mánudagur, apríl 04, 2005

Spriklari dauðans

Já ykkar einlæg er orðin mikill spriklari.... varð að endurtaka þetta ef einhver skyldi hafa misst af því áður.

Í dag mætti frökenin í Klósettsetrið í Laugardalnum og púlaði þar í 1 og hálfan klukkutíma!! Meira að segja þeir sem búa þarna hafa ekki verið svona lengi....(tel ég mér trú um). Oj hvað ég er ánægð með mína. Tel varla þörf á að mæta aftur næsta mánuðinn:)

Á laugardaginn var stofnaður einstakur matarklúbbur, sem ekki hefur fengið nafn ennþá. Það var haldið upp á stofnfundinn með pompi og prakt.....svo miklu pompi að næstum gleymdist að borða;) Eftir mikið spjall um yfirnáttúrleg fyrirbæri( unmræða sem virðist eiga við alls staðar) og nokkrar "Lestir" var haldið í bæinn með fylgdarliðið. Er über ánægð með framtak klúbbsins og hlakka til þemakvöldanna...sem eru yet to come.

Hún Guðrún Anna ofurgella fagnaði "litlumþstór" afmælisdegi um daginn og er núna komin í hóp hinna merku gamalmenna sem stunda nám í Kennó...haha...enn og aftur til lukku og þú ert automatiskt komin með V.i.P. í "litla-stór" afmælið mitt.

Dröfn heldur áfram að koma á óvart....þó er hún ekki á landinu! Stattu þig nú vel í brúnkunni og krónísku dýfingunum!

jæja meira af æsispennandi updates later....

Engin ummæli: