sunnudagur, maí 18, 2008

"Nobody puts baby in a corner"


Loksins skil ég þessa setningu til fulls...


Í gær sá ég s.s. í fyrsta skipti á ævinni myndina Dirty dancing frá 1987 með hinum fótafima Patrick Swayze og Jennifer Grey.
Þar sem að ég hef sífellt verið að rekast á eða heyra tilvitnanir í myndina í gegnum árin þá ákvað ég að láta verða af því og varð ekki fyrir vonbrigðum. Dans og aftur dans...rosalega hefur verið gaman að vera upp á sitt besta í þessu dansæði öllu saman. Dirty dancing, Fame og fleira í þeim dúr. Þá voru allir alltaf hressir og það villtasta sem fólk gerði til að skemmta sér var að dansa í laumi. Og já auðvitað....ástin sigrar alltaf að lokum....what else:)!

Þó ég sé milljón árum á eftir öllum öðrum þá mæli ég með þessari mynd fyrir aðra kvikmyndaletingja(eins og mig) sem eiga eftir að sjá hana.

5 ummæli:

Unknown sagði...

Hæhæ! Mér vantar svo adressuna þína í DK. Ég ætla að senda þér boðskort í brúðkaupið okkar þó svo að þú segist ekki komast (í von um að það breytist, hehe).

Gætirðu sent mér það á emailið mitt gudrunragna(at)gmail.com

Nafnlaus sagði...

Þessi mynd er OF góð, ég er líka mjög sein í að horfa á myndir og sá t.d. Ghost í fyrsta skiptið um daginn. En Dirty dancing er ég búin að sjá ansi oft;)
Kv
GAG

Nafnlaus sagði...

klassíker! og nú er patrick minn bara með krabbamein og allt í volli. ég var alveg eyðilögð. hann stóð svo fast við bakið á baby.

ok. allavega góð mynd.

knús á þig elskan. vona að þið hafið það mega mega mega í sólinni í köben.

.:Eyjan sagði...

Guðrún Anna mér líður strax mun betur að vera ekki eini kvikmyndalúðinn...en ég verð samt að segja að ég hef heldur ekki séð Ghost;)...hún fer á listann yfir "must see´s".

Harps...knús á þig líka!;)

Nafnlaus sagði...

Hildur....þú þarft klárlega að fara að horfa á þessar klassísku!

Dröfn