Eins og öll hin árin var mikið af áhugaverðum varningi til sölu. Mér var kynnt snilldartækni til að halda sundlauginni minni hreinni. Sýnd panna sem gerir manni kleift að poppa yfir opnum eldi. Smökkuðum bestu spægipylsu Danmerkur(samkvæmt sölumanninum), mismunandi illa lyktandi osta, vín og bjór frá hinum og þessum brugghúsum. Fylgdumst með körfugerðamanni og fengum nudd í hátækni nuddstól. Svo var líka hægt að prufa og kaupa kajaka, heita potta, grill af öllum stærðum og gerðum, allskonar gourmet mat(olíur, súkkulaði, kjöt, brauð.....), jeppa, mótorcross hjól, sjálfvirkar sláttuvélar og ryksugur, föt á fullorðna og börn og fleira og fleira..... Sáum skoskt sekkjapípuband spila og marsera um svæðið(heyrðum seinna að þeir töluðu dönsku í pásunni=svindl) og borðuðum hádegismat og annað spennandi gotterí sem var í boði í steikjandi sólskini.
Á seinasta ári var rigning, Það var aldeilis ekki jafn gaman og í ár.


7 ummæli:
maaan.. miklu betra vedur tharna en her. Keyptiru ekki alveg orugglega taekid til ad hreinsa sundlaugina med??
og ertu ekki örugglega búin að kaupa þér sumardress hildurskí?
jú stelpur mínar...sumardressin eru komin í hús og ég er mjög vel undirbúin fyrir fyrstu sundlaugina mína. Hvenær sem hún nú verður að veruleika;)
Ég hefði viljað pönnuna til að poppa yfir opnum eldi - ég meina það eru endalaus tækifæri til að nota hana ;)
Birna
nææææss...
þú saknar mín samt ógurlega, er það ekki? ;)
kv. harpskí
Birna ég skal athuga hvað ég geti gert...kannski færðu popppönnuna í jóló;)
Auðvitað sakna ég þín Harpa mín. Fólkið í H&M er líka alltaf að spurja um þig "Hvor er Harpa??"
djöfull ertu góð í minna á góða veðrðið....össss okkur langar líka í gott veður. En það er verið að bæta fyrir veðrið í fyrra.
KV
Guðrún Anna
Skrifa ummæli