Laugardagurinn minn varð í einu orði "not as expected"
Hófst snemma á símtali frá systur minni sem venjulega hringir ALDREI fyrir hádegi.
Við tvær plönuðum date upp á slysó innan nokkra mínútna.
Við höfðum það huggulegt með hjólastól, x-rays og fleira í morgunstemmningunni.
Hún neitaði gipsinu. Harður nagli.
Við héldum heim með hálf brotið tásubein.
Harður nagli=harður miðnætur "hlaupari".
Kvaddi foreldrana sem voru á leið til fyrirheitnalandsins. Ameríka.
Eftir gipsstofuna var leiðin bara niður á við fyrir mig með hausverk dauðans og kuldaköst. Kannski bæklingur, sem ég greip á biðstofunni, um mígreni hafi haft áhrif.
Var að vakna núna.Tel að klukkan sé 20. Líður betur.
Kvöldið óplanað.
Gærkvöldið var mjög kósí. Matur á Pottinum og pönnunni, sem kom ágætlega á óvart.
Pool á Gauknum þar sem við TJ skiptum á milli okkar tveimur sigrum. Mikið af spes fólki þar fyrri hluta kvölds.
Kíkt við í partý hjá Örnu. Mikið rökrætt um heimsmálefni.
Bustaði nokkrar rímur á ískápinn áður en við héldum heim.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli