mánudagur, desember 27, 2004

Jóla smjóla...

Jólin hafa verið góð. Ég get alls ekki kvartað...en nú er ég líka eiginlega komin með nóg. Mig langar bara í spaghetti og venjulegan mat á ný og svo langar mig svoldið í spennandi líkamsrækt(ekki e-ð sprikl heldur e-ð sem maður nennir að mæta í). En ég get nú varla verið með neina heimtufrekju þar sem ég fékk svona fínar jólagjafir....takk fyrir mig!
Ég var í jólaboði í dag og í gær, maturinn var geggjaður, félagskapurinn góður og jólastemmning í hávegum höfð. Þrátt fyrir allan lúxusinn er ágætt að þetta hátíðarvesin er bara einu sinni á ári......

Ég fer til Danmark á miðvikudaginn, þ.e. eftir 1 dag og er barasta farin að hlakka ansi mikið til (þó ég hafi bara verið að fatta það almennilega í dag). Ísland getur nefnilega verið svo óspennandi svona í vondu veðri, allir eru latir og ekkert að gerast. Hver veit nema að maður verði að flytja sig til Köben til að upplifa smá crazyness;)
Gamlárskvöld er "a mystery" og ég hlakka bara til....Troels planar kvöldið og ég á bara að mæta. Það verður spennandi að sjá hvernig danskurinn heldur upp á eitt "heilagasta" kvöld íslendinga. Ég veit bara að þetta er meira partykvöld en fjölskyldukvöld. Vinir borða saman og svo er bara farið á milli partýa...bara stuð.

Svo lendi ég vonandi í einhverjum bitastæðum útsölum....eintóm hamingja:)

Ég nenni ekki að blogga fyrr en í fyrsta lagi á nýju ári svo ég segi:
"Njótið gamlárskvölds"...i'm going to!!!

fimmtudagur, desember 23, 2004

Þá er komið að því...

...ég ætla hér með að óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs...

-hafiði það sem best yfir hátíðarnar kæru vinir! :)

laugardagur, desember 18, 2004

Herra...!

happy
You're Mr. Happy! Good for you! :D


Which of the Mr. Men characters are you?
brought to you by Quizilla

Hittingur...

...vatnaliljur, mæting frá kl.20 i kvöld...

Sjáumst hressar!

miðvikudagur, desember 15, 2004

Eg vildi að eg væri rik!

...Þá myndi ég ALDREI þurfa að koma nálægt Lánasjóði Íslenskra Námsmanna....óþolandi forvitni í liðinu sem þar starfar...þeir þurfa að vita gjörsamlega allt til þess að maður geti fengiðeitt skitið lán. Liggur við að maður þurfi að fylla út formið með upplýsingum eins og "hvaða lit af nærbuxum genguru í" eða "hvað ertu þung/ur". Hvað varðar þessa stofnun um t.d. hvað maður þénar á árinu? Ég veit ekki betur en að þessi lán séu tekin af fólki á eigin ábyrgð og þurfa þá bara alls ekkert að vera tekjutengd. Það er eins og að námsmenn megi ekki eiga /cash/ á meðan námi stendur. Já já.....það mun einhver reyna að segja mér að það sé sniðugt að halda skuldum fólks í lágmarki og bla bla....en hversu þreytandi er að þurfa að fylla út umsókn á hverju ári ef ekki önn og "grátbiðja" um lán (því annars hafi maður ekki efni á að vera í námi)....og svo ofan á það að senda inn einhverja endanlega tekjuáætlun eftir hvert ár til að vera viss um að fá peninginn sinn nú útborgaðan!

Þreytt á þessu!!

Hildur Mange-Penge

mánudagur, desember 13, 2004

Helgin var gooooood...

Mikið var unnið um helgina en ég gaf mér samt tíma til að fagna sjötugs afmælinu hans afa með familíunni. Afi bauð okkur öllum í mat og gistingu í Veiðihúsinu við Grímsá. Það er nú bara luxusstaður...kannski ekki Hiltonstíll en eins gott og það gerist í veiðihúsum. Við eyddum laugardagskvöldinu í heitapottum og þar á eftir í þríréttað jólahlaðborð....svo var bara djúsað fram á nótt... ásamt hóp af starfsmönnum KB banka sem mætti í jólahlaðborðið.
Húsið er rosalega flott, tekur 40 manns í herbergi og er mjög glæsilega hannað af bandarískum arkitekt......
Mæli með þessu place-i...það er víst e-ð popular meðal ríku-business-laxveiðiáhugamanna heimsins;)

Dröfn gerði sér lítið fyrir og mætti á klakann á laugardaginn....Welcome, its good 2 have you back home!!

laugardagur, desember 11, 2004

Hahaha!

Tekið af Mbl.is:

Braut rúðu í Alþingishúsinu

"Maður braut rúðu í glugga á vesturhlið Alþingishússins með því að kasta gashylki úr SodaStreamtæki í gluggann um klukkan 15:30 í dag. Dyravörður í húsinu sá til hans og bílstjóri á vegum þingsins elti manninn og gat vísað lögreglu á hann skömmu síðar. Maðurinn, sem er góðkunningi lögreglunnar, var tekinn til yfirheyrslu og kvaðst hafa vera að mótmæla því hve þingmenn MÆTI SEINT TIL VINNU."


Hahaha....hversu magnað....?!
"Húsmæður Íslands sameinist...safnið saman elhúsáhöldum og rafmagnstækjum og látum þessa alþingismenn finna fyrir því að vera svona miklir letihaugar og sérhlífnir...ekkert jólafrí fyrr en 22.des!";)

fimmtudagur, desember 09, 2004

Allt að verða kinverskt!!

...Ég mundi allt í einu áðan eftir ástkærri teiknimynd úr barnæsku minni sem fjallaði um Tao Tao(Tá Tá) og vinir hans. Hún var smá væmin er samt good stuff þar á ferð...
Ég fékk út frá því þá frábæru hugmynd að surfa netið eftir Tao Tao-efni til að minna mig nú á hvernig liðið leit út. Fann einhverja glataða kínverska fan-síðu og það var allt. Þessi teiknimynd hefur greinilega verið gerð fyrir tíma heimasíðna þar sem allar teinkimyndir í heiminum eiga sína eigin heimasíðu í dag.
Anywho nóg um það. Svo datt mér allt í einu í hug að skrifa e-ð bull inn á bloggið mitt og þá kemur bara í ljós að Bloggerinn minn hefur skipt yfir í kínversku. Allt er gjörsamlega kínverskt...nema það sem ég skrifa....Nú kemur bloggkunnátta að góðu gagni þar sem ég veit hvar hnapparnir eru og tek bara sénsinn á að færslan komist á leiðarenda.
Eitt er þó nokkuð ljóst og það er að brainy kínverjarnir eru að taka yfir tölvuheiminn.......og þeir byrja á tölvunni minni!!!

Jæja nóg um þetta....ég er komin í jólafrí...ja eða amk. búin í prófum og er komin á fullt í jólastöffið! Fyrsta jólakortið fer til Afríku í fyrramálið og þá fer boltinn að rúlla....

Hafiði það nú gott....og munið: "no hard feeling þó ég sé búin,aight";)

þriðjudagur, desember 07, 2004

Nota Bene...

...ætla bara að ítreka við Vatnaliljur og grúppíur þeirra að taka frá kvöldið 18. des fyrir sull og læti með sólgleraugu hjá Háteigskirkjunni;)

U beil, u fail....hlakka til að sjá ykkur!

Happy peppy


Happy peppy
Originally uploaded by .:eyjan.
Er thetta ekki bara hugmynd fyrir jolakortin i ar....frekar illileg en samt skemmtileg pæling!

mánudagur, desember 06, 2004

Söknuður...

...hvað á það að þýða að yfirgefa mig "in my time of need" a.k.a. prófatíminn? Hvar eru allir bloggarar þessa heims. Er ég virkilega sú eina sem fer núna á netið milljón sinnum á dag og surfa blogg aðeins til að losna undan próflesningunni sem á mér hvílir. Þetta er rosalegt. Mér finnst ég vera alein, ráfandi um í netheimum.

Ég á þrátt fyrir allt aðeins eitt próf eftir, á miðvikudaginn og þá er ég laus undan prófum í bili. Mér finnst samt prófefni miðvikudagsins það leiðinlegt að ég er nánast búin að sannfæra mig um að ég sé búin í prófum...how about that!? Laumaðist meira að segja til að búa til smákökudeig og setja í frystinn áðan. Jólaandinn can´t be stopped;)

Eftir prófið á miðvikudaginn fer ég í intense verkefnavinnu fram á föstudag. Verð að klára allt þá, þar sem að helgin er sneisafullbókuð. Svo eru skil á mánudag. Þetta verkefni er að ég þarf að hanna og byggja lampa from scratch...þarf svo sem ekki að gera lampa en það er það sem ég ákvað að spreyta mig í. Let there be light! ...Og svo fá allir lampa í jólagjöf í ár...jeij!

Anywho þá er óskað eftir fólki í Netheima þar sem ég er orðin ansi leið á að vera eins og Palli sem var einn í heiminum, aight!

-Gangi ykkur öllum vel í lesningunni!!-

laugardagur, desember 04, 2004

jæja...

...er búin að vera að grúska í html kóðum í morgun og þar af leiðandi er nýtt look í prufun....
ætli þessi tölvuáhugi sé til komin vegna anti-læristuðs?

Who knows, my nose....!

föstudagur, desember 03, 2004

Eigum við ræða það?

Ég hef átt Marie Claire blaðið fyrir desember mánuð núna í 2 vikur en hef ekki haft tíma til að kíkja í gripinn fyrr en í gær.
Við ánægjulega gegnum blöðun rek ég augun í orð sem fær mann yfirleitt til að skoða greinina aðeins betur. Þetta orð er auðvitað Iceland...hvað annað;)
Jæja ég verð jú forvitin og fer til baka til að sjá um hvað þessi Íslandsvina grein er. Greinin ber yfirskriftina "Orgasms from around the world". Nú jæja hugsa ég...hvað geta íslendingar eiginlega lagt til í þeim málefnum. Þessi "hávísindalega" grein telur upp staðreyndir um þjóðir heimsins á þessu sviði.
Ísland kemst þar tvisvar á blað, í fyrsta lagi fyrir að vera sú þjóð sem notar mest af hjálpartækjum ástalífsins í heiminum (the heaviest users) og hins vegar fyrir að sú þjóð í heimunum sem er líklegust til að hafa one-night stand þar sem þeir tiltaka töluna 71% íslendinga hafa haft one-night stand. Á eftir íslendingum koma svo norðmenn með 70%.

Þessi grein fékk mig til að hugsa....á maður að vera stoltur af landi og þjóð fyrir að hafa áorkað þessu titlum með mikilli fyrirhöfn*hóst*.... eða á maður að skilja þetta sem svo að allir íslendingar séu með brókarsótt?!

Ég verð samt að viðurkenna að þetta kom mér nokkuð á óvart...ég vissi að við yrðum alltaf að vera best og stærst á sem flestum sviðum og að heimurinn yrði að vita af því...en common...dregur maður ekki mörkin einhversstaðar!?

fimmtudagur, desember 02, 2004

Bara fyndid


The funniest!
Originally uploaded by .:eyjan.

Eg a að vera að læra....

...og þess vegna blogga ég. Spurning um að setja þetta upp á móti kenningunni "ég hugsa, þess vegna er ég" (eða e-ð svoleiðins)....

**Langar að byrja að óska henni DRAFNUS minni til hamingju með afmælið í dag**
Hún er núna orðin stór stelpa og fær Birgittu Haukdal dúkkuna frá mér í afmælisgjöf!
Til lukku með daginn kona!!!

Annars hef ég lítið að tala um akkurat núna nema siðfræðikenningar sem eru kannski ekki það skemmtilegasta í bloggi.
"Siðfræði" próf á mánudaginn og svo "Talað mál og framsögn" próf á miðvikudaginn og svo.....er ég bara tilbúin fyrir jólin!!

-TÓM GLEÐI mun ríkja þá!! Baka, þrífa allt hátt og lágt, prófloka djamm, 70 ára afmælis jólahlaðborð í veiðihúsinu upp í Borgarfirði, kaupa gjafir, skrifa jólakort, senda Troels til köben, halda Vatnalilju djammið með þemainu komdu í fíling með sólgleraugu(í tilefni af gömlum myndum), slappa af í þynnku og ekki í þynnku....drekka jólaöl og borða kökur og konfekt....og margt fleira...

Maður á eftir að vera rosa busy greinilega....en eins og ég sagði...eintóm hamingja þar á ferð!!

miðvikudagur, desember 01, 2004

Gamla gengið


gamla gengið
Originally uploaded by .:eyjan.
...man einhver eftir thessum timum?
Eg var ad grafa i tölvunni heima og rakst a myndaseríu með okkur kellunum. Harpa virðist hafa átt linsuna þetta kvöldid....kíkið i albúmid hérna vid hliðina á....

mánudagur, nóvember 29, 2004

Plastur...anyone?

Tekið úr netfréttum:
"Band Aid 20's new version of Do They Know It's Christmas? is released today and is a dead cert for the Christmas No1 spot, according to the bookies.

But a Sky Showbiz poll has revealed a whopping 86% of music fans prefer the original version released 20 years ago this month."

Ég er sammála þessum 86% fólk sem fíla orginalinn betur...það passar bara eki að skella rappi inn í mitt jólalag með Bono og fleirum...er fólk að fíla þetta?

laugardagur, nóvember 27, 2004

Mette og Lea


Mette og Lea
Originally uploaded by .:eyjan.
Her er mynd af henni Leu vinkonu og roommate fra hojskolanum(til hægri) sem er buin ad vera herna nuna i 4 manudi og fer heim eftir viku...
Med henni a myndinni er annar danskur skiptinemi..

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Minna en tvær vikur...

...í próf!
Fékk einhver gæsahúð?.....good....því að ég fæ það þegar ég heyri minnst á prófin.
Reyndar ekki vegna prófanna sjálfra, heldur útaf þeim stutta tíma sem ég hef til að klára verkefni sem á að skila fyrir próf.
Kennarar halda að effektívasti tíminn til að skella verkefnum á fólk sé svona mánuði fyrir jól. Ég tel þá kenningu ranga, hver segir að fólk sé meira vakandi og áhugasamt akkurat á þessum tíma. Mín kenning er að fólk sé einmitt að vinna verr því öll verkefnin verði í raun copy-paste frá einu verkefni til annars....bara umorðað! Ég t.d. hef engann tíma til að vera funky í verkefnagerð þegar það er svona stutt til jóla....
Jæja nóg af kvarti og kveini...maður þarf bara að vinna á double hraða fyrir vikið!

Nú er mánuður til jóla...and counting:)
21 dagur þanga til Drafnskí kemur heim
Aðeins meir þanga til Edda snýr aftur
...og þá verður sko fjör!

P.s. ATH. Er að spá í að halda smá Vatnaliljufeeling þann 18 desember..þá er ég að meina PJÚRA DJAMM....einhverjar skoðanir um það?

mánudagur, nóvember 22, 2004

Spurninga dagsins....

...hverjum finnst danski þátturinn "Kroniken", sem sýndur er á sunnudagskvöldum í ríkissjónvarpinu, snilldar þáttur?