Vá hvað ég vorkenndi Bigga í Maus að hafa þessa Sylviu Nótt ofsækjandi sig. Ég held ég hefði fengið mér nálgunarbann á svona týpu. Þrátt fyrir að þetta sé með eindæmum leiðinlegur þáttur verð ég að viðurkenna að heimskulegheitin í þáttastjórnandanum fengu mig til að lyfta munnvikunum agnarögn, örfáum sinnum. Það er sko miklu meira en ég bjóst við af þessu sjónvarpsefni.
Þúst skiluru!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli