sungið?

-Spurning 2: Jeff Who og Eberg eiga að spila hér í Köben 1.sept...ég (hef heldur ekki haft tíma til að kynna mér þá) er þetta ekki ástæða fyrir mig til að skella mér? Hvað/Hver er Eberg?

p.s. nýtt blogg-lúkk í bili

Engin ummæli: