mánudagur, febrúar 14, 2005

Bara aftur komin manudagur?!?!

Heyriði, mér sýnist ég nánast bara blogga fyrir eða eftir helgar...time sure flies...ég ræð ekkert við þetta!

Helgin var mjög fín. Föstudagurinn var vægast sagt skrautlegur og þá er ég ekki að tala um bingóið! Við s.s. mættum nokkrar upp í skóla hressar og til í bingó um átta leytið. Þessi einstaklega skemmtilegi leikur var svoleiðins drepin niður með dauðaþögn í salnum, allir með tíu bingóspjöld og í brjáluðum keppnisham...við settumst niður m bjór og skönnuðum heldur sorglegt pleisið. Svo bauðst okkur að kíkja í e-ð sálfræði gilli sem var í nágreninu...við þáðum boðið fegins hendi. Þegar við svo mættum á svæðið þá var barasta allt vitlaust. Sálfræðinemar eru greinilega alveg nuts sjálfir....held ég bara fari til útlanda ef ég þarfnast sálfræði meðferðar í framtíðinni...ussuss! Eftir ekki langa stund stungum við svo af í bæinn vorum komin þangað um miðnætti. Eftir stutt milli stopp kom hún Edda (alltaf hægt að stóla á að hún mæti;) og við enduðum á Prikinu enn og aftur og skemmtum okkur konunglega þrátt fyrir að dansinn hafi verið heldur minni en um seinustu helgi:)
Laugardagurinn var spes....segi ekki meir. Átti annars rólegan dag.

TJ er mættur heim á ný. Rosalega er gott að koma heim úr skólanum með kaffikönnuna í gangi...ég drekk ekki kaffi en þeir sem skilja skilja. Ég fékk fullt af sniðugu Hollensku dóti..ekki amalegt:)

Skólinn er að kicka smá rass þessa dagana. Ýmislegt sniðugt í gangi. Er komin á fullt í grafík pælingar og svo fer teiknun og málun af stað á morgun...danskan fær að fljóta þar með með sína spennandi málfræði;)

Jæja...eigið ánægjulegan Valintínusardag og allt það...ást og hamingja
-friður-

Engin ummæli: