fimmtudagur, maí 12, 2005

Undarlegt nokk

Hvað á maður að segja þegar gömul kona kemur að versla hjá manni í blómabúðinni og byrjar að spjalla.
Segir þér fyrst að hún haldi að þú sért 14 ára (time for an extreme makeover!!?)
Svo þegar maður er að reyna að leiða það hjá sér...spyr hún hvaða skóla ég sé í og svarar þegar ég segi henni það "æ elskan afhverju ertu að gera þér þetta..". Ég svara þá að ekki allir geti verið sál-og lögfræðingar. Þá segist hún sjálf vera uppgjafar kennari.

Aha.....spurning um að endurmeta val á námi?!!
Það er ekki eðlilegt hvað allir hafa skoðun á þessu blessaða kennara starfi!

Engin ummæli: