föstudagur, ágúst 12, 2005

Thanx!

Mig langar að segja "takk kærlega fyrir mig og TJ" við ykkur sem mættuð í kaffiteitið í gærkveldi. Gaman að þið skilduð koma:) Við afmælisbörnin vorum hæst ánægð með þetta kózy-köku-kvöld.

Daninn minn er farinn til Köben og verð ég ein í kotinu um helgina...ég fer fyrst af stað á mánudaginn en þó ekki fyrr enn að ég hef farið í hár-fíniseríngu hjá mömmu Guðrúnar. Maður verður nú að vera svoldið stælí í Portugal!!

Seinasti dagurinn minn í vinnunni á leikskólanum var í dag...mjög sorglegt en þó undarlega ágætt að vera "frjáls" á ný;) Krakkarnir átta sig auðvitað ekkert á því að maður sé ekki að fara að mæta á mánudaginn...ég ætla samt rétt að vona að þau sakni mín örlítið þegar þau fatta að maður sé ekki á staðnum...ég er náttúrulega búin að vera svo drullu skemmtileg við þau í allt sumar, skiluru. :)

Dröfn flaug frá okkur í dag til Ameríkunnar...það er líka mjög sorglegt...ekkert meir um það að segja nema kannski við munum sakna þín kleinuhringurinn okkar...múhahaha;)

3 dagar í Köben
4 dagar í Portugal

Jeij!

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Solarlag við sumarbustaðinn!




Jæja!
...ég ákvað að skella inn einni mynda af sólarlaginu séð frá sumarhúsi foreldra minna um helgina....

Nú fer að styttast í sólarlandaferðina mína.....minna en vika í brottför!
Þessi vika er samt vel pökkuð af ýmiskonar uppákomum. Var að enda við að kveðja listaspíruklúbbinn minn eftir mikið og gott át....sem er jú einu sinni tilgangur matarklúbbsins;)
í seinustu viku spísuðum við vatnaliljurnar saman og slúðruðum um allt og ekkert...yndislegt!
Á fimmtudaginn 11. er svo afmælisboð fyrir afmælisbarn dagsins hann TJ (og reyndar mig líka, þar sem Portugalir munu fagna mínum afmælisdegi með mér )...
SJÆSE...ég verð orðin hnöttótt þegar ég loksins kemst út í Portugalssólina!!

Þeir sem eru lausir/ar næstkomandi fimmtudagskvöld um kl. 20:00 eru meira en velkomnir/ar í kaffi og "með því"...ég ætla ekki að telja upp nöfn en þið vitið hver þið eruð;)

Sáumst með Hildi Nótt og TJ Dag

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Baugur að taka yfir Danmörku???

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1151986

Hvað eiga þessir menn eiginlega mikinn pening??!
Þeir þurfa líklegast aldrei aftur að borga fyrir gjafir handa eiginkonunum þegar þeir eiga tvær stærstu og þekktustu stórverslanir Danaríkis ásamt öllu hinu....
Jón Ásgeir hefði bara átt að stinga undan Henrik Prins og ná sér í Margréti drottningu, þá hefði hann amk. kosti greiðan aðgang að valdinu og peningunum á einu bretti.

"Yes, we own all of Iceland and Brittain now...oh yes and nearly all of Denmark".
Þetta er ekki heilbrigt...oder was?!!

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Verslunarmannahelgin min...



Island sækjum það heim...JAHA!!

mánudagur, ágúst 01, 2005

Portugalos...here i come



Fann mynd af hótelinu okkar í Lissabon, 4 stjörnur-ætti ekki að klikka....ég ætla svoleiðins að njóta þess að eiga smá útlandafrí (aka. ekki Danmörk) áður en skólinn byrjar. Ætlum að leigja bíl í 3 daga og keyra upp í fjöllin, skoða vínekrur og mögulega að skella okkur niður á Algarve ströndina.
Já maður, það er komast mynd á fríið okkar...Köben verður svo bara Köben as we know it-family and friends...í heila viku eftir Portugalos.

More later frá Portugaldur

miðvikudagur, júlí 27, 2005

Sunshine reggae

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það er alls ekki svo slæmt að vera á Íslandi á sumrin!
Það er bara eðal sól dag eftir dag....what are the odds?!! Svo er maður búin að gera svo mikið skemmtilegt með skemmtilegu fólki....

Ég var að enda við að gefa upp visakortsnúmerið mitt fyrir Portúgalsferðinni minni. Þar mun ég fagna afmælisdeginum mínum í ár... Það s.s. lítur út fyrir að það sé meiri sól og blíða á dagskránni hjá mér í ágúst. Jafnvel eitt stykki sjóferð á stærðar banana eða fallhlífarstökk;) Svo er það bara Köben í viku eftir Potúgalos...þetta getur varla klikkað..!!

Verslunarmannahelgin mín fer í túristabransann þar sem tengdó og vinkona hennar eru hér í heimsókn. Ég tel líklegast að við höldum suður og skoðum jökulsárlón og fleira þessháttar. Mér finnst það fínt þar sem ég hef aldrei komið þangað sjálf. Ég er hræðilegur illi þegar kemur að því að ferðast um ísland....en ég er að vinna í málinu.

Ég byrja að vinna aftur á leikskólanum á þriðjudaginn og verð þar í 2 vikur þanga til við förum út. Áður en við förum út ætla ég samt að halda upp á afmælið mitt (og TJ, þar sem hann á afmæli 11.(vika á milli))...læt ykkur vita bráðum hvenær hátíðarhöldin fara fram;)

Er farin í sólbað...

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Sumar-stemmning!

Ég fíla afmæli, þau eru e-ð svo skemmtileg....takk fyrir boðið í kvöld Arna mín og enn og aftur til hamingju með tuttugasta og fjórða afmælisdaginn.
Vill svo heppilega til að mitt afmæli er eftir akkurat 28 daga...þvílík tilviljun!!

Þessa dagana hef ég verið iðin við að njóta mín í miðborginni...varla annað hægt þar sem veðrið er hrein snilld og ég er í "semi sumarfríi".
Ég hef bæði farið í húsdýra/fjölskyldugarðinn(vinnutengt) og á kaffi Flóru í Grasagarðinum(mæli með því!). Svo lagði ég bíl undir fót og skellti mér á Árbæjarsafnið í hrað-skoðun-> klukkutími í lokun þegar við mættum á staðinn.
Keyrt í sumó og farið í pottin, borðað og heim aftur...á innan við tveimur tímum.
Kaffihúsa-huggulegheit á Austurvelli í sólinni og snætt kvöldverð utan dyra á ágætis veitingastað.
Farið út að skokka um morguninn í sól og blíðu(that never happens!!..ekki sólin og blíðan heldur skokkið!)

Hversu mikið meir getur maður beðið um þegar tekið er tillit til þess að maður er á Íslandi en ekki erlendis?

Alveg hreint wúnderfúl:)

laugardagur, júlí 16, 2005

Madagascar!!
Ég ætla svo að sjá þessa bíómynd...
hver þorir að hleypa sínu innra barni út og koma með mér??

mánudagur, júlí 11, 2005



Ég vildi óska að þetta væri málið í dag...en nei rigning og aftur rigning.
Minnz er veikur og þarf að hanga heima það hefur sjaldan verið jafn óspennandi og núna þar sem ég er ekki að nenna að vera bara heima. Langar miklu meira í vinnuna. Krakkarnir eru svo mikil yndi:)

Ýmislegt skemmtilegt búið að ganga á í seinustu viku...með áherslu á mikið af góðum mat/kökum:)

Hitti hann Kjarra góðvin okkar Kvennóstelpnanna. Við fengum heimboð í nýju funky íbúðina hans (loksins) og var Kjarri samur við sig þegar hann hélt uppi stemmningunni á laugardagskvöldið ásamt félugum. Mjög stór og flott íbúð á besta stað...allt í sixty´s-stíl hjá kallinum. Við reyndum að plana skólafélaga-hitting en strönduðum á að Óli pimp er fjarverandi fram að jólum og Kjarri ekki viss um hvort hann þyrði að vera einn með fríðum flokki kvenna:)

Brúðkaup næstu helgi...en ekki það að ég verði með í gleðskapnum...í þetta skiptið fæ ég að sitja heima og passa brúðarbarnið...það er svo sem fínt líka. Komin tími til að ég kynnist þessari nýju litlu frænku minni að ráði:)

Aldrei dettur mér neitt sniðugt í hug þegar í sit fyrir framan þessa tölvu og held ég kenni veikindunum um í þetta skiptið..."ég er með óráði" hljómar vel....

Sendi kveðju til Siggu...útfrá lýsingunum að dæma vildi ég óska að ég væri þarna hjá ykkur (..í smá tíma amk.)
Au revoir french frie!!

Singin´in da rain
Hildz

sunnudagur, júlí 03, 2005

Tomleg en fin helgi

Þetta hefur verið ansi mikil palli var einn í heiminum helgi hjá mér.
TJ í Köben, Sigga systir í Frakklandi og foreldrarnir fyrir austan. Hinir fóru flestir út á land eða voru að vinna.
Ég átti samt mjög góðar quality stundir með Dröfn og Oddnýju ásamt Bergþóru. Smá shopping á útsölunum og svo djamm í gærkveldi með tilheyrandi fjöri.

Þessi sunnudagur er líka búinn að vera ansi hægur en góður. Vaknað seint og það eina sem fékk mig til að fara út úr húsi var óstjórnleg löngun í pizzu. Verst að þegar maður er svona al einn heima neyðist maður til að gera allt sjálfur...

Anywho þá styttist í spennandi tónleika og svo er gomma af afmælum og hittingum framundan...ekki slæmt.
Eigið góða viku alle sammen...

sunnudagur, júní 26, 2005

Alltof stuttar helgar!

Jæja enn ein sumarhelgin búin og það er barasta að koma júlí...jólin eru bara á næsta leyti;)
Loksins er þessi helgi búin. Þrátt fyrir langdregna vinnuhelgi komst ég á "ættarmót"á laugardagskvöldið. Já þetta er önnur helgin í röð sem ég fer á fund fjölskyldunnar. í þetta skiptið var það bara hin fjölskyldan sem hittist í Kjósinni. Mikið grillað og og sungið í rigningunni.Mikið fjör, mikið gaman..yes!

Ég kláraði að horfa á Desperate housewives seríuna í kvöld....ég er alveg hooked, get ekki beðið eftir næstu seríu. Þetta eru allt svo miklar kjarnakonur í þessum þáttum. Ég væri alveg til í að prófa að búa í svona flottum húsum, vera í mega formi, forrík, vera heimavinnandi og hafa óendanlegan tíma til að slúðra um nágrannana...samt frekar ólíklegt að ég nennti þessu í lengri tíma.

Ég er byrjuð að láta mig dreyma um næstu helgi. Ætla að gera e-ð grúví. Mögulega í stutta útilegu með gömlum vinum. Látum "gömlum" liggja á milli hluta! Það verður náttúrulega bara fjör, grill og gaman. Hef ég nefnt áður hversu hrifin ég er af grillum og grillmat....ég myndi ábyggilega grilla 5 sinnum í viku ef ég nennti því:)
En mikið fjör framundan...þrátt fyrir að TJ sé á leið til KBH á fimmtudaginn...e-ð verður maður nú að gera til að stytta sér stundirnar...hehe!

Desperate Housewife
Helen Van Háteigsberg

fimmtudagur, júní 23, 2005

R u kidding me!

Vá hvað ég vorkenndi Bigga í Maus að hafa þessa Sylviu Nótt ofsækjandi sig. Ég held ég hefði fengið mér nálgunarbann á svona týpu. Þrátt fyrir að þetta sé með eindæmum leiðinlegur þáttur verð ég að viðurkenna að heimskulegheitin í þáttastjórnandanum fengu mig til að lyfta munnvikunum agnarögn, örfáum sinnum. Það er sko miklu meira en ég bjóst við af þessu sjónvarpsefni.

Þúst skiluru!

-snurf-

Jibbí ég get loksins sett in myndir...props til Blogger fyrir að gera e-ð fyrir Mac notendur!!

Strembin vinnuhelgi framundan...ég er strax farin að hlakka til mánudagsins.
Ég fæ s.s. ekki einn einasta frí dag í þessari viku. Oj, ég er svo dugleg, þrátt fyrir að ég sé ekki að nenna því....;) Fyrsta helgin í júlí verður tekin með trompi í staðinn. Hvað er nú fólk með á prjónunum fyrir hana??

Leikskólinn er að gera lukku...sumarhátíð á morgun með grilli og skrúðgöngu. Hvað er maður eiginlega að hanga í háskóla...það er á leikskólunum sem allt fjörið er!!
Jibbí ég get loksins sett in myndir...props til Blogger fyrir að gera e-ð fyrir Mac notendur!!

Strembin vinnuhelgi framundan...ég er strax farin að hlakka til mánudagsins.
Ég fæ s.s. ekki einn einasta frí dag í þessari viku. Oj, ég er svo dugleg, þrátt fyrir að ég sé ekki að nenna því....;) Fyrsta helgin í júlí verður tekin með trompi í staðinn. Hvað er nú fólk með á prjónunum fyrir hana??

Leikskólinn er að gera lukku...sumarhátíð á morgun með grilli og skrúðgöngu. Hvað er maður eiginlega að hanga í háskóla...það er á leikskólunum sem allt fjörið er!!

sunnudagur, júní 19, 2005

Alyndisleg helgi

Þessi þjóðhátíðar helgi var frábær. Sól, hiti og góð stemmning.

Ég skrapp stuttlega niður í bæ á föstudaginn til að ná mér í snuddu og blöðru. En skynsemin náði yfirhöndinni þegar á hólminn var komið, ég nennti ekki að halda á blöðru um allan bæ og svo mundu ég eftir því hversu slæmar svona snuddur eru fyrir hárið (flashback). Lét mér nægja kaffihús, sólbað og að horfa á fólkið. Um kvöldið var það grill og huggulegheit. Velkomin heim Edda:)
Laugardagur var sveitadagur.."ættarmótið" fór fram í Borgarfirðinum, á ekta fínerís bóndabæ. Við fengum brilliant veður og óðum í ánni, hlupum með kúnnum og kynntum okkur hegðun Bjórkollunnar(sérstakur fugl þar í sveitinni). Tala nú ekki um söngvagleðina bæði í singstar og "brekkusöngstíl". Allt í allt mjög vel heppnað mót.
Takk fyrir okkur Guðrún og Þór, við tökum minigolfið bara næst þegar við komum;)

Nú fer sunnudagurinn í að taka til, ganga frá útilegudótinu og að hangsa svolítið..
Perfect!

miðvikudagur, júní 15, 2005

Hamingju oskir...

Systir mín kær á afmæli í dag og óska ég henni til hamingju með 18 árin.
Hafðu það gott í kvöld gamla mín:)

mánudagur, júní 13, 2005

Ar ju biliving dis veðer??

Hversu gaman er að búa á Íslandinu í svona veðri. Very much so my friend!!

Ég verð brúnni og brúnni í framan m hverjum deginum þar sem við eru utan dyra öllum stundum í leikskólanum. Ég ætla ekki að kvarta þó ég haldi að ég hafi mögulega náð mér í vott af sólsting í dag.

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag sofnaði ég og var svo vakin af einhverju liði sem talaði dönsku fyrir utan gluggan hjá mér. Ég lít út og sé grúppu af síðhærðum drengjum berandi hljóðfæragræjur úr bíl í áttina að húsinu mínu. Þeir arka svo beint upp tröppurnar hjá mér (ég verð að viðurkenna að í svefnrofunum var ég ekki viss hvort ég hefði pantað þungarokksband heim). Grúppan hvar svo inn hjá nágrannanum (sem betur fer). TJ heilsaði upp á liðið á svölunum þegar hann kom heim og komst að því að þetta danska band hafði verið að spila hér á laugardaginn. Einnig komst hann að því að í íbúðinni næst okkur í hinu húsinu heldur sig frönsk heavymetal grúppa. What are the odds???!

Ég tók mig til og blastaði allan diskinn hennar Beyonce fyrir útlensku gestina okkar;)

sunnudagur, júní 05, 2005

Barnavagn oskast!

ekki fríka út strax.....mig vantar bara vagn að láni frá 9.júní til 16 júní vegna þess að frændi TJ og kona hans ætla að heimsækja okkur með hálf nýfæddan son sinn.
Endilega látið mig vita ef þið eigið einn góðan í bílskúrnum...ja eða þekkið einhvern sem getur lánað mér.

Danke schön:)

Island sækjum það heim!

Ég brá mér á Snæfellsnes í gær. Við ákváðum seint á föstudag að skella okkur og brunuðum úr bænum snemma á laugardagsmorgun.
Sólin skein allan daginn og ég er með vel rauðar/brenndar kinnar og nef. Við fórum upp að jökli. Þar var snjóbretta get-together. Búið að byggja park með öllu tilheyrandi. Við höfðum reyndar engin bretti með en héngum bara í sólbaði og nutum útsýnisins í staðinn.
Gistum i tjaldi á Arnarstapa og túristuðumst aðeins í nágreninu. Um kvöldið var svo grill og góðra vina hópur.

Svona á þetta að vera....meiri útilegur!

fimmtudagur, júní 02, 2005

Summer-Hildz

Sól og blíða alla daga!
Ég er svoleiðins að njóta góða veðursins með ærlsandi krakka í kringum mig allan daginn.
Sumarvinnan er s.s. byrjuð. Byrjaði í gær (miðvikud.) og ég er dauð uppgefin eftir tvo daga. Þarf samt að taka fram að ferðin okkar til Köben var æði en mjög krefjandi. Mikið að gera alla dagana. Gat lítið verslað vegna allskonar matarboða og hittinga. Svo skelltum við okkur á risa djamm á laugardagskvöldið. Þar voru skemmtiatriðin í spes kantinum þar sem ýmsir spiluðu..þar á meðal dama sem kallar sig Peaches og var með vægast sagt sérstakt show.
Borðaði mikið af góðum pizzum á verði sem ekki er hægt að miða við íslenskar aðstæður...þetta er eitt að því sem mér finnst best við köben...snilldar pizzur á 400 kr.-could life be any sweeter:)

Nú er maður komin heim í íslenska sumarið og sumarvinnuna. Ég sé samt ekki fram á rólegt sumar þar sem dagskráin fyrir helgarnar er óðum að fyllast.....ekki verra að nýta sumarið í fjör:)