föstudagur, október 21, 2005

Mennigaleg með meiru

Já yours truly er alveg að springa úr menningu þessa dagana...Fjárfesti í einu stykki "airwaves"armbandi og hef reynt að mæta á allt það sem ég get. Er faktískt mjög ánægð með kaupin þar sem það er rosa góða stemmning fyrir þessari hátið og ég hef séð fullt af góðum böndum og samt er hátíðin bara hálfnuð.
Í gærkveldi (áður en ég fór á fleiri tónleika) skellti ég mér í leikhús á "forðist okkur" eftir Hugleik Dags. Mjög fínt og fyndin sýning, skemmtilega spes og það er alltaf gaman að sjá svona öðruvísi útfærslu á leikriti.
í kvöld eru það bara fleiri tónleikar og mögulega bjórkolla með þeim til að halda upp á að fyrsta vikan mín í kennslu er búin. Only 4 to go.

Eigiði menningalega helgi...
Sé ykkur á mánudaginn niðri í bæ, 14:08 sharp !!

"Menningagúrúið"

Engin ummæli: