þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Hvers a maður að gjalda..

fór í einn leikfimi tíma í gær...þá meina ég leikfimi...ekkert body-neitt...tíminn hét bara leikfimi-þessi gamla góða.
Meðal aldurinn var ca. 40 sem er ekkert atriði....ég ákvað bara að byrja varlega á átökunum þar sem ég get ekki kallað mig nautliðuga eftir kyrrsetu-verkfall haustsins. Tíminn var barasta svo fínn...svoldið hooperí og einhver lóð og teygjur. Rosa nett bara....mín hæst ánægð þegar heim var komið.

Í dag er önnur hlið uppi á teningum. Harðsperrunar eru mættar....damn it...og mér sem fannst þessi æfing ekki vera neitt brjáluð. Ég hef s.s. komist að því að ef ekki nema fyrir kraftaverk mun ég verð Miss.Flexible fyrir jólin. Sem er frekar súrt þar sem kortið rennur út þann 31.desmeber.

Yfir og út

Engin ummæli: