þriðjudagur, janúar 04, 2005

home sweet home...

-Hildur back in the house once again!-
...og er búin að hafa það snilldar gott. Köben var æði ( ja, eins og oftast ).
Það var verslað og "hygget" í miðbænum sem og annastaðar. Nóg af góðum mat og þessháttar lúxus. Heimsótt vini og kunningja og allt þar á milli himins og jarðar.Haldið upp á nýja árið á danska mátann með rakettum og kampavíni.
Þegar ég fer að spá í það.... náði ég barasta að gera ansi mikið á þessum 6 dögum.

Við fórum í heimsóknir til fjölskyldu Troelsar. Í hana eru nýlega komnar tvær litlar dúllur, báðar stelpurnar innan við eins árs gamlar. Nóg af barnaspjalli þar á bæ;) Svo er von á strák í hinni fjöslkyldunni hans og góður vinur hans er einnig að verða pabbi í febrúar. Ég er viss um að þetta sé einhver faraldur...hann var hér á landi fyrir stuttu og er nú að herja á Danmörku. Baby-Boomið continues....;)

Gamlárskvöldið var mjög skemmtilegt. Ekki svo frábrugðið okkar kannski bara það að það er mun auðveldara að komast á milli staða vegna neðanjarðalestanna. Þetta eru sko fyrstu áramót í langan tíma sem ég er ekki bílstjóri....og ég naut þess verulega. Fyrst var borðað með familíu og svo ca. 22 haldið af stað út í bæ. Fórum í party hjá vini Troelsar og vorum þar til ca.01. Þar var verulegt fjör...og svo hélt allur hópurinn af stað í næsta gilli sem var með ljósashow og læti. Þar var dansað til late og svo kíktum við TJ á e-ð Punk Royal party áður en við héldum heim...með falafel í annari:) Very good night indeed...

Nú er kellan komin heim á ný. Hress sem aldrei fyrr. Skóli á morgun og æfingakennsla á fimmtudaginn....life is swueet!

p.s. áramótaheit þessa árs:
-meiri bjartsýni
-meiri hreyfingu
-basicly enjoy life more....maður á jú bara eitt stykki.

Engin ummæli: