Skemmtilegt hvernig p´rofa lestur kemur manni alltaf á óvart. Mér tekst alltaf að gleyma hversu erfiður þessi prófatími er á milli prófatarnanna. Þó svo að ég fari bara í tvö formleg próf í ár (og ég er búin með annað þeirra) þá finnst mér þetta ansi erfitt.
Hver fann eiginlega upp á því að skella prófum á tíma sem maður notar í jólagjafa-vangaveltur, jólafata-vangaveltur, jólabaksturs-vangaveltur og þessháttar mikilvægar pælingar. Þetta er alveg eitur þegar maður á að vera að einbeita sér að bókum(í þessu tilviki að aðferðafræði).
Maður spyr sig bara hvernig maður fór að því hérna í denn að taka kannski hátt í 10 próf á desembermánuði...úff!?!
Ekkert blogg fyrr en eftir hádegi á miðvikudag. Þá er ég sko komin í jólafríið mitt!!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli