...og vonum að það haldist. Það er eitthvað skrítið við að þurfa að halda sig frá ákveðnum bæjarhlutum til að lenda ekki í vandræðum. Maður getur til dæmis ekki ímyndað sér að svo gerðist á Íslandinu, burt séð frá þeirri staðreynd að það er ekki til mannafl í almennilegar óeirðir á Klakanum.
Hér er rigning og grátt veður. Ekkert til að monta sig af...
Ég er í skólanum eins og venjulega og áfram heldur strigaskós verkefnið mitt. Skil í næstu viku. Set kannski inn sýnihorn hérna þegar ég er búin.
Ma og pa ætla að heiðra mig með nærveru sinni í lok mars og er ég hæst ánægð með það. Þau munu í leiðinni halda upp á 25 ára brúðkaupsafmæli og ég mun halda upp á 25 ára skírnar-afmæli( sem er glænýr hátíðardagur sem ég fann upp á)
-25 ár sem Hildur...ekki amarlegt afrek það!
Jæja....nóg í bili!


1 ummæli:
Skírnarafmæli er nokkuð sem ég hef alltaf nýtt mér! Mjög gott en mömmu finnst það mjög pirrandi þegar dóttirin biður um t,d hátíðarmat í tilefni skírnardagsins heheh. Auðvitað á maður að nýta allt svona;)
Kveðja,
Guðrún Anna
Skrifa ummæli