mánudagur, maí 05, 2008

Royalty

Ferlega held ég að það sé leiðinlegt að vera konungsborin!!

"Síðdegis taka Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Stefán Arnórsson stjórnarformaður Jarðvísindastofnunar HÍ á móti Friðriki krónprins og forseta Íslands í Öskju, húsi náttúruvísinda HÍ. Þar verður stutt ráðstefna um jarðvísindi, jöklafræði og loftslagsbreytingar. Á sama tíma munu Mary krónprinsessa og forsetafrúin kynna sér íslenska hönnun og heimsækja Eggert Pétursson listmálara.

Í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar tekur Birgitta Spur á móti krónprinshjónunum og forsetahjónunum. Þar mun Charlotte Bøving leikkona lesa ljóð sem íslensk skáld hafa samið á dönsku og Hlíf Sigurjónsdóttir og Martin Frewer fiðluleikarar flytja hluta úr verki eftir Hildigunni Rúnarsdóttur tónskáld."

Hvað ef Mary hefur brennandi áhuga á jarðvísindum, af hverju er hún greyið send í að skoða hönnun og list OG hvað ef Frikki vildi frekar skoða nýjustu kjólatískuna á íslandinu.

Hvað ef þau vildu bara fá sé bjór á Vegó og rölta laugarveginn?

Þetta er nú frekar klént allt saman....


p.s. hversu stutt getur ráðstefna um jarðvísindi, jöklafræði og loftslagsbreytingar eiginlega orðið?! hmmm

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha nákvæmlega :) Skyldumæting á alls kyns fyrirlestra...

Birna

Nafnlaus sagði...

ég er að spá í að bjóða þeim í júróvisjón partýið mitt..