mánudagur, júlí 11, 2005



Ég vildi óska að þetta væri málið í dag...en nei rigning og aftur rigning.
Minnz er veikur og þarf að hanga heima það hefur sjaldan verið jafn óspennandi og núna þar sem ég er ekki að nenna að vera bara heima. Langar miklu meira í vinnuna. Krakkarnir eru svo mikil yndi:)

Ýmislegt skemmtilegt búið að ganga á í seinustu viku...með áherslu á mikið af góðum mat/kökum:)

Hitti hann Kjarra góðvin okkar Kvennóstelpnanna. Við fengum heimboð í nýju funky íbúðina hans (loksins) og var Kjarri samur við sig þegar hann hélt uppi stemmningunni á laugardagskvöldið ásamt félugum. Mjög stór og flott íbúð á besta stað...allt í sixty´s-stíl hjá kallinum. Við reyndum að plana skólafélaga-hitting en strönduðum á að Óli pimp er fjarverandi fram að jólum og Kjarri ekki viss um hvort hann þyrði að vera einn með fríðum flokki kvenna:)

Brúðkaup næstu helgi...en ekki það að ég verði með í gleðskapnum...í þetta skiptið fæ ég að sitja heima og passa brúðarbarnið...það er svo sem fínt líka. Komin tími til að ég kynnist þessari nýju litlu frænku minni að ráði:)

Aldrei dettur mér neitt sniðugt í hug þegar í sit fyrir framan þessa tölvu og held ég kenni veikindunum um í þetta skiptið..."ég er með óráði" hljómar vel....

Sendi kveðju til Siggu...útfrá lýsingunum að dæma vildi ég óska að ég væri þarna hjá ykkur (..í smá tíma amk.)
Au revoir french frie!!

Singin´in da rain
Hildz

Engin ummæli: