laugardagur, mars 05, 2005

Dönsku heimaprof..

..er ekki málið á laugardagskveldi. En þegar maður hefur engan annan tíma í þetta þá lætur maður til leiðast.

Ég er alltaf að hitta svo dúllulegt eldra fólk í vinnunni(það er náttlega líka til afskaplega fráhrindandi eldra lið)...þau fara sér svo hægt og segja svo skemmtilegar sögur meðan maður er að afgreiða það. Þetta eru reyndar ekki draumakúnnar þegar það er vitlaust að gera en ef búðin er tóm þá eru þetta skemmtilegustu kúnnarnir. Til dæmis kom gráhærður eldri herra í dag og tilkynnti hátíðlega að frúin ætti afmæli í dag og hann þyrfti vönd. Ég gerði einn og sagði honum verðið (fannst hann sjálf svoldið dýr) þá svarar hann herramannlega" maður horfir ekki í aurana þegar frúin á í hlut, hún þetta skilið"....Mó!

Jæja þið sjáið hvað ég hef átt spennandi dag...og hversu mikill áhugi er á dönskuprófinu sem á að vera í gangi akkurat núna.

Mig langar til að nota tækifærið og mæla með (fyrir þá sem ekki þekkja) Ben Harper...finnst hann ansi skemmtilegur tónlistarmaður.

Anyway, prófið bíður mín....vonandi drekkur einhver þarna úti einn öllara fyrir mig í kvöld!

Ariva datchi!

Engin ummæli: