....veik.
Það er EKKERT leiðinlegra en að vera of slappur til að gera e-ð EN of hress til að hvíla sig!!!
Það ætti bara að vera annaðhvort eða.....finnst mér og hananú!
Anywho þá er nóg að gerast þessa dagana....
Kennslukonan í mér ýtir úr vör á mánudagsmorguninn og verður á sjó í 2 heilar vikur. Undirbúningsvinnan er í hámarki og þessir sjö ára krakkalingar eiga von á OFSA lærdómsríkum og fjörfylltum dögum;)
Helgin fer í blómvinnu, kennslundirbúning og heimapróf í dönsku. Þannig að djamm-mynstur seinustu helga verður rofið þrátt fyrir hækkandi sól og almenna stemmningu hjá fólki. Ég verð bara með í næstu lotu..dadara:)
Ég var að átta mig á að ég fer ekki í neina fermingarveislu í ár...og þykir mér það mikið miður. Ég elska svona risavaxinn kökuboð...ég veit að sumir vilja ekkert frekar enn að sleppa við að mæta í svonalagað...en ég er greinilega svona family-and cake-oriented:)
Þannig að nú held ég bara í vonina um gott afmæli hjá einhverjum á næstunni....Harpa og Guðrún Anna ég treysti á ykkur;)
Eigið smellna viku!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli