Jæja enn ein sumarhelgin búin og það er barasta að koma júlí...jólin eru bara á næsta leyti;)
Loksins er þessi helgi búin. Þrátt fyrir langdregna vinnuhelgi komst ég á "ættarmót"á laugardagskvöldið. Já þetta er önnur helgin í röð sem ég fer á fund fjölskyldunnar. í þetta skiptið var það bara hin fjölskyldan sem hittist í Kjósinni. Mikið grillað og og sungið í rigningunni.Mikið fjör, mikið gaman..yes!
Ég kláraði að horfa á Desperate housewives seríuna í kvöld....ég er alveg hooked, get ekki beðið eftir næstu seríu. Þetta eru allt svo miklar kjarnakonur í þessum þáttum. Ég væri alveg til í að prófa að búa í svona flottum húsum, vera í mega formi, forrík, vera heimavinnandi og hafa óendanlegan tíma til að slúðra um nágrannana...samt frekar ólíklegt að ég nennti þessu í lengri tíma.
Ég er byrjuð að láta mig dreyma um næstu helgi. Ætla að gera e-ð grúví. Mögulega í stutta útilegu með gömlum vinum. Látum "gömlum" liggja á milli hluta! Það verður náttúrulega bara fjör, grill og gaman. Hef ég nefnt áður hversu hrifin ég er af grillum og grillmat....ég myndi ábyggilega grilla 5 sinnum í viku ef ég nennti því:)
En mikið fjör framundan...þrátt fyrir að TJ sé á leið til KBH á fimmtudaginn...e-ð verður maður nú að gera til að stytta sér stundirnar...hehe!
Desperate Housewife
Helen Van Háteigsberg


Engin ummæli:
Skrifa ummæli