Þetta hefur verið ansi mikil palli var einn í heiminum helgi hjá mér.
TJ í Köben, Sigga systir í Frakklandi og foreldrarnir fyrir austan. Hinir fóru flestir út á land eða voru að vinna.
Ég átti samt mjög góðar quality stundir með Dröfn og Oddnýju ásamt Bergþóru. Smá shopping á útsölunum og svo djamm í gærkveldi með tilheyrandi fjöri.
Þessi sunnudagur er líka búinn að vera ansi hægur en góður. Vaknað seint og það eina sem fékk mig til að fara út úr húsi var óstjórnleg löngun í pizzu. Verst að þegar maður er svona al einn heima neyðist maður til að gera allt sjálfur...
Anywho þá styttist í spennandi tónleika og svo er gomma af afmælum og hittingum framundan...ekki slæmt.
Eigið góða viku alle sammen...


Engin ummæli:
Skrifa ummæli