mánudagur, júní 13, 2005

Ar ju biliving dis veðer??

Hversu gaman er að búa á Íslandinu í svona veðri. Very much so my friend!!

Ég verð brúnni og brúnni í framan m hverjum deginum þar sem við eru utan dyra öllum stundum í leikskólanum. Ég ætla ekki að kvarta þó ég haldi að ég hafi mögulega náð mér í vott af sólsting í dag.

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag sofnaði ég og var svo vakin af einhverju liði sem talaði dönsku fyrir utan gluggan hjá mér. Ég lít út og sé grúppu af síðhærðum drengjum berandi hljóðfæragræjur úr bíl í áttina að húsinu mínu. Þeir arka svo beint upp tröppurnar hjá mér (ég verð að viðurkenna að í svefnrofunum var ég ekki viss hvort ég hefði pantað þungarokksband heim). Grúppan hvar svo inn hjá nágrannanum (sem betur fer). TJ heilsaði upp á liðið á svölunum þegar hann kom heim og komst að því að þetta danska band hafði verið að spila hér á laugardaginn. Einnig komst hann að því að í íbúðinni næst okkur í hinu húsinu heldur sig frönsk heavymetal grúppa. What are the odds???!

Ég tók mig til og blastaði allan diskinn hennar Beyonce fyrir útlensku gestina okkar;)

Engin ummæli: