sunnudagur, júní 19, 2005

Alyndisleg helgi

Þessi þjóðhátíðar helgi var frábær. Sól, hiti og góð stemmning.

Ég skrapp stuttlega niður í bæ á föstudaginn til að ná mér í snuddu og blöðru. En skynsemin náði yfirhöndinni þegar á hólminn var komið, ég nennti ekki að halda á blöðru um allan bæ og svo mundu ég eftir því hversu slæmar svona snuddur eru fyrir hárið (flashback). Lét mér nægja kaffihús, sólbað og að horfa á fólkið. Um kvöldið var það grill og huggulegheit. Velkomin heim Edda:)
Laugardagur var sveitadagur.."ættarmótið" fór fram í Borgarfirðinum, á ekta fínerís bóndabæ. Við fengum brilliant veður og óðum í ánni, hlupum með kúnnum og kynntum okkur hegðun Bjórkollunnar(sérstakur fugl þar í sveitinni). Tala nú ekki um söngvagleðina bæði í singstar og "brekkusöngstíl". Allt í allt mjög vel heppnað mót.
Takk fyrir okkur Guðrún og Þór, við tökum minigolfið bara næst þegar við komum;)

Nú fer sunnudagurinn í að taka til, ganga frá útilegudótinu og að hangsa svolítið..
Perfect!

Engin ummæli: