...og þess vegna blogga ég. Spurning um að setja þetta upp á móti kenningunni "ég hugsa, þess vegna er ég" (eða e-ð svoleiðins)....
**Langar að byrja að óska henni DRAFNUS minni til hamingju með afmælið í dag**
Hún er núna orðin stór stelpa og fær Birgittu Haukdal dúkkuna frá mér í afmælisgjöf!
Til lukku með daginn kona!!!
Annars hef ég lítið að tala um akkurat núna nema siðfræðikenningar sem eru kannski ekki það skemmtilegasta í bloggi.
"Siðfræði" próf á mánudaginn og svo "Talað mál og framsögn" próf á miðvikudaginn og svo.....er ég bara tilbúin fyrir jólin!!
-TÓM GLEÐI mun ríkja þá!! Baka, þrífa allt hátt og lágt, prófloka djamm, 70 ára afmælis jólahlaðborð í veiðihúsinu upp í Borgarfirði, kaupa gjafir, skrifa jólakort, senda Troels til köben, halda Vatnalilju djammið með þemainu komdu í fíling með sólgleraugu(í tilefni af gömlum myndum), slappa af í þynnku og ekki í þynnku....drekka jólaöl og borða kökur og konfekt....og margt fleira...
Maður á eftir að vera rosa busy greinilega....en eins og ég sagði...eintóm hamingja þar á ferð!!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli