laugardagur, desember 11, 2004

Hahaha!

Tekið af Mbl.is:

Braut rúðu í Alþingishúsinu

"Maður braut rúðu í glugga á vesturhlið Alþingishússins með því að kasta gashylki úr SodaStreamtæki í gluggann um klukkan 15:30 í dag. Dyravörður í húsinu sá til hans og bílstjóri á vegum þingsins elti manninn og gat vísað lögreglu á hann skömmu síðar. Maðurinn, sem er góðkunningi lögreglunnar, var tekinn til yfirheyrslu og kvaðst hafa vera að mótmæla því hve þingmenn MÆTI SEINT TIL VINNU."


Hahaha....hversu magnað....?!
"Húsmæður Íslands sameinist...safnið saman elhúsáhöldum og rafmagnstækjum og látum þessa alþingismenn finna fyrir því að vera svona miklir letihaugar og sérhlífnir...ekkert jólafrí fyrr en 22.des!";)

Engin ummæli: