mánudagur, febrúar 21, 2005

Pizzur og blom...

Ég var í blómafíling um helgina....náði samt að troða inn glæsilegu pizzuboði og skemmtilega löngu djammi á laugardagskvöldið. Takk fyrir ánægjulegt kvöld "wAterLiljur" við gerum þetta aftur við tækifæri...;)

Í gær var svo vaknað seint eða ca.14:30...og það var einungis vaknað þá vegna þess að ég var að fara í vinnuna kl.16. Þessi vinnudagur var sérstaklega "konulegur" þar sem kúnnahópurinn var að mestu leyti karlmenn. Menn voru að kaupa bæði ROSA vendi og smærri útgáfur...en ég verð að segja að ég var alveg komin með upp í kok af rauðum rósum, hjartablöðrum og hjartakonfekti kl.22 í gærkveldi. Ég fékk engin blóm sjálf og var bara sátt við það...hefði ekki getað höndlað að hafa rauðar rósir heima hjá mér líka...

Eigið góðan mánudag fólkens...

Engin ummæli: