þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Gurls night out!

Í gærkveldi var stelpukvöld.
Ég, móðir mín og systir skelltum okkur á Vegó til að snæða. Fengum ferlega fínan mat..þeir klikka sjaldan þarna í eldhúsinu.
Svo var haldið í bíó á "In her shoes" með Cameron Diaz. Þar er á ferð nánast perfect stelpumynd. Er um systur sem eru svo ólíkar en geta ekki án hvor annarar verið. Mikið kemur fram af skemmtilegum skóm í myndinni og svo er Cameron alltaf sæt.
Mæli með henni fyrir allar pæjur.

-Gagnrýnandinn

Engin ummæli: