...nú hef ég verið á djamminu fimm helgar í röð...þetta er þvílíkur dugnaður að ég kem sjálfri mér á óvart!
Árshátíðin var bara ansi vel heppnuð...amk kosti miðað við í fyrra(að mig minnir). Edda Bjö. var veislustjóri og það var nú hægt að hlæja svoldið að henni. Eftir slappt atriði frá karlrembuklúbbi skólans gerði kvenfélagið betur með sínu atriði, þar mættu 4.súkkulaði töffarar í hvítum jakkfötum á sviðið (parodía á Nylon) og sungu nælon lagið "einhversstaðar" og enduðu með Backstreet lagi...allt varð vitlaust í salnum og ein gella meira segja flassaði þessa sólbrenndu selfoss töffara. Það borgar sig greinilega að vera mjúkur maður;)
Miljónamæringarnir voru í stuði m Palla og Ragga B....stemmningin var góð en ég verð að viðurkenna að í lokin fannst mér tjatja-takturinn minna á ball hjá eldri borgurum;)...svo það varð úr að ég brá mér í miðbæinn.
Ég sá nú svoldið eftir að hafa skellt mér í bæinn í árshátíðarfötunum þegar ég var komin heim með hálf eyðilagða spariskó og megnan ölkeim af fína pilsinu mínu. En þetta er náttlega bara mér að kenna...hvað var ég að TROÐA mér inn á skemmtistað þar sem fólk nuddar saman bringum/bökum við fullt af ókunnugum þegar það þarf að komast á barinn, og hellir svo veigunum niður á mann og annan á leið tilbaka. Þetta var samt þess virði...voða fjör langt fram á nótt:)
Þynnildið og þreytan voru tekin út í sumarbústaðnum þar sem markmiðið var að hafa það notalegt.. mission accomplished:)
Ýmislegt á dagskránni og nálgast óðfluga:
-Vika í að vettvangsnám byrjar...stress
-Páskar og páskaeggja át....enn meira stress....mikið af eggjum sem þarf að torga
-Útborgun eftir 1 dag....gleði
-Akureyrarferð í apríl...þegar borgarbörnin þykjast vera sveitatöffarar
-.....og svo allt hitt
G. times------!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli